Alþýðublaðið - 09.01.1966, Side 6

Alþýðublaðið - 09.01.1966, Side 6
GLUGGINN Gömul tízka endurvakin HfN 21 ÁRA GAMLA brezka sjónvarpsstjarna Cathy Mc Gnwan, hefur hér klætt sig í svipuð föt og hSn frægfa stjarna högiu mytMlanna, Ciara Bow og í þessum fötum kemur hún fram sjónvarpinu, stuttum kjól, breiðum skóm með bandi og ennfremur ber hún festar úr svörtum perlum eins og sjá má á inyndi ini. Ekki er óiíklegt að þessi jraniia tizka eigi eftir að verða vinsæl núna, og- þá ekki sízt tvöfalda festin, sem virðist i fara vel við stuttu kjólana. □ Winston Churchill, hinn 25 ára gamli sonarsonur hins látna stjórnmálamanns, hefur undan- farna mánuði verið á fyrirlestra- ferðalagi í Bandaríkjunum — og haldið um 50—60 fyrirlestra um Afríku og stjórnmál í Evrópu. Hann heldur þar við fjölskyldu- venjunni. Um það bil á sama aldri fór afi hans í fyrirlestraferð í Bandaríkjunum og seinna einnig faðir hans, aRndolph Churchill. Ungi Churehill er nú á leið til Austurlanda eftir að hafa dvalizt í fríi með konu sinni á Jamaica. Fyrir ári síðan skrifaði hann á- gæta bók um Afríku. □ Johnson forseti hefur á síðustu tíu mánuðum fengið meira en 10 þúsund bréf, sem eingöngu fjölluðu um stríðið í Vietnam. — Kókos- kökur KONA nojckur kom til sálfræð- ings og bað' um vottorð þess, að hún væri andlega heilbrigð. Lækn- irinn rannsakaði hana og rétti henni svo vottorðið, sem hún hafði beðið um. — Þér getið verið ánægðar, frú. Þér eruð eins hraust og eðlileg og nokkur getur verið. Hvers vegna í ósköpunum eruð þér að biðja um þetta vottorð? — Ja, svaraði konan, — það er eiginlega maðurinn minn, sem heldur því fram, að ég sé eitthvað skrýtin. Og vitið þér bara hvers vegna? Það er af því, að mér finnst svo góðar kókoskökur. — Kókoskökur? En það er ekkert skrýtið við það. Mér finnst sjálfum þær vera mjög góðar. — Nei, er það virkilega, lækn- ir. En skemmtilegt. Þér verðið þá endilega að koma og heimsækja mig. Ég hef allt loftið, allan kjall- arann og allan bílskúrinn fullan af kókoskökum. Forsetinn les sjálfur daglega um 10—15 af þessum bréfum, fyrst og fremst bréf, sem koma frá her- mönnum, sem berjast í Vietnam. Margir bréfritararnir fá svar frá forsetanum sjálfum, en öðrum bréfum er svarað á sérstakri skrif- tofu í Hvíta húsinu. □ JAMES BOND kvikmyndin Oullíingur hefur verið bönnuð í ísrael, ekki vegna hinna drama- tísku ævintýra 007 eða James Bond eða vegna fúlmennsku herra Gullfingurs lieldur vegna þess að eitt aðalhlutverkið í myndinni leikur Gert Fröbe, sem nýlega viðurkenndi það í viðtali, að hann hafi verið meðlimur í nazistaflokknum og hafi verið lið þjálfi í varnarliðinu. •oooooooooooooooooooooooooooooooo Býður fram konu sína GEORGE WALLACE, fylkis- stjóri í Alabama, sem er einn mesti negrahatari allra fylkis- stjóra í Bandaríkjunum, reyn- ir nú sem ákafast að fá konu sína kosna sem fylkisstjóra næsta kjörtímabil, þar sem komið hefur í ljós, að ómögu- legt er fyrir hann hvaða brögðum, sem hann beitir, að tryggja sér endurkosningu. — Embættistími Wallace rann út um þessi áramót, og stjórnar- skráin leyfir ekki beina end- urkosningu. Wallace reyndi að fá þessu breytt, þannig að endurkosning yrði leyfð,. en öldungadeildin, sem hann ekki stýrir eins og fulltrúadeild- inni, var á móti tillögunni. Þá kom fram hugmyndin um að láta frú Wallace bjóða sig fram, en það er í rauninni ekk ert annað en það, að Wallace „eiginmaður fylkisstjórans” getur haldið áfram að vera raunverulegur fylkisstjóri í Alabama. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem slíkt gerist í Bandaríkjunum. Árið 1924 var valin sem fylkisstjóri í Texas frú Ferguson, en allir vissu, að hún var aðeins kosin til þess að maður hennar,. James Ferguson fengi völdin, en hann hafði ekki náð kosningu árið 1918. Hann kom sér upp skrif- stofu við hlið skrifstofu konu sinnar, og eitthvað svipað ætl- ar Wallace sér að gera. Eng- inn efast um, að Wallace yrði endurkjörinn, ef að stjórnar- skráin leyfði það, ekki aðal- lega vegna stefnu sinnar í kynþáttamálum, heldur vegna þess, að hann hefur reynzt vel sem fylkisstjóri, hann hefur gert áætlun um vegagerðir, hefur hækkað kennaralaun, séð um að námsbækur séu ó- Framhald á 10. síðu. Hormónalyf lækna dvergvöxt VIÐ háskólasjúkrahúsið í Upp- ölum í Svíþjóð hefur nú verið iagt frá árangri af athyglisverð- um tilraunum, en það er meðferð með hormónalyfjum á dvergvexti, sem stafar af truflunum í starf- semi heiladingulsins. Hinn svo- kallaði dvergvöxtur getur haft margar orsakir og eru 5 þeirra helztar. Það hefur þó aðeins ver- ið dvergvöxtur vegna truflana í heiladingli, sem hefur verið rann- sakaður í Uppsölum, og í allri Svíþjóð eru ekki nema um 30—40 manneskjur, sem þjást af sílkum dvergvexti. En hann stafar af því, að heiladingullinn, sem aðal- lega framleiðir kynkirtlahormóna og vaxtarhormóna framleiðir þá í of litlum mæli eða að framleiðsla þeirra hefur alveg stöðvast. Kyn- þroski kemur seint hjá þessu fólki og vöxturinn hættir allt of snemma. Niðurstaða rannsókn- anna í Uppsölum gefur góðar vonir, en aðeins ef um dvergvöxt af þessu tagi er að ræða. Fram- leitt hefur verið sérstakt hormóna lyf, unnið aðallega úr heiladingli Frh. á 10. síðu. SAMTÍNINGUR 9. janúar 1966 - ALþÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.