Alþýðublaðið - 08.02.1966, Síða 1

Alþýðublaðið - 08.02.1966, Síða 1
Þriðjudagur 8. febrúar 1966 - 46. árg. - 31. tbl. - VERÐ: 5 KR. löndunarrétt Reykjavík. — GO. EGGERT GÍSLASON skipstjóri er um þessar mundir staddur í Noregi að fylgjast með smíði skips, sem hann er eigandi að. Norska felaðið Fiskaren hefur átt viðtal við Eggert, þar sem hann segizt hafa farið þess á leit við íslenzka sjávarútvegsmálaráðherrann, að teknar verði upp beinar viðræður u m gagnkvæman löndunarrétt ís- lenzkra og norskra síldveiðiskipa 1 höfnum landanna. Samkvæmt upplýsingum Eggerts G. Þorsteins- sonar sjávarútvegsmálaráðherra hafa enn engar formlegar viðræð- ur átt sér stað um þetta mál. Fréttin og viðtalið úr „Fiskaren” fer hér á eftir: „Harstad: Eggert Gíslason skip- stjóri og bassi (íslenzki síldar- kóngurinn), sem nú er staddur í Harstad til að fylgjast með smíði liins nýja og fullkomna skips síns, ■sem verið er að byggja við Kaabös mek. Verksted, segir í viðtali við fréttamann Fiskarens, að hann liafi farið heim til íslands um jól- in og haft samband við íslenzka jsjávarútvegsmálaráðherrann í þeim tilgangi að fá hann til að faka upp beinar viðræður við kollega sinn í Noregi um gagn- kvæman löndunarrétt á síld fyrir íslenzk og norsk síldveiðiskip á íslandi og í Noregi. — Sötkum hins góða sambands og vináttu, sem ríkir milli landanna verður nauðsynlega að koma á slíku samkomulagi. Við reiknum með að veiða síld bæði við Jan Mayen, við Bjarnarey og við Vest- urströnd Noregs með þeim full- komnu skipum og tækjum, sem við höfum nú í höndunum og þá yrði hagkvæmt fyrir okkur að geta landað aflanum í norskum höfnum. Það sama verður uppi á Framhald á 14. síffu. Eggert Gíslason KAUPMÍANNAHOFN, 7. febrú- ar (NTB-RB). — Nýtt Tjnu-mál kom upp í Danmörku í dag. Þriggja og hálfs mánaðar gömlum dreng var rænt úr barnavagni meðan móðir hans var að verzla í búð í Odense skömmu eftir hó degi í dag. Lögreglunni var strax gert við vart og 60—70 menn hófu leit að barninu. Enn 'hefur ekxi nláðsfc Framhald á 14. siðu. Dró tennur úr heilli togaraskipshöfn í SÍÐASTA tölublaði Fish- ing News er sagt frá bráð- skemmtilegum viðskiptum brezkrar togaraáhafnar við tannlæknir einhvers staðar á íslandi. Atburðurinn er svo einstæður og skemmtilegur, þrátt fyrir sorglegar afleið- ingar, að við teljum rétt að birta frásögn hins brezka blaðs í heild: „Þegar tveir ungir liásetar á Hull togaranum Loch Moi- dart játuðu á sig ólöglegar aðgerðir til að komast hjá skyldustörfum í veiðiferð skipsins á íslandsmiðum fyrir skömmu, skýrði saksóknarinn við bæjarréttinn í Hull frá þvi að á einu kvöldi hefði íslenzk- ur tannlæknir krækt sér í stór fé, með því að draga tenn- ur úr öllum hásetum togarans. Hásetarnir tveir voru dæmd ir í 10 og 20 punda sekt og tveggja mánaða varðhald. — Annar þeirra er aðeins 17 ára gamall, en hinn 21 árs. Jacson saksóknari sagði fyr- ir réttinum að sex aðrir af á- höfn skipsins væru flæktir í málið og væri nú beðið eftir að fá þá handtekna. Togarinn sigldi á íslandsmið þann 31. desember með fulla áhöfn. Þann 10. janúar bil- aði bakborðstromlan á spilinu og skipstjórinn og stýrimaður- inn sýndu mönnunum, hvern- ig hægt væri að kasta trollinu með því að nota einungis stjórnborðstromluna. Daginn eftir neituðu háset- arnir að kasta trollinu. Skip- stjórinn reyndi að leiða þeim fyrir sjónir hvaða afleiðingar það háttalag gæti haft, en sigldi síðan til næstu hafnar á íslandi. Yfirvélstjórinn gerði við bakborðstromluna á spil- inu á leiðinni inn og enn reyndi skipstjórinn að skipa mönnum sínum að kasta. Þá sögðust þeir vera veikir og yrðu að fara til tannlæknis. Þegar skipið kom í höfn, fóriu allir hásetarnir til tann- læknisins, þar sem Wood, sá 17 ára, lét taka úr sér 11 tennur, þrátt fyrir að hann hafði aldrei áður kvartað um tannpínu. Saksóknarinn segir að tannlæknirinn hafi fengið talsvert fyrir sinn snúð, því að tennurnar, sem hann tók, urðu nokkuð margar áður en lauk, þótt engin þeirra værl illa skemmd. Laun tamlækn- isins urðu milli 50 og 60 ster- lingspund þetta kvöld, en það samsvarar 6000—7000 krfo- um.” Myndin er af bílnum, sem valt hjá Litlu-Fellsö vl í Skilmannahreppi. Eins og sjá má gengrur það kraftaverki næst aff ekkert hinna fimm ungrnenna, sem í bflnum voru skyldi fá á sig skrámu. Bíllinn er gjörónýtur. Mynd: Hdan. VELTA, ÁREKSTUR OG OFSAAKSTUR Akranesi. — Hdan.-GO. KLUKKAN hálfelléfu í fyrra- morgun lögðu fimm unglingar úr Reykjavík af stað héðan frá Akra- nesi til Reykjavíkur í einum bíl. Þegar þau komu að beygjunni við Litlu-Fellsöxl í Skilmannahreppi, missti ökumaðurinn stjórn á far- artækinu, sem v'alt út af veginum og staðnæmdist á toppnum. Bíll- inn er gjörónýtur, en fólkið fékk ekki svo mikið sem skrámu og varð yfirleitt ekki fyrir neinum skakkaföllum, ef frá er talið lykkjufall, sem kom á sokk einn- ar dömunnar. Má þetta teljast furðulega vel sloppið. Þá hafði bíll merktur JO farið út af beinum vegi á móts við bæinn Eystra-Miðfell, en hann kom nokkuð við sögu í óveðrinu Eggert Gíslason í viðtali við norskt blað: Vill gagnkvæman um daginn. Bíllinn liafði lent út í skurði og var ekki mikið skemmdur að sjá. Svo gerðist það aðfaranótt sl. sunnudags, um fimm-leytið, að á- rekstur varð í brekkunni fyrir neðan herstöðina í Hvalfirði milli Opelbíls og Chevrolets. Opelinn skemmdist nokkuð, en slys urðu ekki á fólki. Og í fyrrinótt tók lögreglan £ Akranesi drukkinn ökumann, sem ók á 120 km. hraða um götur bæjarins í vonlausri viðleitni til að hrista lögreglubílinn af sér. Barni rænt ur vagm i Danmörku

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.