Alþýðublaðið - 08.02.1966, Blaðsíða 11
OFíltlDlR
Valur og Sportclup Leip-
zig leika annað kvöld
FLUGFREYJUR
Landslið og Pressulið
i karlaflokkj á urtdan
Austur-þýzka handknattleiks-
liðið Sportclub Leipzig kom hingað
til lands I nótt og leikur við
kvennalið Vals í 2. umferð Evr-
ópubikarkeppninnar annað kvöld.
Eins og kunnugt er sigruðu Vals-
stúlkumar norsku meistarana í I.
umferð, en þær austur-þýzku sigr
uðu Hollandsmeistarana. Dómari
leiksins á morgun verður norskur,
Knut Nilsson. Sala aðgöngumiða
hefst í dag í Bókaverzlunum Lár-
usar Blöndal á Skólavörðustíg og
í Vesturveri. Verð aðgöngumiða
er kr. 75 og 30 fyrir börn.
í liði Vals leilca Katrín Her-
mannsdóttir, Guðrún Árnadóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, fyrirliði,
Sigrún Guðmundsdóttir, Ragn-
heiður Lárusdóttir, Sigrún Ing-
óifsdóttir, Erla Magnúsdóttir,
Björg Guðmundsdóttir, Hrafnhild
ur Ingólfsdóttir, Ása Kristjánsd.
og Kristín Jónsdóttir.
★ Landsliö — Pressulið.
Forleikurinn verður ekki af
Iþréttfr
Frh. af 10. síðu.
ar í'yrst og fremst af því hversu
opnar varnir beggja liða voru. —
Urðu því færri brot, fleiri stig og
meiri hraði þannig, að tafir verða
nær engar.
ÍR náði nú sínum bezta leik á
vetrinum. Ánægjulegt er að sjá
hvernig ungu mennirnir í liðinu,
Tómas Zoega og Birgir Jakobs-
son, bera uppi sóknina. Þeir voru
beztu menn liðsins ásamt Sigurði
Gíslasyni sem gætti Sigurðar
Helgasonar afburðavel, náði mörg
um fráköstum og skoraði 20 st.
Einnig átti Hólmsteinn Sigurðsson
ágætan.n sóknarleik, skoraði 21 st.
Vítahittni liðsins var góð, 18 víti
og 15 stig eða 83%.
KFR: Það iiafði úrslitaáhrif fyr
ir KFR í þessum leik, að Sig.
Helgason, sem átti stóran þátt í
sigri KFR á nýafstöðnu Reykja-
víkurmóti, átti nú slæman dag, —
skoraði aðeins 10 stig úr aragrúa
af tilraunum. Auk þess sem hann
tók mjög fá fráköst (aðeins 3 í
seinni hálfleik).
Aðrir leikmenn liðsins, þeir
Ólafur Thorlacius (17 stig), Ein-
ar Matt. (20 stig) og Marinó (8
stig) áttu ágætan leik, svo og
Þórir (19 stig) sem hefur þó oft
hitt betur.
Vítahittni liðsins er geysilega
léleg, 36 vítaskot og aðeins 12
stig eða 33% er mjög léleg
frammistaða hjá hvaða I. deildar-
iiði sem er.
Mannafæð virðist há KFR mik-
ið, því að ófært er að láta sömu
liðsmenn leika fullan leiktíma
án hvíldar. En hvernig væri að
reyna leikmenn þá er hvíla á vara
mannabekkjunum leik eftir leik.
Dómarar voru Guðm. Ólafsson
og Þorsteinn Ólafsson og tókst
þeim sæmilega upp, þrátt fyrir
æfingaleysi. — G.M.
lakari endanum. Landslið karla
leikur við lið, sem íþróttafrétta-
menn hafa valið. Lið landsliðs-
nefndar er þannig skipað: Hjalti
Einarsson, Þorsteinn Björnsson,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Birgir
Björnsson, Hermann Gunnarsson,
Sigurður Einarsson, Karl Jóhanns
son, Ágúst Ögmundsson, Guðjón
Jónsson, Stefán Sandholt og
Hörður Kristinsson.
iþannig skipað: Karl M. Jónsson,
) FH, Jón Breiðfjörð, Val, Einar.
1 Sigurðsson, FH, Sigurður Ósk-
arsson, KR, Þórarinn Ólafsson,
Víking, Matthías Ásgeirsson, Hauk
um, fyrirliði, Gylfi Jóhannsson,
Fram, Örn Hallsteinsson, FH, Páll
Eiríksson, FH, Stefán Jónsson,
Haukum, Bergur Guðnason, Val.
Þetta ætti að geta orðið mjög
skemmtilegur leikur.
Það skal fram tekið, að Ragn-
ar Jónsson, sem ekki leikur með
landsliðinu er meiddur og getur
ekki leikið ög Geir Hallsteinsson
FH er ekki í bænum, og því ekki
Lið íþróttafrétitamanna er 1 hægt að velja hann.
Dukla sigraði
fFramhald af 10. síSu).
boltanum. Ánægjulegt var að sjá á
laugardaginn hvað úrvalið notaði
yfirleitt vel breidd vallarins og
línuspilið var allgott. Það, vantar
herzlumuninn, til þess að lið okk-
ar verði mjög gott eða frábært,
vonandi verður tíminn notaður vel
þessa viku og sigur yfir Pólverj-
um á sunnudaginn væri mjög kær
kominn eftir töpin í vetur.
Gunniaugur Iljálmarsson var
bezti maður íslenzka liðsins, hann
hefur þennan ódrenandi baráttu-
vilia, sem smitar út frá sér, er
frábær skvtta og sendingar til
leikmanna eru oft á tíðom frá-
bærar. Nýliðinn í landsliðinu, —
Hermann Gunnarsson — stóð sig
með ágætum og á skilyrðislaust
að leika með á sunnudaginn. —
Einnig var Guðjón sterkur, sér-
staklega í vörn og skot hans eru
ávallt hættuleg. Ragnar var lítið
inn á, enda meiddur, en Birgir
var mun betri í leiknum daginn
áður. Þorsteinn varði vel.
Hjá Dukla bar mest á Rada,
sem er frábær línuspilari og
skytta. Markvörðurinn var einnig
stórkostlegur. Annars er liðið í
heild eins og vél og erfitt að gera
upp á milli einstakra leikmanna.
Bent Westergaard frá Danmörku
dæmdi leikinn og stóð sig allvel.
Hans aðalgalli er að vera of fljót-
ur að flauta. Sá, sem brotið frem-
ur hagnast á því og þannig missti
íslenzka liðið dýrmæt mörk, er
vítaköst voru dæmd, en markvörð-
ur varði.
Fimm mönnum var vikið af
leikvelli vegna grófra brota, —
Herði Kristinssyni, og Hermanni
Gunnarssyni í íslenzka liðinu, og
Konecný, Rada og Benes hjá Duk-
la.
Mörk íslendinga skoruðu, Gunn-
laugur 6 (1 úr víti), Hermann 4
(1 úr víti). Guðjón 3, Hörður 3
(2 úr víti).
Mörk Dukla, Rada 10 (5 úr víti),
Mares 3, Duda 2 og Benes, Trojen
og Havlík 1 hver.
LIVERPOOL bætti enn stöðu
sína í I. deild um helgina, sigraði
Blackburn úti 4:1, og er með 43
stig eftir 29 leiki. Burnley, sem
kemur næst með 37 stig eftir 28
leiki, gerði jafntefli við Arsenal
úti, 1:1. Manchester Utd. gjörsigr-
aði Northamton á heimavelli með
6 gegn 2 og er þriðja í röðinni
með 36 stig eftir 28 leiki. Leeds
er í fjórða sæti með 35 stig eftir
26 leiki.
í II. deild er Manchester City
efst með 38 stig eftir 28 leiki, —
Næst koma Huddersfield og Coven
try með 37 stig eftir 28 leiki, en
markahlutfall Huddersfield er
betra. Úlfarnir eru fjórðu með 34
stig eftir 29 leiki. Þeir hafa tap-
að tveimur síðustu leikjunum.
Úrslit:
I. deild.
Arsenal — Burnley 1:1
Blackburn — Liverpool 1:4
Blackpool — Tottenham 0:0
Chelsea — Fulham 2:1
Everton — Stoke 2:1
Leeds — West Ham 5:0
Leicester — Aston Villa 2:1
Manch. Utd. — Northampton 6:2
Newcastle — Sheff. Wed. 2:0
Sheff. Utd. — Sunderland 2:2
WBA — Nottingham For. 5:3
II. deild:
Birmingham — Preston 1:1
Bolton — Plymouth 0:1
Bristol C. — Manch. C. 1:1
Cardiff — Norwich frestað
Carlisle — Wolves 2:1
Coventry — Rotherham 2:2
Derby — Bury 4:1
Ipswich — Charlton 1:4
Leyton — Crystal P. 0:2
Middlesboro — Huddersf. 1:3
Portsmouth — Southampton 3:5
í Skotlandi var leikið í bikar-
keppninni, Rangers vann Airdrai
með 5 gegn 1.
Loftleiðir ætla frá og með vori komanda að ráða all-
margar nýjar flugfreyjur til starfa. í sambandi við
væntanlegar umsóknir skal eftirfarandi tekið fram:
★ Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára — eða
vetði 20 ára fyrir 1. júní n.k. Umsækjendur hafi
góða almenna menntun, gott vald á ensku og ein-
hverju Norðurlandamálanna, og helzt að auki a
þýzku og/eða frönsku.
★ Umsækjendur séu 162—172 cm á hæð og
líkamsþyngd til hæðar.
★ ú'msækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöld-
námskeið í marz n. k. (3—4 vikur) og ganga
undir hæfnispróf að því loknu.
★ Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið
nvort umsækjendur æski eftir sumarstarfi ein-
vörðungu (þ.e. 1. maí til 1. nóvember 1966) eða
sæki um starfið til lengri tíma.
★ Aliir umsækjendur þurfa að geta hafið störf á
tímabilinu 1. — 31. maí 1966.
★ Umsóknareyðúblöð fást í skrifstofu félajgsins
Lækjargötu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá
umboðsmönnum félagsins út um land, og skulu
umsóknir hafa borizt ráðningardeild félagsins
fyrir 15. þ.m.
JT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. febrúar 1966