Alþýðublaðið - 08.02.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 08.02.1966, Blaðsíða 4
 Eltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull- trúl: ElSur GuSnason. — Símar: 14900 - 14903 - Auglýslngasiml: 14906. ABsetur: AlþýSuhúsiS Vl6 Hverfisgötu, Reykjavík. — PrentsmiSja AlþýSu- blaBsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I iausasölu kr. B.00 elntakíB. tJtfiefancli: Alþýöuflokkurinn. BALDUR ÓDÝRIR KULDASKÓR fyrir kvenféik Á SUNNUDAG var hleypt íaf stokkunum í Kópavogi nýjum flóabát fyrir Breiðafjörð, og hlaut hann nafnið Baldur eins og gamli flóabáturinn, sem var dæmdur úr leik sökum fúa fyrir nokkr- um mánuðum Þrátt fyrir batnandi vegasamgöng- ur er bæði nauðsyn og aukið öryggi í góðum flóa- bátum. Þarf ekki 'að efa, að hið nýja skip muni reynast farsælt undir stjórn Lárusar Guðmunds isonar skipstjóra í Stykkishó^mi, eins og hið gamla hefur verið. Nýi Baldur er um 180 lestir að stærð. Er þetta stærsta vöru- og farþegaskip, sem smíðað hefur verið hér á landi, og af öðrum skipum er aðeins eitt varðskip stærra. Er smíði skipsins því við- burður í íslenzkum stálskipasmíðum. r Íslendingum er augljós nauðsyn að eiga blóm- legan skipasmíðaiðnað, bæði til nýbygginga og viðhalds. Samt hefur vöxtur þessa iðnaðar ekki verið í samræmi við þörfina, því flestir hinna nýju báta hafa verið keyptir frá öðjrum lönd- um. Þyrfti iað gera hvort tveggja, endurnýja fiski- skipin jafnar en verið hefur og smíða miklu meira af þeim í landinu sjálfu. Að sögn þeirra, sem bezt þekkja til, er þetta ekki tæknilegt vandamál, held- ur fjárhagslegt. íslenzkir iðnaðarmenn ráða við ■smíði fullkominna skipa, en fjárhagshliðin, bæði hvað snertir stofnlán og rekstrarfé, er enn að miklu leyti óieyst. TUNGLIÐ SOVÉTRÍKIN hafa unnið mikið vísindaaf- rek með lendingu geimfars á tunglinu. Telja vísinda menn myndir þær, sem sjálfvirk tæki Lúnu hafa sent til jarðar, vera með hinum merkilegustu, sem borizt hafa utan úr geimnum. Bæði þetta síðasta afrek Rússa og Gemini-sigl ing Bandaríkjamanna, er þeir hittust á braut um hverfis jörðu, gefa til kynna, að undirbúningur und ir mannaferðir til tunglsins gangi greitt. Kann svo að fara áður en mörg ár líða, að fyrsti maðurinn fari til tungls'ins. Það mun hafa komið til orða milli þeirra Krust jovs og Kennedys í eina tíð, að Sovétríkin og Banda ríkin tækju upp samstarf í tunglskotum sínum. Því miður varð ekkert úr þeim fyrirætlunum, en óbreyttu fólki virðist tilvalið tækifæri fyrir risa- veldin að sleppa sem snöggvast annarri hendi af atomsprengjunum og takast í hendur um sameigin- lega tunglferð. Gæti hvorugur hlunnfarið hinn hvað upplýsingar snertir — og vonandi dreymir hvor- ugan um að leggja undir sig tunglið! Þegar þar ; að kemur verður það eins og úthafið sameign alls mannkyns — vonandi undir stjóm Samein- uðu þjóðanna. verð: kr. 389.00.00 NÝJAR SENDINGAR SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi Í00 SKÓVAL Austurstræti S8 Eymundssonarkjaliara ÓDÝRIR KULDASKÓR fyrir karimenn háir og Iágir 3 gerðir. NÝJAR SENDINGAR SKÓBUÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100 oooooooooooooooc Handavinnu- námskeið Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík efnir til handa- vinnunámskeiðs (ísaum og tauþrykk) næstk. fimmtud. 10. febrúar. Þær konur er vildu taka þátt í námskeið- inu eru vinsamlegast beðnar að hafa samband við Krist- ínu Guðmundsdóttur' í sím- um 15020, 16724. Stjórnin. OOOOOOOOOOOOOOOC oooooo ooooooooo< Aðalfundur kjör-j dæmisráðsins á Reykjanesi Affalfundur Kjördæmis- ráffs Alþýffuflokksins í Reykjaneskjördæmi, verffur haldinn sunudaginn 13. fe- brúar n.k. í Alþýffuhúsinu Hafnarfirffi og hefst kl. 2,00. Dagskrá fundarins verffur tilkynnt síffar. Stjórn kjördæmisráffsins £ Reykjaneskjördæmi oooooooooooooooo SKARPAR FILMUR GEFA BEZTAR MYNDIR NOTIÐ FILMUR F U J F U J Hrabskákkeppni verður haldin í Félagsheimili múrara og rafvirkja að Freyjugötu 27, í ikivöld kl. 9. — Félagai eru hvattir til að fjöhnenna og taka með sér töfl. Stjórnin. '4-8. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.