Alþýðublaðið - 08.02.1966, Blaðsíða 6
Planta notuð til
að hreinsa vatn
£ 8. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Víða um heim verður að nota
vatn úr ám og vötnum til drykkj-
ar. Vatnið verður að hreinsa, en
SAMTÍNINGUR
□ 9,300,000 fólksbílar og 1,500,
í)00 vörubílar voru seldir í Banda-
ríkjunum írið 1965, að því er for-
seti Gener il Motors, James Roche,
isagði frá nýlega. Árið var algjört
imetár í amerískum bílaiðnaði.
★
□ Johan Broderick, sá, sem á
bannárunum í Ameríku var kallað
ur duglegasti lögregluþjónn í
heimi. fyrir baráttu sína við glæpa
menn í New York, lézt nýlega í
Middleton í New York, 70 ára að
aldri. BroCerick var einnig lífvörð
ur Roosevelts forseta og einnig líf
vörður fyrrum heimsmeistara í
þungavigt. Jack Dempsey.
★
□ Tízkuhi;ið Dior ; París hefur
; hyggju t-ð höfða mál gegn blað-
inu France Soir, vegna þess að
blaðið á í.ð hafa birt tvær tízku-
myndir fr.i vortízkusýningu Diors.
Öil Parísa ’blöðin hafa gert um það
samning r.ð bi ta ekki mydnir af
nýju tízkunni fyrr en 28. feb. Jac
ques Pouct. skvrði frá því seinna
að ef til vill yrði samið um málið
beint við ilaðið. en ef svo verðup
ekki, verlur höfðað mál fyrir
rétti. Mvi dirnar tvær voru birt-
art ; Fi an< e Soir fyrir rúmri viku
síðan. Ff H! vill hefur þetta líka
þær aílei lihcar. að starfsmönn-
um við France Soir verður ekki
leyft aö vwa við töddum á næstu
tízkus'ningu.
Hjúkrunar-
kvenna-
skortur
Bæði í Osló og Stokkhólmi er
nú talað um að ráða 30 kóreanskar
hjúkrunarkonur til þess að ráða
bót á slorti á hjúkrunarfólki.
Stjórn skandinaviska kennslu-
sjúkrahús ;ins í Suður-Kóreu hefur
þó í bréfi til sænsku stjórnarinnar
andmælt þe su og segja, að til-
Framhald á 15. síðu.
hvort það er gert með vélum eða
á líffræðilegan hátt fcr eftir því
hversu óhreint það er. Stundum
er ekki hægt að hreinsa vatnið
betur en svo, að það er aðeins not-
hæft til iðnaðar. Drykkjarvatn
verður að vera algjörlega hreint
og af því má ekki vera neitt ó-
venjulegt bragð. í vatnshreinsunar
stöðinni Max Planck við Rín eru
hafnar tilraunir, sem lofa góðu í
hreinsun vatns. Vatnið er látið
renna í gegnum marhálm, þar sem
hann stöðvar alla aðskotahluti í
vatninu og heldur við súrefni í
vatninu. f tilraunum, sem gerðar
voru á marhálmsfræum, voru þau
vökvnð með vatni, sem innihélt
Dhenol (carbolsýru), til þess að
koma=t að áhrifum þess á vöxt
nlöntunnar. Þó að aðeins lítið af
nVionni sé í vatni, kemur af því
hræðilegt bragð. En svo virtist
-nm marhálmsfræin þyldu vel phe
nolið og þau virtust vaxa enn bet-
”r Á aðeins fáum dögum tekur
hálmurinn í sig allmikið af phe-
nol og fer það út í plöntuvefina.
Það, sem eftir er af efninu klofnar,
og mestur hluti þess fer út í and-
rúmsloftið í gegnum smáop á yfir-
borði hálmsins. Jafnframt kemur
súrefni í gegnum þessi op og bland
ast vatninu. Á hverjum fersenti-
metra á yfirborði plöntunnar eru
um 22.500 slík smáop, og er því
skiljanlegt mikilvægi þessar efna- :
breytingar. Á aðeins átta dögum,
klofna þannig 100 milligröm af
phenol í hverjum lítra af vatni.
Einnig var rannsakað, hve langan
tíma það tekur, að marhálmurinn
hreinsi aðskotahluti úr vatninu. Á
aðeins 10 dögum fækkaði coli bakt
eríum í hverjum cubiksentimetra
af vatni úr 44 milljónum niður í
50. í vatni, sem ekki var hreinsað
moð marhálmi, fækkaði colibakt-
eríum aðeins um helming, eða nið
nr í 20 mPlíónir á sama tíma. Mar
hálmu.ninn hefur1 einnip reynzt
gagnlegur á öðrum sviðum. Oft vill
setjast á botnin.n á vatnsbólum sem
dautt og rotnað gras og iurtir
slv o<? mefs tímanum hindra að
vatuið reuuí pðlilega. En í mar-
hálmi er 75% loft og þegar hann
fiúc.ir á vfirborðinu er hægt að
slæða haun ofan af öðru hvoru.
Rannsókniu með marhálminn virð-
ast hafa gefið góða raun. 400 cu-
bicmetrar af vatni eru hreinsaðir
á klukkustund með þessari aðferð.
Og í Be;iín hefur nú verið plantað
70,000 marhálmsplöntum til þess
að nota til vatnshreinsunar.
NIÐURSUÐUVORUR
GEYMDAR NEÐANSJÁVAR
Hvaö finnst ykkur
Niðursoðinn fiskur er ætur, eftir
að hafa verið neðansjávar í eitt
ár. — Þetta er niðurstaða rann-
sóknar á niðursuðuvörum. Nokkur
hundruð dósum með niðursoðn-
um fiski var sökkt í höfninni í
Kiel í Þýzkalandi í september 1964.
Ári seinna voru svo dósirnar tekn-
ar upp aftur, og eftir að innihald-
ið hafði verið rannsakað gaum-
gæfilega kom í Ijós, að í þeim
dósum, sem rannsakaðar voru,
hafði innihaldið haldizt óskemmt.
Sumar dósanna höfðu skemmzt af
utanaðkomandi áhrifum og inni-
hald þeirra var ekki rannsakað.
En þær höfðu allar skemmzt áður
en þær komu í rjóinn og var af því
dregin sú niðurstaða, að venju-
legar aluminíumdósir, sem notaðar
eru fyrir niðursuðuvörur geti
geymzt langan tíma í sjó, ef að
dósirnar skemmist ekki eða beygl
ist áður en þær eru látnar peðan
«jávar. Möguleiki væri að geyma
Hræðilegt! segja víst sumir, þegar þeir sjá þessa mynd af nýju
jélatízkunni, þessir kjólar eru með því allra styzta. sem sést hef-
matvæli í istórum stíl á ýmsum . ur frá tízkufrömuðunum enn sem komið er. En, hvað um það, áreið
stöðum neðansjávar, og yrðu dós- anlega líður ekki á löngu. þar til ungu stúlkurnar liér verða komn-
irnar þar ekki fyrir geislun. ar á svipaða kjoia
Neitar ábyrgð á thalidomid
Sænska lyfjafyrirtækið Astra,
lýsti því yfir í síðustu viku, að fé-
lagið myndi ekki af frjálsum vilja
greiða bætur þeim börnum, sem
fæddust vansköpuð, vegna þess að
móðirin hafði tekið inn róandi lyf-
ið, thalidomid. Mál hefur verið
höfðað gegn félaginu, eins og fyrr
hefur verið skýrt frá, vegna hins
fjögurra ára gamla Rolf Lager, er
fæddist útlimalaus, en málið verð
ur ekki tekið fyrir aftur fyrr en
: marz. Astra hefur skýrt frá; að
ekki hafi verið hægt að sjáífvrir að
thalidomid myndi hafa skaðvænleg
áhrif á fóstur og að fyrirtækið geti
því ekki talizt bera ábyrgð á van-
sköpun barnanna. Fyrirtækið við-
urkennir þó, að börnin þurfi að-
stoðar við, en segir, að í slíku til-
felli, þar sem enginn beri ábyrgð-
ina, verði hið opinbera að hlaupa
undir bagga. Málaferlunum verður
fylgt með miklum áhuga í mörg-
um löndum, þar sem þetta er
fyrsta málshöfðun gegn lyfjafyrir-
tæki, sem hefur framleitt thali-
domid. Sækjandi gegn Astra, Henn
ing Sjöström, hefur gagnrýnt fyr-
irtækið mjög, og bent á, að lyfið
. hafi ekki verið nægilega rannsak-
: að, áður en það var sett á markað-
I inn. Astra hefur mótmælt þessu og
j sagt að framburður Sjöströms sé
| í mörgum atriðum rangur og vill-
andi.
□ Nýtt fjarritakerfi hefup ver-
ið fundið upp. Með aðstoð þess var
nýverið send frétt frá París til
Washington með um þúsund orð-
um á mínútu. Það er 20 sinnum
hraðara en venjulegur fjarritari
getur skrifað.