Alþýðublaðið - 03.03.1966, Qupperneq 9
HVERSU ríkur er páfinn? Þetta
er spurning, sem fáir af hinum
550 milljón áhangendum hans
hafa nokkru sinni hugleitt. En nú
veldur þessi spurning miklum
höfuðverk í Vatikaninu. Skatt-
heimtumaðurinn knýr um þessar
mundir á hinar miklu bronzdyr.
Enn sem komið er, hefur hann
barið laust og gætilega, og verð-
irnir reyna að láta sem þeir heyri
ekki. En korni ítalskir sósíalistar
sínu fram innan fallvaltra og
skammlífra ríkisstjórna Ítalíu, má
búast við að margt fari úr skorð-
um í þessari taugamiðstöð hins
rómversk-kaþólska heims.
Kunnur enskur blaðamaður
hefur reynt að kynna sér hverjar
væru eignir Vatikansins og hefur
tekizt að fá eins skýra mynd af
hinu geysi volduga auðmagns-
heimsveldi og nokkur útlending-
ur getur vænzt.
Ólíkt öðrum trúarstofnunum
hefur páfadæmið haldið leyndum
efnaliag sínum, bæði tekjum og
útgjöldum. Haft er eftir miðaldra
kardínála, að ef auðurinn virtist
úr hófi, mundi fólk lýsa vand-
lætingu sinni, en væri fátæktin
þeirra fylgikona, mundi virðingin
glatast.
Þannig er því Valikanið eina
fullvalda ríki heimsins, sem al-
drei leggur fram fjárhagsáætlun
eða ríkisreikninga. Páfar, sem eru
algjörlega einráðir, svara engum
til ábyrgðar.
í gamla daga eyddu þeir auð-
æfunum aðallega í lystisemdir og
kaup á höllum. Á síðari tímum
hafa nokkrir þeirra verið óhemju
gjafmildir. Kunnastur þcirra er
Benedict XV., sem ætíð hafði við
hendina fulla skúffu af peningum
til að deila gestum sínum. Þegar
hann dó rétt eftir fyrri heims-
styrjöldina, var Vatikanið gjakl-
þrota.
Til allrar hamingju var hjálpin
ekki langt undan. Vegna pólitískr-
ar uppgjafar gagnvart Mussolini
hlotnaðist páfadæminu 18 millj-
ónir punda.
Þessum auðfengna auði var veitt
inn i vaxandi iðnfyrirtæki á ítal-
íu. Þrír frændur Píusar páfa XII.
tóku síðan að sér að gæta hags-
muna hans með þátttöku í stjórn-
um hinna leiðandi iðnfyrirtækja.
í dag á Vatikanið stóran hluta
í arðbærum fasteignum, bygging-
arfélögum, flugfélögum, efnaverk-
smiðjum, flutningafyrirtækjum,
útvarpi og sjónvarpi. Vatikanið á
jafn vel sinn eigin banka, sem
ber hið virðulega beiti: ,,Banki
Heilags Anda.”
Talið er að fjármagnseign páfa-
stólsins sé einn fimmti af öllu
hlutafjármagni Ítalíu. Mikið af
eignum þess er í öðrum löndum
t. d. í Bandaríkjunum og í Kan-
ada, og þær hafa vaxið gífurlega
frá stríðslokum.
,,Við erum nú þegar miklu auð-
ugri en Ford Motors, Shell og
Bethlehem Steel samanlagt,”
sagði bandarískur preláti.
„Við eigum í fasteignum sjón-
varpsstöðvum, iðnaði og hótelum.
Sumir voru undrandi, þegar páf-
inn flutti messu á Yánkee Stadi-
um. Þeir vissu ekki, að við eigum
það líka.”
Sú saga er sögð, að á dómsdegi
hafi Spellmann kardínáli leitað
að sæti sínu í himnaríki. Sánkti
Pétur yggldi sig, þegar hann sá
hvar kardínálinn hugðist setjast,
og sagði: „Afsakið, yðar hágöfgi,
en' ég hafði ætlað yður sæti á
meðal verðbréfasalanna.”
Sá, sem berst harðast gegn for-
réttindum páfastólsins, er hinn
vinstri sinnaði Pietro Nenni, sem
meðal annars hefur sagt: „Krafizt
er fórna af verkamönnum, en
páfanum,. sem á óliemju auðæfi,
eru gefnar milljónir í viðbót.”
Aldo Moro, forsætisráðherra,
reyndi málamiðlun og bað Vati-
kanið nm sundurliðaðan lista yfir
eignir þess, en beiðni hans var
hafnað.
„Að páfinn stendur á sínum
rétti,” var bonum sagt, „er ekki
vegna þess, að hann safni auði
sjálfum sér til handa. Hann safn-
ar aðeins í þeim tilgangi- að gefa.
lúknarmál okkar eru óteljandi og
kirkjulegar skuldbindingar mikl-
ar.”
Mál þetta er mjög flókið og
varidséð hvernig það verður til
lykta leitt, þannig, að allir geti vel
við unað. Ef stjórnarvöldin ætla
að beita hörðu getur páfastóllinn
selt öll hin itölsku hlutabréf sín.
Það mundi valda algjöru markaðs
hruni og jafnframt fella rikis-
stjórnina. Vatikanið stæði hins
vegar með pálmann í liöndunum
vegna hinna miklu eigna þess er-
lendis.
Ágizkanir manna um eignir
páfastóls eru mjög á reiki, en
fjármálamenn á Ítalíu telja þær
ekki geta farið undir 2000 millj-
ónir sterlingspunda að verðmæti.
Þessi summa er meira en nægi-
leg til að gera páfa að stærsta
hlutafjáreiganda í heimi.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 34. Sími 13-100.
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðma með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásvegi 18. Sími 30945.
Erum fluttir
SKRIFSTOFA OKKAR ER FLUTT
AÐ HVERFISGÖTU 76.
Heildverzlun
Uverfisgötu 76 — Sími 16462.
STARFSSTÚLKA
■ A
óskast að Farsóttahúsinu í Reykjavík.
Upplýsingar gefur forstöðukonan í síma
14015 frá kl. 9 — 16.
Reykjavík. 2. 3. 1966 . :
Sj úkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Borgarspítallnn
í Reykjavík óskar að ráða tvo sérmenntaða iðjuþjálfa
(Occupational Terapists). Laun samkv. 16. launafl. op-
inberra starfsmanna. Umsóknir um störf þessr, ásaipt
upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist skrif-
stofu Sjúkrahúsnefndar Reykjavíkur Heilsuverndar-
stöðinni, Barónsstíg 47 Reykjavík.
Reykjavík. 2. 3. 1966
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
LAUST STARF
Síldarútvegsnefnd hefur ákveðið að ráða
fulltrúa til skrifstofustarfa með aðsetri á
Austurlandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, j
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu
Síldarútvegsnefndar á Siglufirði eða
Reykjavík fyrir 10. marz 1966.
Síldarútvegsnefnd.
VÉLSTJÖRI
Áburðarverksmiðjan h.f. þarf að ráða vél-
stjóra vegna sumarfríaafleysinga frá 1.
júní til 15. sepetmber 1966. Það skilyrði
er sett um menntun að viðkomandi hafi
próf úr Rafmagnsdeild Vélskólans í Reykja
vík. Laun samkvæmt kjarasamningi við
Vélstjórafélag íslands. Umsóknir ásamt
upplýsingum um fyrri störf sendist Áburð-
arverksmiðjunni h.f., Gufunesi fyrir 20.
marz 1966.
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN H.F.
\
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. marz 1366 9