Alþýðublaðið - 03.03.1966, Qupperneq 10
Sukarno
Framhald af 7. siðu.
og 28 ára gamall varð hann hers-
höfðingi.
Hann bældi niður uppreisn,
kommúnista á Jövu með harðri
hendi og varð því næst forseti
herráðsins. Sem slíkur tók hann
þátt í viðræðum þeim í Haag er
leiddu til þess að Indónesía hlaut
sjálfstæði. í byltingartilraun
kommúnista 30. september í fyrra
var Nasution sá maður, sem bylt
ingamenn lögðu mesta áherzlu á
að koma fyrir kattarnef. Nasution
bjargaði lífi sinu með naumind-
um með því að stökkva yfir múr-
yegg er umlykur garðinn kring-
Um hús hans. Fimm ára dóttir
hans, Erma, var myrt.
Á undanförnum mánuðum hef
ur Nasution verið áðalforkólfur
baráttunnar gegn kommúnistum
i Indónesíu. Þessi barátta hefur
leitt til þess, að a.m.k. 100 þús.
kommúnistar hafa verið myrtir.
★ JAFNVÆGI
Á næstu vikum kemur í ljós,
hvort bannið á starfsemi komm-
únistaflokksins verður áfram við
lýði eða hvort Sukarno hverfur
aftur til sinnar gömlu stefnu til
þecs að endurheimta völd sín.
Þessi stefna kallast „Nasakom”,
Dg áður en iafnvægið í indónes-
ískum stiórnmálum raskaðist í
Iseþtember-byltingunni fólst hún i
því, að Sukarno revndi að halda
jafnvægi milli þjóðernis^inna,
Múhameðstrúarmanna og komm-
únista. Þá á eftir að koma í ljós
hvort Sukarno reynir að trevsta
v;öld sín með því að stofna nýian
eininearflokk. ..Barisan Sukarno”
(Sukarno-fvlkingin), eins og hann
heftjr gefið í skyn.
En Sukarno er engan veginn
traustur í sessi. Einnig á eftir að
koma í )ió- hvort Nasjition og
hinir valdamiklu stuðningsmenn
hans í hemum sætta sig við að
vera bolað frá völdum. En ef þeir
ætla að láta til skarar skríða á
ný verða þeir að hafa hraðann
á. Sukarno hefur enn sýnt, að
hann er maður sem „skýtur fyrst
og semur á eftir”.
Frímerki
Framhald af 7. síffu.
ar í fangi sér, finnst honum tvær
klukkst. jafngilda einni mínútu.
— Sitji hann hins vegar á brenn
heitum ofni, finnst honum ein
mínúta jafngilda tveim klukkust.!
Aratuginn eftir heimsstyrjöld-
ina dró Einstein sig nokkuð út
úr skarkala heimsins og lifði kyrr
látu lífi. Hann hafði yndi af klass
ískri tónlist og lék sjálfur vel á
fiðlu. Hann andaðist 18. apríl 19
55. Með kenningum sínum og upp
götvunum heöæ Einstein skiltð
mannkyninu eftir mikla ábyrgff
og einnig stóra gjöf — ef meiln
irnir reynast því vaxnir að nota
sér hana til hagsældar.
Eins og áður er sagt, kemur
þetta minningarfrímerki út á af
mælisdegi Alberts Einsteins 14.
marz n.k. Það er rautt að lit, en
um upplag þess er ekki getið
Hannes á horninu
Framhald af 4. siðu.
EN ÞRÁTT FYRIR góða af-
komu allra, sem þessar veiðar
hafa stundað og stunda áfram,
hvílir sá skuggi yfir, að verið
gæti að ofveiði ætti sér stað, ef
veiði þessi verður stunduð fram
vegis í enn ríkari mæli, á fleiri
skipum og með meiri afsetnings
möguleikum, sem gera má ráð fyr
ir, þar sem heyrst hefir að S.R.
ætli að kaupa 2 síldarflutninga
skip. En meðal annaira orða: Ætli
hefði nokkuð verið á móti því að
S.R. hefði nú þegar átt þessi flutn
ingaskip og fært t.d. verksmiðj
* BILLINN
Rent an Icecar
sími 1 8 8 33
Fylgizt þér
vel með?
Hver sá sem viil fylgjast með viðburðum dagslns, fnnan
lands og utan, verður að lesa fieiri en «ftt dagblað.
A L ÞÝÐU B LA Ð1Ð fiytur ftarlegar fréttlr, b*ðf fnn-
lendar og erlendar, póltískar greinar, ailskonar fróðfeik,
©g skemmtiefnf.
HVERFiSGÖTU 8—10
SÍMl 14900 - REYKJAVÍK
unni á Skagaströnd nokkra farma
til að hressa upp á atvinnu þar?
PAB SEM KOM mér til að taka
þetta mál til meðferðar í dálk
um þínum Hannes minn, var að
minna á þá hættu sem af ofveiði
þessa litla fisks getur stafar .Og
bezt er strax i upphafi að setja
rannsóknir í gang, sem gætu ef til
vill gefið bendingar um, hvort hér
er alvarleg hætta á ferðum.
GEGNDARLAUS ÞORSKANETA
VEIÐI á aðalhrygningarsvæðun-
um, er nú þegar búin að valda
ófyr.irsjáanlegu tjóni. Sama er að
segja um eyðingu S.-landssíldar
innar vegna óhóflegrar veiði smá
síldarinnar. Það væri því ekki að
ófyrirsynju að hrygningarsvæði,
viðkoma loðnunnar og gangur
hennar, væri strax athugað allt
og fleira í því sambandi, af okk
ar sprenglæ-rðu fiskifræðingum.
Eða eigum við að fljóta sofandi að
feigðarósi, eins og gert hefur ver
ið í sambandi við þorskanetaveið
arnar.“
Wilson
Framhald úr opnu.
Til þessa hefur Heath ekki feng
ið orð á sig fyrir að vera traustur
og einarður leiðtogi. Mikill klofn
ingur ríkir í flokknum vegna Rhod
esíudeilunnar og nokkrir íhalds
menn hafa ekki laet dul á óánægju
sína með forysíu Hcaths.
En| Healh hefur orðið fyrfr
barðinu á atburðum, sem hann gat
ekki gert að. Aðeins fáeinum dög
um eftir að hann tók við foryst
unni í flokknum hófst hið langa
sumarleyfi þingmanna, sem er
dauður tími í brezkum stjórnmál
um. Síðan hófst Rhodesíudeilan
í haust og Heath átti fullt í fangi
rtteð að varðlveitfe cini.nguna i
fiokknum. Báðir þessir atburðir
torvelduðu honum tilraunir til að
treysta sig í sessi og vekja at-
hygli á árásum sínum á ýmsar hlið
ar stjórnarstefnunnar, en árásir
hans beindust einkum að verð-
hækkunúm.
Kjósendur hljóta enn að vera í
vafa um hvort þingmenn íhalds
flokksins hafi farið rétt að, er
þeir völdu Heath leiðtoga flokks
tns eo ckki Rcginald Maudling, j
skæðasta keppinaut hans. j
Heath tók við forystunni í flokkn J
um í þann mund er flokkurinn :
átti við mikla erfiðleika að etja
og varð að laga sig að breyttum
aðstæðum eftir kosningaósigur-
inn í október 1964. íhaldsmenn
kenndu Sir Alec Douglas-Home
að nokkru leyti um ósigurinn, og
þeir voru staðráðnir í að kjósa
í hans stað ungan og dugmeiri
leiðtoga til að segja skilið við
gamlar venjur.
Edward Heath, sem er 49 ára
gamall og ókvæntur, er yngsti
leiðtogi íhaldsmanna á síðari tjm
um. Hann er af miðstéttarfólki
kominn, en flestir fyrri leiðtoga
ihaldsmanna hafa verið úr auð-
manna- eða aðalsmannastéttum.
Heath er staðráðinn í að gera
róttækar breytingar á stefnu í-
haldsflokksins, og hefur þegar kom
ið nokkrum slíkum breytingum til
leiðar. Þessar breytingar eru liður
í áætlun til langs tíma er miðar að
því að auðvelda hugsanlega inn
göngu Bretlands í Efnahagsbanda
lagið.
SKARPAR
GEVAPAN IFILMUR
(GEVAERTj
GEVAPAN
GEFA
BEZTAR
MYNDIR
GEVAPAN
NOTIÐ
| FILMUR
AGFA-GEVAERT
RÖSKUR SENDILL
Óskast til innheimtustarfa
strax
Alþýðubiaðið
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja undirstöður, stokka o. fl.
fyrir tvo vatns'geyma Hitaveitu Reykjavíkur, sem reistir
verða á Öskjulhl'íð.
Útboðsgögn eru af'hent í skritfstofu vorri, Vonanstræti
8, gegn 2000 króna skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR.
10 3. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ