Alþýðublaðið - 14.04.1966, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 14.04.1966, Qupperneq 3
Brynjar Pétursson Kristinn Lárusson Sigurður Guöjónsson Elías Guðmundsson Björgúlfur Þorvarðsson Arthúr Sumarliðason Ólafur Gunnlaugsson Sigurjón Jóhannesson Hjalti Jónsson Sveinn Einarsson 1 ALÞÝBUBLABIÐ 14. apríl 1966 Bátar komust ekki á sjó vegna inflúensunnar Vestmannaeyjar, ES — GbG. VertíSin hefur verið léleg til þessa. Að venju létu menn sér detta í hug að páskahrotan bætti þetta allt saman upp, en einnig páskahrotan brást í þetta sinn. Vinna er þó næg ,en eftirvinna engin. Nokkuð hefur aðkomufólki fækkað upp á síðkastið. Vegna in flúenzu hafa nokkrir bátar ekki komizt á sjó undanfarna daga. Eins og kunnugt er, er knatt- FLEIRISJÖMANNASTOF- UM VERÐI KOMIÐ Á FÓT Reykjavík, — EG. — Alþingi ályktar að fela ríkis stjórninni að vinna að bættri að búð síldarsjómanna í helztu lönd unarhöfnum, sérstaklega með því að koma á fót sjómannastofum, Bvo og að greiða fyrir bókaláni til síldarveiðiskipa. — Þannig hljóðar þingsályktunartillaga um bætta að búð síldarsjómanna. sem Benedikt Gröndal mælti fyrir í sameinuðu þingi en meðflutningsmaður hans að tillögunni er Sigurður Ingimund arson. Benedikt minnti á, að Sjómanna félag Reykjavikur hefði nýlega rætt um þetta mál og gert um það ályktun, þar sem skorað var á heildarsamtök siómanna að beita sér fyrlr því. að komið verði upp sjómannastofum i stærstu síldar móttökuhöfnum á Austurlandi svo og í Vestm.eyjum. Hann minnti einnig á að Farmanna- og fiski mannasamband íslnds hefði einn ig rætt þetta mál á 22. þingi sínu. en þingið taldi brýna nauðsyn þess að koma upp sjómannastofum þar sem sjómenn gætu fengið sama stað til að lesa og skrifa og gætu notið annarrar fyrirgreiðslu. Bene dikt sagði, að lokum, að ætla mætti að ým ar ráðstafanir mætti gera til að koma til móts við sjó- menn án þess að það kostaði stór fé eða nýjar byggingar. Hann benti á að sums staðar réði ríkið yfir húcnæði, sem nota mætti og eins mætti athuga hvort ekki mætit hafa einhver not af félagsheimil unum í þessu skyni. Tillögunni var vísað til nefndar og umræðunni frestað. spyrnuáhugi mikill i Eyjum. Und anfama tvo mánuði hefur starfað þar tékkneskur þjálfari á vegum Týs. Kvennaflokkar halda uppi stöðugum æfingum í handbolta. Nokkuð bar á óspektum ungl inga á páskadagskvöld. Virðist svo sem óyndi unglinganna eigi sér þær orsakir, að þeim finnist lítið fyrir þá gert af hálfu bæjaryfir valda hv(að snertir aBstöðu til heilbrigðs skemmtanahalds. Eink- um er þetta áberandi um hátíðar þegar kvikmyndahúsin eru lokuð Gerðu unglingarnir háværar kröf ur um byggingu æskulýðsheimilis. Blaðið væntir þess að geta siðar varpað betra ljósi á þessi mál. Rækjuvertíð- mni að Ijúka ísafjörður, BS — GbG. Á ísafirði hefur verið indælis veður að undanförnu og hlánað mikið. Fært er á bílum um allt nágrennið, en heiðarnar eru lok- aðar ennþá. Vertíðin hefur verið ágæt, eink um hefur rækjuveiðin verið góð. Fer nú að líða að lokum rækjuver- tíðarinnar. Fjöldi aðkomufólks setti svip á páskahátíðina á ísafirði, einkum í sambandi við skíðamótið, eins og frá var sagt í blaðinu jí gær. Fjöl- breyttar skemmtanir \|>ru haldnar Framhald i 14. siðn. WMWHWWWWMMWWHHWWWMVVMWWWWVMW Spilakvöld í Reykjavík ALÞÝDUFLOKKSFÉLAG Reykjavíkur heldur síðasta spiku- kvöld vetrcrins annað kvöld (föstudag) kl. 8,30 i Iðnó. Afhent verða heildarverðlaun fyrir 3ja kvölda keppnina, auk ve ijur legra kvöldverðlauna. Einnig verður afhentur viningurinn i happdrættinu, sem þegar hefur verið dregið í. Ef vinningsnúm- erið kemw; ekki fram, verður dregið aftur. Ávarp kvölddns i kfiytur að þessu sinni Jóhanna Sigurðardóttir, flugfreyja. il mHHHHVHVWWVMHHWWHHWHHMWHHVHWHWiHVW VERTÍÐIN HEFUR GENG3Ð VEL VIÐ SUGANDAFJÖRÐ Suðureyri, GÓ — GbG. í því athafnasama fiskiþorpi við Súgandafjörð hefur á síðustu ár um verið byggð stór og mikil höfn, eins og mörgum er kunnugt. En þetta mannvirki er hvergi nærri fullbúið og veldur það miklum ó- þægindum fyrir vertíðarbátana, sem nú eru 7 talsins. Vertíðin hefur gengið vel og mik ið veiðst af steinbít að undanförnu Vinna er mikil og taka allir, sem vettlingi geta valdið, virkan þátt í framleiðslunni. Þrátt fyrir mikla vinnu reyna Súgfirðingar að halda uppi nokk- úrri félagsstarfssemi. Leikfélagið hefur t.d. sýnt leikritið „Allt fyrir Maríu” nokkrum sinnum í plássinu og auk þess farið í leikför til Flat- eyrar, ísafjarðar og Bolungavíkur. Helztu hlutverk skipuðu Páll J. Þórðarson, Jón Kristjánsson og Sigrún Sturludóttir. Það er Súgfirðingum mikill raunaléttir, að hafa nú sinn gamla lækni aftur í plássinu, en það var læknislaust um tíma. Hinsvegar eru þeir ekki eins ánægðir með skólamálin, enda þótt þeir eigl nýjan og myndarlegan skóla. Það væri til dæmis mikil bót, að fá unglingadeild við skólann, i stað þess að þurfa að senda unglingana í önnur byggðarlög til framhalds- náms. • Framboðslisfi A/þýðuflokksins í Miðneshreppi FB 4MBOÐSLISTI Alþýðuflokksins í Miðneshreppi hefur verið ákveðinn og er hann þannig skipaður: 1. Brynjar Pétursson, verkstjóri Hlíðargötu 18 2. F.ristinn Lárusson, hafnarvörður, Suðurgötu 30 3. Sigurður Guðjónsson, húsasmiður, Bárugerði 4. Elias Guðmundsson, vigtarmaður, Hraungerði 5. B.iörgúlfur Þorvarðsson, kennari, Suðurgötu 38 6. Arthúr Sumarliðason, verkstjóri, Felli 7. ólafur Gunnlaugsson, trésmiður, Hlíðargötu 31 8. Sigurjón Jóhannesson, bifreiðastjóri, Hlíðargötu 27 9. Hjalti Jónsson, verkamaður, Vallargötu 6 10. Sveinn Einarsson, verkamaður, Hólshúsum. Sýslunefndarmenn: Aðaimaður: Páll Gunnarsson, skipstjóri, Gunnarshólma Varamaður: Eiríkur Eyleifsson, bóndi, Nýlendu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.