Alþýðublaðið - 14.04.1966, Side 15

Alþýðublaðið - 14.04.1966, Side 15
Mafrádskona óskast að Dagheimili Kópavogs, við Há- braut, frá 1. maí n.k. Umsóknir berist forstöðukonu heimilisins, Guðrúnu Erlu Björgvinsdóttur, fyrir 25. þ.m Forstöðukonan veitir allar nánar upplýs- ingar um starfið, og er til viðtals á Dag- heimilinu alla virka daga frá kl. 10 — 12 f.h. Síldarsaltendur Við munum hafa á boðstólum fyrir komandi síldarvertíð, okkar alkunnu aluminíum tunnuliringi, sem hafa þegar margsannað gildi sitt. Vinsamlegast sendið okkur pantanir yðar sem fyrst. AlyminBum- og blikksmiðjan h.f. Súðarvogi 42 — Símar: 33566 og 11225. Vatnsþétt Höggvarið Óbrjótanleg gangfjöður Sjálfvinda Dagatal Sendum gegn póstkröfu. Magnús Benjamínsson & Co. ÚRSMIÐUR Veltusundi 3. Sími 13014. Sameiginlegur fundur Alþýðuflokks- félaganna í Keflavík verður haldinn fimmtudaginn 14. apríl n.k. í Æskulýðsheimilinu og hefst kl. 8,30 s.d. Fundarefni: Tekin ákvörðun um framboð Alþýðuflokksins til bæjar- stjórnarkosninga. Annað: Bæjarmál. Alþýðuflokks félögin í Keflavík. . Trúflokkar Framh af l síBu. fulltrúa á ráðstefnuna þar sem þar hafi verið uppi háværar kröf ur um kosningar á næstunni. Ka þólskir menn, er andvígir voru ráðstefnunni, munu einnig vera fúsir að senda fulltrúa á loka fundinn. Heimildirnar herma, að 92 full trúar, sem sækja ráð^tefnuna, hafi í dag náð óformlegu samkomu lagi um að fara þess á leit við stjórnina að efna til þingkosn inga innan sex mánaða. Ky for sætisráðherra, sem mun vera sannfærður um að kröfur stjórn arandstæðinga verði ckk; stjórn hans að falli. hefur í kyrrbey kvatt heila herdeild til höfuðborgarinn ar. Tiltölulega kyrrt var í bæj unum Hué og Da Nang í dag eft ir hinar löngu mótmælaaðgerðir Vfirmaður herliðsins þar. Ton hershöfðingi. kvað ástandið í Da Nang betra en bað hefði verið undanfarinn mánuð. Bandarisk bota var skotin til jarðar yfir Norður-Vietnam í gær. og var þetta 14. bandaríska botari sem skotin hefur verið niður með sovézku flugskeyti síðan í júní í fyrra. Mugia--karðið nálægt landa mærum Laos sem Norður Viet námmenn hafa notað til að senda liðsafla og vistir til Suður-Viet nam hefur verið lokað síðan B- 52 þota sleppti þar niður 900 lest um af sprengium á þriðjudaginn. Dýrkun Framhald af 2. síðu lofsamlegum orðum um forseta sinn Margir hinna innfæddu hafa síðan neitað að taka þátt 1 kosn- ingum á eynni þar sem nafn John- son forseta er ekki á atkvæðaseðl unum. Rúmlega 500 hafa verið handteknir fyrir vanskil á skatt greiðslum. Johnsons-dýrkunin hef- ur einnig lýst sér í skorti á vinnu áhuga. Yfirvöldin hafa ekki getað haml að gegn þessari furðulegu dýrkun, en nú á að gera nýja tilraun og verða skrautklæddir hermenn og sekkjapípuMjómsveit þeirra notað ar í því skyni. Yfirvaldið á eynni leggur hins vegar áherzlu á, að til- gangurinn sé ekki að kúga hina trúuðu heldur aðeins að „sýna fánann”. New Hanover hefur al- drei fengið heimsókn hermanna. Auglýsing frá Bifreiðastjörafélaginu Frama varöandi GJaldmæla Vegna óstöðugs verðlags undanfarin ár hafa orðið nokkuð örar aksturtaxtabreytingar hjá leigubifreiðum, sem hefir haft það i för með sér að ógerlegt hefir reynzt að breyta gjaldmælum í leigubifreiðum hverju sinni, þannig að þeir sýndu raunverulegt aksturs- gjald á hverjum tíma. Til að ganga úr skugga um, hvort fáanlegir væru gjaldmæl- ar í leigubifreiðir, sem fljótvirkara væri að breyta, en þeim mælum, sem nú eru notað- ir, þá leyfum vér oss hér með að leita til allra þeirra, sem möguleika hafa á útveg- un gjaldmæla í leigubifreiðir, að láta félagi voru í té vitneskju þar um, og jafnframt um verð og breytingahæfni þeirra. — Þeim sem kynnu að óska eftir nánari upplýsingum varðandi mál þetta, verða veittar þær í skrifstofu félagsins. Umbeðnum upplýsingum óskast skilað 1 skrifstofu Bifreiðastjörafélagsins Frama, Freyjugötu 26, fyrir 15. maí n.k. Heykjavík, 13. apríl 1966, Bifreiðastjórafélagið Frami. c* ÚTBOÐ Óskað er eftir tilboðum í sölu á götuljósa- búnaði fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Útboðslýsingar eru afhentar í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. aprtl 1966 15

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.