Alþýðublaðið - 20.04.1966, Page 2

Alþýðublaðið - 20.04.1966, Page 2
pimgfW»*t.ir [Persónlegar kunningsskapur mikils virði sidastlidna nótt SAIGON: Bandaríkjamenn hafa hert til muna á loftárásum isínum á Norfiur-Víetnam og ráðizt á orkuver í nánd við Hanoi í fyrsta si-nn það sem af er þessu ári. Ráðizt var á Uong Bi-orku verið, sem er 22 km norðvestur af hafnarborginni Haiphong og 50 km frá Hanoi í fyrrakvöld. , BONN: Þrigrgja manna ncfndin, sem Bandaríkin, Bret- land og Vestur-Þj’zkaland skipuðu til að rannsaka vandamál sem ákvörðun Frakka um að draga sig út úr hernaðarsamvinnunni innan NATO hefur í för með sér, hélt fyrsta fund sinn í Bonn í dag. Nefndina skipa George McGhee, sendiherra Bandarikj- anna í Bonn, hinn brezki embættisbróðir hans. Sir Frank Ko- byrts, og Karl Carstens, ráðuneytisstjóri í vestur-þýzka utan- ríkisráðuneytinu, og mun nefndin halda reglubundna fundi i fnamtíðinni. .Tafnframt ræddi Scliröder utanríkisráðhcrra við for sætisráðherra og utanrikisráðherra Bclgiu, sem eru í heimsókn í Bonn. NEW YÖRÍK: Ellefu hlutlaus ríki fóru ‘þess á leit við Örygg isyáðið í gær að það gripi til aðgerða, ef til vill valdbeitingar, til að víkja stjórn minnihlutans í Rhodesíu frá völdunum. í ályktunartillögu, sem lögð var fram í nýlendumálanefnd SÞ, ségir, að ráðstafanir Breta hafi reynzt ófullnægjandi. TAIPEH: Blaðið „Chen Hsin“ á Formósu birti í dag frétt fró fréttaritara sínum í Hongkong þess efnis, að leiðtogi kínverska ikðmmúnistaflokksins, Mao Tse-tung hafi legið á Fu Yang-sjúkra húsi í Peking síðan í desember. Mao hefur ekki sézt opinber- léga síðan 2‘J. nóvember í fyrra. i l PARÍS: Franska stjórnin hefur fallizt á að athuga tillögu íens Otto Krags, forsætisráðherra Dana, um tvihliða samninga- Viðræður um verzlunarmál, segir í tilkynningu sem gefin var út éítir viðræður Krags við Pompidou forsætisráðherra í gær. í fiíkynningunni segir, að Krag geri sér grein fyrir erfiðleikun örti á útflutningi Dana til EBE-landanna vegna skiptingar Evrópu i tvö efnahagsbandalög. , STOKKHÓLMI: Kosygin, forsætisráðherra Rússa, hefur frest- að Svíþjóðarheimsókn sinni um 14 daga., Heimsóknin hefst 18. júlí og stendur í viku. DONDON: Edvvard Heath, leiðtogi íhaldsmanna, fækkaði í gær meðlimum „skuggaráðuneytis" síns úr 21 í 17 og vék nokkr um fyrrverandi leiðtogum þar sem þeir biðu ósigur í kjördæm- um sínum í kosningunum. Reginald verður áfram varaleiðtogi Og auk þess formælandi í samveldismálum. Sir Alec Douglas- IHome verður formælandi í utanríkismálum. Quintin Hogg verð iir formælandi í innanrikismálum, Selwyn Lloyd, Duncan Sandys, Ernest Marples, John Boyd-Carpenter og Dilhorzie lávarður víkja úr ráðuneytinu. s A'NKARA: Sex stúdentar voru handteknir í Ankara í gær vegna mótmælaaðgerða gegn Bandaríkjamönnum, skömmu áður •«n Rusk utanríkisráðherra kom til borgarinnar að sitja • ráð Iterrafund CENTO. PARÍS: Franski kommúnistaflokkurinn lýsti yfir því í gær, að hann styddi ekki vantrauststillögu jafnaðarmanna gegn stjórn 4nni vegna ákvörðunar hennar um að draga franskar her.sveij.ir undan yfirsfjórn NATO. Vonlaust er því, að vantraustið verði samþykkt. HELSINGFORS: Finnski jafnaðarmannaleiðtoginn Tanner lézt í fyrrinótt í Helsingfors, 85 ára að aldri. Lög verði sett um listamannalaunin Reykjavík. — EG. LÖGÐ var jrarn á Alþingi í gær þingsályktunartillaga um undir- búning löggjafar um listamanna- laun og er hún flutt af þingmönn- tnri úr öllum flokkum. Tillagan er svóhljóðandi: „Alþingi ályktar að ískora á ríkisstjórnina að láta und- ■irbúa fyrir næsta reglulegt Al- jtfþirigi löggjöf um úthlutun lista- rimwnnalauna. Skal við það starf ^iaft samráð við Bandalag ís- tenzkra listamanna.” Flutningsmenn tillögunnar eru: Sigurður Bjarnason (S), Benedikt Gröndal (A), Þórarinn Þórarins- son (F) og Einar Olgeirsson (K). Tillögunni fylgir svohljóðandi greinargerð: Allmörg undanfarin ár hefur þingkjörin nefnd skipt því fé, sem Aiþingi hefur á hverjum tíma veitt til listamannalauna. Hefur nefndin verið kjörin til eins árs í senn. Á það hefur verið bent með rök- Framhald á 15. síðu. Reykjavík, OTJ. Á FUNDI með fréttamönnum, Geir Hallgrimssyni, borgarstjóra o. fl. í gær, sagði Denys Pet- hell, borgarstjóri í Grímsby að licimsókn þeirra hjóna, og fylgd arliðs þeirra hefði verið einstak lega ánægjuleg. Hann sagði og að þegar borgir hefðu jafnmikil samskipti og Grimsby og Reykja vík, væri persónulegur kunnlngs skapur og vinátta mjög mikils virði. Hr. Petchell hefur komið hingað nokkrum sinnum áður, og hin fagra kona hans er fædd á Akranesi og uppalin þar til fimmtán ára aldurs. Borgarstjórinn sagði m a. á fundinum: „Nokkur blaðanna liafa getið þess að konan mín sé af íslenzkum ættum. Til þess að skilgreina það nánar langar mig að geta þess að liún er fædd á íslandi, faðir hennar var alís- ienzkur og móðir hennar einnig. Og ef það gerir hana ekki að frambærilegum víkingi, þá gerir ekkert það“. Aðspurður um stjórnmálaá- standið i Grimsby, svaraði Petc- hell borgarstjóri hlæjandi að það væri mjög sorglegt. Borgar fuiltrúar Verkamannafiokksins væru þar 33, en ihaldsflokksins aðeins 23. Þess ber að geta að borgarstjórinn tilheyrir ílialds- fiokknum. í fylgdarliði borgarstjórans voru m.a. Ccbley J. R. formað ur Sambands fiskiskipaeigenda í Grinu/by, og Jo’hn Ros> for- stjóri Ros útgerðarinnar. Þeir voru m.a. spurðir hvort þeir teldu að miklar breytingar yrðu á nýju löndunarsamningunum. milli íslands og Bretlands, en sá gamli rennur út í næsta mánuði. Þeir svöruðu því til að samning urinn sem væri orðinn nokkuð gamall, hefði ágætlega staðist tím ans tönn, en hins vegar yrði ó- lijákvæmlega einhverjar breyt- ingar. Þeir tóku fi'am að heim sóknir sem þessar væru mjög heppilegar fyrir allar samninga umlei^anir, því að Iþað væri miklu betra að semja ef menn þekktust persónulega. E’nnig með í ferðinni voru fjór ir fulltrúar verkamannaflokksins i Grimsby, m.a. John Franklín, formaður menntamálanefndar borgarstjórnarinnar. Hann hafði heimsótt skóla hér en ek.ki liaft nægan tíma til þess að kynna sér starfsemi þeirra eða fög þau sem kennd eru. En hann kvaðst vera mjög hrifinn af því sem hann hefði séð. Mjög vel væri búið að nemendunum og húsa- k.vnni liin vistlegustu. Einnig fór hann viðurkenningarorðum um Borgarsiúkrahús’ð nýja, en gest irnir höfðu skoðað bygginguna. Ennfremur kom fram á fundinum að siómannaheimili eru allmörg í Grimsby, og eru íslemkir sjó menn þar aufúsugestir. Hinn 2. niaí n.k. verður lagður hornsteinn áð nvju heimili og kirkju og sagði Petchell að sér til mikillar ánægju hefði Guðmundur í. Guð mundsson, ambassador íslands í Brétlandi góðfúslega orðið við þeirri beiðni að taka fyrstu skóflu stunguna. Denys Petchell og Kristín kona hans. (Mynd: JV). Harðnandi árásir á Norður-Vietnam SAIGON, 19. apríl (NTB-Reut- er). — Bandaríkjamenn hafa hcrt til mxma á loftárásum sínum á Norður-Víétnam og ráðizt á orku ver í nánd við Hanoi í fyrjta sinn það sem af er þessu ári. Ráðizt var á Uong Bi-orkuverið, sem er 22 km norðvestur af hafnarborg- inni Haipliong' og 50 km frá Hanoi, í gærkvöldi. Á sunnudaginn réðust banda- rískar flugvélar á brýr og eld- flaugaskotpalla aðeins 25 km frá Hanoi. Flugvélarnar, sem réðust á Uong Bi-orkuverið voru frá flug vélaskipinu „Kitty Hawk“. Þær vörpuðu alls 44 tonnum af sprengj um á skotmarkið og rafmagnsiaust varð á öllu Haiphong-svæðinu. Venjulega framleiðir orkuverið 15% allrar raforku Norður-Víet- nam. Orkuverið varð óstarfhæft um tíma eftir loftárásir x desem ber í fyrra. Aðrar flugvélar bandaríska flob ans og flughersins réðust á brýr, loftvarnastöðvar og herstöðvar á nokkrum stöðum í Norður-Víet Framhald á 14. síðu. FJÖLBREYTT HÁTÍÐAHÖLD Á SUMARDAGINN FYRSTA Reykjavík. — AB. Á MORGUN, sumardaginn fyrsta, verða fjölbreytt hátíða- höld fyrir börnin, sem barna- vinafélagið Sumargjöf sér um eins og undanfarin ár. Skniðgöng ur barna verða frá Austurbæjar skólanum og Melaskólanum að Lækjargötu og hefjast þær kl. 12,45. Kl. 1,30 hefst útiskemmt- un í Lækjargötu. Inniskemmtanir verða í Iðnó, Austurbæjarbíói og Haskólabíói. Kl. 2 sýna nemend ur Réttarholtsskóla leikrítið í- myndunarveikina eftri Moiier í Framhald á 15. síðu. 2 21. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.