Alþýðublaðið - 20.04.1966, Side 5
<3
I
KASTLJOS
Erfiðar viðræður í Finn-
landi um stjórnarmyndun
NÝKJÖRIÐ þing er komið sam
an til funda í Finnlandi. Borgara
flokkamir fjórir, sem höfðu 113
þingsæti af 200 fyrir þingkosning
arnar í marz, eru nú í minnihluta.
Þeir töpuðu alls 17 þingsætum
í kosningunum og samsteypu-
stjórn borgarafloklianna varð að
segja af sér. Á næstu vikum fara
fram erfiðar uinræður um stjórn
armyndun í Finnlandi.
Marg óvænt getur gerzt í finnsk
um stjórnmálum og enginn þor
ir að spá um það hvernig næsta
ríkisstjórn verður skipuð. Aðeins
eitt er víst: Ekki er lengur hægt
að halda jafnaðarmönnum utan-
gátta. Þeir unnu glæsilegasta kosn
ingasigurinn, sem dæmi eru um
í finnskri sögu, og juku fylgi
sitt um 44 af hundraði, en allir
hinir stjórnmálaflokkarnir fengu
færri atkvæði en í kosningunum
fyrir fjórum árum. Allir eru sam
riiála um, að það hafi fyrst og
fremst verið ungir kjósendur sem
tryggðu jafnaðarmönnum þennan
einstæða sigur.
TVÆR LEIÐIR DÆMDAR
v ÚR LEIK.
. En þótt dómur kjósenda hafi
verið skýr og ótvíræður er eng
inn hægðarleikur að mynda sam
stöðu um nýja stjórn. Jafnaðar.
menn hafa ekki hreinan meiri
hluta og „verkamannastjórn" er
aðeins hægt að mynda með sam
vinnu við kommúnista. Fáir eru
trúaðir á að slíka stjórn verði
hægt að mynda. Kommúnistar
beita sér að sjálfsögðu ákaft fyrir
slíkri .vinstri stjórn" og þeir minna
í sífellu á hinn mikla straum til
vinsti’i í kosningunum. En þeir
þegja um fylgistap sitt. Kommún
istar og Símonítar þ.e. vinstri jafn
aðarmenn er klufu sig úr jafnað
armannaflokknum fyrir nokkrum
árum, töpuðu hartnær 50.000 at
kvæðum í kosningunum, en þe-sir
tveir flokkar höfðu með sér kosn
ingabandalag.
Önnur leið var í rauninni dæmd
úr leik áður en þingið kom sam
an og hinar raunverulegu við
ræður um stjórnarmyndunina hóf
ust. Fullyrt er að ógerningur sé
að mynda þjóðlega einingarstjórn
með þátttöku allra stjórnmála-
flokka. Strax daginn eftir kosn
ingarnar var formaður jafnaðar
mannaflokk-ins Rafael Paasio beð
inn um að kanna möguleika á slíkri
lausn. Hann gekk fljótlega aftur
á fund Kekkonens forseta með nei
kvætt svar.
„RAUI)-CxRÆN“ STJÓRN.
Sú lausn, sem stjórnmálafrétta
ritarar hafa helzt hallazt að eftir
kosningarnar, er sú, að sættir og
ný samvinna takist með jafna«nr
mönnum og Miðflokknum (sem áð
ur vár kaiia«-ir Bændafokkur-
inn). Þessi flokkar hafa áður svnt
að beir geta unnið saman í ríkis
stjórn. Á fvrst.u og erfiðustu ár
unum eftir stvríöldina losuðu beir
sig við áhrif öfgasinna lengst til
hægri og vinstri og veittu land
inu stvrk og starfhæfa ríkisstjórn
sem einnig tókst að fylgia hóf
samri stefnu gagnvart Sovétríkj
unum, En ríðan kastaðist í kekki
með flokkunum og upp úr sauð
í lok síðasta áratugar. Beiskia
sú, sem deilur þessar höfðu í för
með sér, er enn ekki úr sögunni
og hverfur ekki í einni svipan.
Hingað til hefur ekkert gerzt
er gæti bent til þess að samkomu
lag tækist um „rauð-græna“ sam
steypustjórn. Miðflokkurinn á erf-
itt með að dylja vonbi’igði sín með
kosningaúrslitin, og flokkurinn
hefur færzt undan allrj ábyrgð á
myndun nýrrar stjómar. Jafnað
armenn voru sigurvegarar kosn
inganna og þeir verða að ráða
framúr vandanum, hvort sem þeir
gera það með eða án samvinnu
við hina vinstri flokkanna, segja
Miðflokksmenn.
Mjög hafa verið skiptar skoðan
ir um ástæðurnar til þessarar ó
sveigjanlegu afstöðu Miðflokks-
Ragnar Guðleifsson
Þórbergur Friðriksson
Listi Alþýðuflokks-
ins I Keflavík
&
%
1
|
í
V
■ ;j
íi
Skopmynd af Fagerholm.
ins. Hugsanlegt er talið, að flokk
urinn vilji helzt fara í stjórnar
andstöðu tii að leggja grundvöll
inn að fylgisaukningu í næstu
kosningum og í von um að taka
við stjórnartaumunum að þeini
loknum f.em bjargvættur þjóðar-
innar, En einnig er hugsanlegt,
að Miðflokkurinn hugsi um það
Framhald á 10. síðu.
Ólafur Björnsson
Kari Steinar Guðnason
Guðfinnur Sigurvinsson Benedikt Jónsson
LISTI Alþýðuflokksins í Kefla
vík við bæjai'ftjórnarkosningarn.
ar 22. maí hefur verið ákveðinn
og er hann þannig skipaður:
1. Ragnar Guðleifsson formað-
ur Verkalýðs og sjómannafé-
lags Keflavíkur.
2. Ólafur Björnsson, skipstjóri.
3. Karl Steinar Guðnason kenn
ari.
4. Þórbergur Friðriksson, fram
kvæmdastjóri.
3. Guðfinnur Sigurvinsson,
skrifstofumaður.
6. Benedikt Jónsson, forstjóri.
7: Þórhallur Guðjónsson, húsa-
smiður.
8. Sigríður Jóhannesdóttir, hús
frú.
9. Guðmundur Guðjónsson, kaup
maður.
10. Þorbjörn Kjærbo, tollvörður.
11. Guðleifur Sigurjónsson, garð-
yrkjumaður.
12. Vilhjálmur Þórhallsson,
hæstaréttarlögmaður.
13. Jóna Guðlaugsdóttir, húsfrú.
14. Gunnar Guðjónsson, verk-
stjóri.
15. Óskar Jósepsson verkamað-
ur.
16. Kjartan Ólason, skrifstofu-
maður.
17. Ásgeir Einarsson, skrifstofu-
stjóri.
18. Jón Tómasson, símstöðvar-
stjóri.
Þórhallur Guðjónsson
Sigríður Jóhannesdóttir Guðmundur Guðjónsson
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. apríl 1966 $