Alþýðublaðið - 29.06.1966, Side 4
iMÍ>
Rttetjírar: Oylö Grðndal (4b.) og Benedlkt Gröndal. - RltetíSmarfull-
ttúl: Eltíur GuBnason. — Slmar: 14900-14903 — Auglýalngaaiml: 14905.
Adaetur AlþýOuhúslB vlO Bverílsgötu, Reykjavflt. — PrentsmlOJa AlþýOu
bUBdna. - Aakrlftargjald kr. firt'X) — 1 lauaasölu kr. 6.00 elntakHL
Otgefandl AlþýOuflokkurlnn.
Hvor eru úrræðin?
ALMENNINOUR og atvinnufyrirtæki hafa áhyggj
nr af hækkandi verðlagi. í flestum nágrannaríkjum
er sömu sögu að segja, en hér á landi er verðbólgan
eins og ávallt áður meiri og hraðari en þar.
Ýmsir virðast gera sér óljósar vonir um, að stöðva
megi verðbólguna með einföldum ráðstöfunum, .sem
ekki komi 'við neinn. Því miður er þetta ekki rétt.
Slík ráð eru ekki til, heldur þarf víðtæka baráttu á
þúsund vígstöðvum til að draga úr verðbólgunni, og
það gerist varla snögglega.
Ríkisstjórnin hefur gert allar þær gagnráðstafan-
ir, sem tíðkast og taldar eru nægja í öðrum löndum.
Hún hefur haft hemil á útlánum bankanna og haldið
vöxtum háum. Þetta er það vopn, sem mest er beitt
í öðrum löndum, hvaða flokkar sem sitja við völd.
Þá hefur ríkisstjórnin tryggt hallalausan ríkisbú-
skap og staðið gegn ábyrgðarlausum yfirboðum
um aukin ríkisútgjöld án þess að tekna sé sé aflað
á móti. Loks hefur ríkisstjórnin haft hemil á opin-
berum framkvæmdum eftir því sem unnt hefur
reynzt.
Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa barizt á móti öll
um þessum ráðstöfunum. Þeir hafa heimtað meiri út-
lán, lægri vexti, aukin ríkisútgjöld og meiri ríkisfram-
kvæmdir. Allt hefði þetta aukið verðbólgu en ekki
dregið úr henni
Framsóknarmenn fást ekki til að segja þjóðinni,
hvernig þeir mundu stöðva verðbólguna, ef þeir kæm
ust til valda. Stundum tauta þeir um stjórn á fjár-
festingu, sem hlýtur að þýða fjárfestingahömlur, svo
að ekki megi byggja íbúð eða leggja girðingu án þess
að fá leyfi hjá einhverri opinberri nefnd. Þessi stefna
framsóknarmanna ríkti hér á landi frá kreppuárum
fram að viðreisn, en á þeim árum var oft ekki minni
verðbólga en nú. Af því má álykta, að nýtt fram-
sóknar-haftafargan mundi ekki stöðva verðbólguna.
Kommúnistar fást heldur ekki til að segja þjóð-
inni, hvernig þeir mundu stöðva verðbólguna. Þeir
tauta um algert verðlagseftirlit. Alþýðublaðið er þeirr
ar skoðunar, að gera mætti meira gagn með verðlags-
eftirliti en nú, og að eftirlit með verðlagseinokun sé
nauðsynlegt. En algert verðlagseftirlit hlyti einnig að
ná til kaupgjalds og mundi í raun þýða, að yfirborg
anir væru bannaðar. Öðrum kosti gæti það ekki stöðv-
að verðbólgu. Vilja kommúnistar standa við þá
stefnu?
Lausn verðbólguvandans er ekki einföld og dugir
ekki að blekkja fólk í tali um það mál. Hófsemd og
festa á öllum sviðum ásamt margvíslegum ráðstöfun-
Hm opinberra aðila og annarra, sem allar miða að
hjöðnun verðbólgunnar, er hið eina sem dugir.
4 ALÞÝÐUBtAÐiö - 29. júní 1966
BÍLLINN SEM BYGGÐUR ER FYRÍR ÍSLAND.
Hann sameinar styrkieika, mýkt og aksturshæfni
betur en nokkurt annaS farartæki sem flutzt hefur
til landsins. Lótið reynzlu annarra verða yðar
reynzlu.
LANDBUNAÐARBIFREIÐiN
MEÐ DRIFl Á ÖLLUM HJÓLUM
UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSS0N H.F.
LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
j á krossgðtum
★ ÚÐUN GARÐA.
„í AlþýðublaSinu þann 21. þessa
mánaðar er minnzt nokkrum orðum á úðun trjá-
garða, er staðið hefur yfir undanfarna daga hér
: borginni. Virðist þar gæta nokkurs misskiln-
ings og jafnvel verið með aðdróttanir að þeim
mönnum, sem að þessum málum standa; get ég
þvá ekki látið hjá líða að svara þessu nokkrum
orðum.
Þegar við garðyrkjumenn í Garð-
yrkj uverktakafélagi íslands hugðumst koma á kerf-
isúðun þeirri, sem framkvæmd var nú í fyrsta sinn,
var okkur Ijóst, að ýmsir erfiðleikar myndu verða
því samfara, en reynslan aftur á móti sýnt, að þeir
bafa orðið .færri en við var búizt og þeir í meiri-
hluta, sem fagnað hafa viðleitni okkar til bættrar
þjónustu í þessum efnum.
★ ENGIN AFSKIPTI AF
VERÐI.
Eins og kunnugt er, þá er garð-
yrkjan ekki ennþá lögfest iðngrein og hefur því
l'ver, sem er, getað gengið inn á verksvið okkar. Úð-
un trjágarða hefur einnig verið frjáls hverjum
þeim, sem verk þessi liafa viljað vinna og skipu-
lagning úðunar að þessu sinni liefur ekki útilokað
neinn frá þessum störfum; aftur á móti hefur úðun
ekki verið eftirsóttari en svo, að ýmsir garðyrkju-
menn hafa ekki séð sér hag í því að vinna þau
störf og hafa því jafnvel garðyrkjumenn úr öðrum
byggðarlögum komið og unnið þessi störf hér f
borginni. Þar sem mér var falið að sjá um fram-
kvæmd verksins og annast eftirlit, eftir fyrirfram-
ákveðnu skipulagi, hafði ég ekki afskipti af verð-
lagi ,enda engra hagsmuna að gæta í þeim efn-
um, þar sem ég lét ekki úða sjálfur á mínum veg-
um og á engin tæki til þeirra hluta. — Úðnnar-
stjórinn.”
★ MIKIL HÆKKUN.
Tilefni þessa bréfs er það, að fyrir
nokkru var að þessum málum vikið hér í þessum
dálkum, og það sem þar var fyrst og fremst fjallað
um var hin mikla hækkun á þeirri þjónustu sem
liér er um að ræða, en í bréfi „Úðunarstjórans”
segir að hann hafi engin afskipti haft af verðlagn-
ingunni og skulu engar athugasemdir við það gerðar.
En hitt virðist augljóst, að ein-
hver samtök eða samráð hafa verið höfð um verð-
iagningu úðunarinnar, og hækkunin frá því í fyrra
er furðumikil að flestra dómi.
í
Framhald af 4. síðu.