Alþýðublaðið - 26.08.1966, Síða 3

Alþýðublaðið - 26.08.1966, Síða 3
Flugmálafé- lagið 30 ára Rvík, ÓTJ. FLUGMÁLAFÉLAG íslands átti þr'játíu ára afmæli í gær, og var þess minnzt á þingi Flugmálasam- bands NorSurlands sem stendur yfir á Hótel Lofleiðir þessa dag- ana. Lúðvig Guðmunds- son skólastjóri látinn Ludvig Guðmundsson fyrrver- andi skólastjóri andaðist á Lands- spítalanum í gærmorgun. Ludvig var fæddur 23. júní árið 1897 í Reykjavík. Hann varð stúdent ár- ið 1917 og stundaði síðan nám bæði heima og erlendis. Hann var skólastjóri á Hvítárbakka 1927— 1931 og skólastjóri Gagnfræða- skólans á ísafirði 1931—1938. Hann fluttist til Reykjavikur 1938 og stofnaði Handíðaskólann 1939 og var skólasfjóri hans þar til fyrir örfáum árum. Ludvig Guðmundsson var þekkt ur borgari i Reykjavik, hann starfaði af miklum áliuga að ýms- um málum og var m.a. einn af forgöngumönnum þess að liafizt Var lianda um byggingu stúdenta- garðs við Háskólann. Kona Lud- vigs er Sigríður Hailgrímsdóttir og lifir liún mann sinn. Fulltrúar Konunglega Danska flugklúbbsins og Konunglega Sænska flugkliibbsins færðu Flug málafélagi íslands æðstu heiðurs- merki sem klúbbar þeirra veita og Baldvin Jónsson hrl. tók við þeim, en hann er forseti þessara norrænu samtdka i ár. Hann sagði fréttamönnum að þetta væri fjórði fundur sam- bandsins, sem var stofnað 1963. Mörg mál hafi verið á dagskrá á þinginu, svo sem umræður um útgáfu sameiginlegs tímarits, samþykkt nafn á ensku fyrir þau, rætt var um keppni í veifiugi, sv-ifflugi, modelflugi, og fallhlíf- arstökki, um skipti á nemendum í vélflugi og sviffiugi og um ör- yggisreglur fyrir næturfrug. Enska nafnið var samþykkt Association of Nordie Aiociubs, og skamm- stöfunin verður A.N.A. Tilgangur samtakanna er einkum að efla einkaflug, og vera fyrirsvarsmað- ur einkaflugmanna á alþjóðavett- vangi. Flugmálafélögin á hinum Norðurlöndunum fá mikla og góða styrki frá stjórnum sinna landa, enda er mikill hluti flug- manna þjálfaðir á þeirra vegum. Á íslandi er styrkur þessi muri minni. Washington 25. 8. (NTB-Reuter) Mcnamara lýsti því yfir lá blaða mannafundi í dag, að stjórn Norð ur-Vietnam hygði ekki á friðar samninga. Á hverjum mánuði koma um það bil fimm þúsund hermenn til Suður-Vietnam frá norðrinu. Er það helmingi meira en fyrir eilnu ári. Mcnamara sagði enn fremur, að árásirnar á flugvelli og eldflaugastöðvar væru þegar farnar að bera árangur, sem her stjórn Bandaríkjanna hefði vænzt Ennfremur hefðu loftárásirnar á ojíustöðvar horið árangur. London 25. 8.. (NTB) Tvö stór verkalýðsfélög í Bret landi hafa ákveðið að styðja að gerðir Wilsons í efnahagsmáhm um. Þetta éru samtök járnbrautar starfsmanna og póstmanna. KIRKJUDAGUR LANG- HOLTSSAFNAÐAR 1966 Hinn árlegi kirkjufundur okkar' verður 28. ágúst eða næstkomandi sunnudag. Eins og ávallt áður verða hátíðahöldin fjölbreytt með virðulegri dagskrá. Biskupinn yf- ir íslandi, herra Sigurbjörn Ein- arsson, mun prédika í hátíðaguð- þjónustu, sem hefst klukkan 2 eftir hádegi. Klukkan 4 verður samkoma lielguð yngri safnaðarmeðlimum. Áð kvöldi verður hátíðasamkoma í Safnaðarheimilinu. Formaður sóknarnefndar, Helgi Þorláksson, skólastjóri, flytur ávarp, en aðal- ræðumaður kvöldsins verður Helgi Bergs alþingismaður. Lista- konurnar Sigurveig Hjaltested og Margrét Eggertsdóttir munu skcmmta með söng, svo mun kirkjukórinn og syngja lög. Ung stúika, Sigrún Garðarsdóttir, sem nýkomin er heim eftir ársdvöl í Framhald á 15. síðu. -v Blaðamenn hlusta á fyrilestur um borð í Gorch Fock. BEZIA TÆKIÐ 1 WAlf- UNAR A FORINGJAEFNU Rvk.-GbG. Reykvíkingum er að góðu kunnugt þýzka skólaskipið Go rch Fock, en það hefur kom- ið hingað nokkrum sinnum áð- ur. Skipherrann, hr. Lohm- eyer hafði fund með biaða- mönnum í gær og lýsti rútu skipsins og tilgangi þess og stað innan sjóhers Vestur- Þýzkalands. Enda þótt við ís- lendingar séum ekki hernaðar- þjóð í orðsins réttu merkingu, kann mörgum að þykja forvitni legt, hvernig á því stendur, að svo tæknimenntuð þjóð sem Þjóðverjar viðhalda hinu hinu forna kerfi í þjálfun væntan- legra yfirmanna í sjóhernum og gefa þeim sínar fyrstu lex- íur sjómennskunnar á segl- skipi. Æðsti undirmaður skipstjór- ans, hr. Schmidt, sem að nokkru tók út sína skóiun á þessu skipi, lýsti afar skemmti lega þeim anda, sem ríkir yfir siglutrjám Gorch Fock. „Við teljum seglskipið bezta tækið til að kenna hinum upprennandi foringjaefnum að losa sig við einstaklingshyggju hins hversdagslega og borgara lega lífs I landi og kynnast nauðsyn þess að vinna saman og losa sig algerlega við þau litlu sérsjónarmið, sem vél- væðingin hefur í för með sér. Seglin á þessu skipi eru 220 fermetrar. Þau eru þykk og þau eru þung. Þessum ungu mönnum lærist skjótt. að það er betra að vera samhentir til að reilsa þau og fella. Og það tekur aðeins 2 mínútur að fella þau - ef allir eru sam- taka - allir 160, sem á skipinu eru. Stundum eru 25 menn á sama kaðlinum og þeir læra, að hver og einn verður að vinna með hinum. Þessir ungu menn verða að klifra upp í möstur og hagræða seglum, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Það að sigrast á sjálfum sér, sínum sérsjónar- miðum, í slíkum tilfellum, er eitt hið mikilvægasta í þeirri undirbúningsþjálfun, sem sjó- liðarnir fá hér sína fyrstu þrjá mánuði í sjómennsku fyrir þýzka sjóherinn.Slíkt er hverj- um manni nauðsynlegt og hollt og það gerir þeim kleift að sigrast á f jölmörgum vanda málum öðrum, sem á vegi þeirra verða síðar, er þeir gerast yfirmenn og þurfa að horfast í augu við ýmsan vanda. Skipherrann, hr. Lohmeyer, kvað sér einkar ánægjulegt að koma enn einu sinni til íslands og hann kvaðst vona, að veð- Framhald á 15. síðu. RÚSSNESK LISTAKONA SÝNIR HÉR Reykjavík 26. ágúst. Á morgun opnar listakona af rússneskum ættum, Natalia Fried rich að nafni, sýningu í sýningar sal Guðmundar Árnasonar, Berg staðastræti 15 Reykjavík. Sýnir hún þar um 20 Iandslagsstemmn ingar, allar gerðar hér á landi síðustu þrjá mánuðina. Eru mynd ir allar málaðar með japanskri olíukrít. Natalia Friedrich hefur hlotið menntun sína í Listaháskólanum í Kaupmannahöfn og nam hún þar hjá William Scharff og Niels Ler gaard. Hún hefur sýnt verk sín á fjöldamörgum samsýningum m. a. á Haustsýningunum í Kaup- manna höfn 1958, 1959 og 60. Auk þess hefur hún sýnt í Árhús um og Fredericia. Síðasta sýning Natalíu var í Athenæum Kunst -handel í Kaupm.h. og var sýninga: innar lofsamlega getið í dönsku: blöðum. Listakonan hefur gert víðrejs Hefur hún ferðast til flestr Evrópulanda og auk þess dvalis Egyptalandi og Mexícó. % Sýning Natalíu verður opin fr< til 8. sept. og er sýningartími flri kl. 9—6 alla daga, nema lauga daga og sunnudaga. Þ 26. ágúst 1966 - cALÞÝÐUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.