Alþýðublaðið - 27.10.1966, Blaðsíða 3
Eldur / flugvéla-
skipi á Tonkinflóa
SAIGON, 26. október (NTB-
Reuter) — Að minnsta kosti 45
liðsforingjar og hermenn týndu
lífi í gífurlegum eldsvoða á hinu
stóra bandaríska flugvélaskipi
„Oriskanyö” á Tonkinflaóóa í dag.
Að minnsta kosti 16 menn meidd-
ust.
Eldurinn var ekki slökktur fyrr,
en eítir þrjá klukkutíma og hafði
hann þá breiðzt um fimm þiljur
skipsins. Eldurinn kom upp þeg-
ar verið var að undirbúa loftárás
ir á Norður-Vietnam. Gerðar voru
ákafar tilraunir til að bjarga inni
lokuðum mönnum og til að aftra
flóa, „F.D. Roosevelt" og ,,Con
ur og eldflaugar. Tvær þyrlur
eyðilögðust og margar sprengju-
þotur löskuðust.
Eldurinn kom upp í öðru að-
all'lugskýlinu. Tvö önnur flugvéla-
skip Bandaríkjamanna á Tonkin-
því að eldurinn kæmist í sprengju-
stellation", sigldu að hinu logandi
skipi og aðstoðuðu við slökkvi- og
björgunarstarfið. Alvarlega særð-
ir hermenn voru fluttir í þyrlum
um borð í ,,Constellation“.
Bandarískar flugvélar réðust í
dag á stö’ðvar Vietcong um 160
km frá Cam Ranh-flóa þar sem
Johnson forseti heimsótti banda-
ríska hermenn í dag.
Rússneska kennd
í Háskólanum
Rússneski sendikennarinn við
Háskóla íslands, hr. Valdimar Al-
exandrovieh Milovidov, mun hafa
kvöldnámskeið í rússneskri tungu
fyrir almenning í vetur.
Þeir, sem hafa liug á að taka þátt
í námskeiði þessu, eru beðnir að
koma til viðtals við sendikennar
ann í II. kennslustofu Háskólans
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 8,15
eftir hádegi.
Kennt verður að nokkru leyti
á ensku, en að nokkru leyti með
hinni svonefndu beinu aðferð.
Tvær nýjar AB-bækur:
Stærðfræði og flug
Þessa dagana koma á markað-
inn tvær nýjar bækur í Alfræði-
safni AB og fjalla báðar um efni,
sem eru í senn forvitnileg og
taka í sívaxandi mæli til alira
mannlegra samskipta. Þessar
bækur eru Stærðfræðin eftir
David Bergamini, víðkunnan rit-
höfund á vísindaleg efni, og
Flugið eftir þá H. Guyford Stev-
er, prófessor í tæknivísindum, og
James J. Haggerty, verðlaunahöf-
und, sem gert hefur flugmál og
geimferðir að sérgrein sinni. Hef-
ur Björn Bjarnason menntaskóla-
kennari íslenzkað fyrri bókina, en
Baldur Jónsson léktor hina síð-
ari.
Stærðfræðin er 8. bókin í Al-
fræðasafninu. Er þar komið að
þeirri fræðigrein, sem talin er
éitt elzta og markverðasta viðfangs
efni mannlegrar hugsunar, enda
stundum nefnd drottning vísind-
anna. Fyrir tilvist hennar og at-
béina hefur mönnum tekizt að
ráða margar flóknustu gátur rúms
og tíma og hún hefur öldum sam-
an staðið undir og átt meginhlut
að flestum framförum í raunvís-
indum og tækni. Samt hefur vald
hennar og áhrifamáttur aldrei
verið stórkostlegri en á vorum
dögum, öld geimsiglinga, kjarn-
orku og rafreikna, eða varðar
hvern einstakling jafnmiklu. Það
er því ekki vonum fyrr, að bók
sem þessi sé gefin út hér á landi,
og ugglaust kemur hún mörgum
í góðar þarfir. Hún eyðir sjálf-
krafa þeim misskilningi, sem
mörgum hefur verið fjötur um
fót, að stærðfræðin sé ekki á
valdi annarra en sérstakra „reikn-
ingsheila”, en eins og þýðandinn
tekur fram í formála er bókinni
fyrst og fremst ætlað „að glæða á-
huga fyrir stærSfræði og veita
.þeim mörgu, sem lítið til hennar
þekkja, nokkra innsýn í undra-
heima hennar.”
Framhald á 15. síðu.
Guðmundur Vésteinsson for-
Ásmundur Sveinsson fyrir framan mynd sína Skýjaklýfir. (til hægri).
Hve hátt á Skýjaklýfir að standa? Höggmyndin var hífð upp og niður framan við I.oftleiða-
hótelið til að athuga hve hár stöpullinn undir henni þarf að vera. (til vinstri).
Stækkun Skýjaklýfis
Ásmundar er lokið
Reykjavík — OO
Lokið er við stækkun myndar
Ásmundar Sveinssonar, Skýja
klýfir. Myndin er nær þrír m.
á hæð og verður sett framan
við Loftleiðahótelið við Reykja
víkurflugvöll, Eins og sagt hef
ur verið frá - í Alþýðublaðinu
var stækkaða myndin gerð í
Sindrasmiðjunni undir umsjón
Jóns Gunnars Árnasonar, járn
smiðs og myndhöggvara.
í gærmorgun var myndin
flutt frá Sindra við Borgartún
og á þann stað sem hún á að
standa í framtíðinni. Ekki hef
ur hún þó enn verið sett upp
og er ekki búið að steypa und
ir hana stall.
Þegar höggmyndin var komin
á sinn stað framan við hótelið
var hún sett neðan í mikinn
krana og var hún síðan hífð
upp og niður og snúið á ýmsa
vegu. Var þetta gert til að at
huga i hvaða hæð myndin á að
vera í framtíðinni, og hve hár
stöpullinn undir henni verður
Meðan þessu fór fram gengu
arkitektar og listamenn um-
hverfis myndina og skoðuðu
hana frá; öllum hliðum í ýmsum
hæðum. Loks kvað. Ásmundur
upp um að stöpullinn skyldi
vera 2,60 metrar á 'hæð og verð
Ur byrjað á byggingu hans
innan skamms. Verður Skýja-
klýfir væntanlega kominn á
sinn stað innan 10 daga.
Þrír mánuðir eru nú liðnir
síðan hafizt var handa um
stækkun myndarininar og er
hún stækkuð sex sinnum miðað
við frummyndina.
Nýr vegur að Þingvallavega-
mótum talinn kosta 194 millj.
maöur FUJ á Akranesi
Aðalfundur Félags ungra jafnað
grmanna á Akranesi var lialdinn
þriðjudaginn 25. okt. sl. í stjórn
félagsins næsta starfsár voru kosn
ir: Guðmundur, Vésteinsson, for
maður, Helgi Daníelsson, ritari,
Hallgrímur Árnason, gjaldkeri og
meðstj(i(rnendur: Guðmundur
Hannesson, Kristín Tómasdóttir,
Ólafur Árnason og Örnólfur
Sveinsson.
Á fundinum talaði Bragi Niels
son, læknir um jafnaðarstefnuna,
og var gerður mjög góður fómur
að máli hans. Á fundinum gengu
11 nýir félagar í félagið og sam
þykktar voru ályktanir um bæjar
mál.
Reykjavík — EG.
— Lauslega áætlað er talið að
kosta muni 194 milljónir kr. að
gera fullkominn veg frá Elliðaám
að vega mótum Þingvallavegar í
Mosfelissveit, að því er Ingólfur
Jójnsson, samgöngumálarrtðherra
upplýsti í svari við fyrirspurn í
sameinuðu þingi í gær. '
Jón Skaftason (F) spurði, hvaða
fyrirætlanir væru uppi um notk
un lánsheimilda í vegaáætlun
vegna lagningar Vesturlandsvegar
í HvalfjarÖarbotn. Kvað Jón orðið
mjög brýnt að gera þennan veg
úr varanlegu efni því þarna væri
mikil og þung umferð.
Samgöngumálaráðherra. Ingólf-
í vetraráætlun Flugfélags ís-
lands eru nú í fyrsta skipt.i viku-
legar ferðir til Færeyja. Verður
ein ferð í viku eins og verið
hefur í sumar, flogið frá Reykja-
ur Jónsson lét svo ummælt að
fyrstu undirbúningsmælingar
vegna nýs vegar hefðu verið gerð
Framhald á 15. síðú.
vík á þriðjudagsmorgnum, fyrst
til Færeyja, þaðan til Bergen og
frá Bergen til Kaupmannahafnar,
þar sem flugvélin bíður yfir nótt
Framhald á bls. 10.
Vetrarferöir til Færeyja
27. október 1966 - ALÞÝÐUBIAÐIÐ $