Alþýðublaðið - 27.10.1966, Blaðsíða 6
„Drög aö íslenzkri hraöritun —
hraðritunartákn algengustu orða
tungunnar” nefnist nýútkominn
handritaður bæklingur, sem laga
nerninn Jón Ögmundur Þormóðs-
son hefur tekið saman.
Er ætluiun að sníða tvo megin-
vankanta af hraðritun og klæða
hana búmngi, sem á að geta
hentað ölh m þeim, er vilja auka
skriftarhraða sinn að mun. Verður
lesendum gefinn kostur á að læra
einvörðungu til fullnustu hagnýt-
asta kjarna hraðritunar, með
Aðalfundur
Angliu
Fyrsti skemmtifundur á vetr-
ardagskrá félagsins Anglia var
haldinn í Sigtúni hinn 7. október
síðastliðinn. Var samkvæmt venju
jafnframt um aðalfund að ræða.
Fráfarandi formaður, Þorsteinn
Hannesson gaf skýrslu um störf
stjórnarinnar á liðnu starfsári og
þakkaði meðstjórnendum og fé-
lagsmönnum ánægjulegt samstarf
á formannstímabili sínu. Þökkuðu
fundarmenn Þorsteini og fráfar-
andi stjórn vel unnin störf. Við
stjórnarkjör var Brian Holt, að-
alræðismaður einróma kjörinn
formaður. Er hér um nokkur
tímamót að ræða í sögu félags-
ins, þar sem Brian Ííolt er fyrsti
formaður „Anglia,” sem ekki er
af íslenzkum uppruna. Aðrir í
stjórn voru kjörnir: Már Elíasson,
ritari, Ralph Hannam, gjaldkeri
og þeir Haraldur Á. Sigurðsson,
Donald Brander, Guðni Guðmunds
son, Valgarð Ólafsson og Heimir
Áskelsson, meðstjórnendur. For-
maður skemmtinefndar var kos-
inn Leo Monroe.
Að loknum aðalfundarstörfum
hófust skemmtiatriði. Ruth Little
Magnússon söng brezk þjóðlög við
afbragðs undirtektir áheyrenda.
tlltíma og Karnabær sýndu nýj-
asta tízkuklæðnaðinn undir stjórn
Colin Porter. Auk þess voru get-
rauriir, leikir bögglauppboð, happ-
drætti og dans. Húsfyllir var og
skemmtu menn sér hið bezta. Ný-
kjörinn f'imaður sleit hófinu,
þakkaði fclagsmönnum sér auð-
sýnt traust og minnti á 45 ára
afmæli félagsins sem er 2. des.
næstk. Undirbúningur að veglegu
afmælishófi er í fullum gangi.
Áskriffasíminn er 14900
'w
i
Hagnýtur bækling-
ur um hraðritun
Frumvarp um breytingu á 'áfeng
islögunum liggur nú fyrir Alþingi
Frumvarpiö er samið af áfengis
málanefnd, sem kosin var af A1
þingi til athugunar á áfengisvanda
málinu. Tók nefndin til starfa 19
64 og lauk störfum á síðasta sumri
Hafði hún þá viðað að sér all-
miklum gögnum um áfengismál á
íslandi og fengið skýrslur frá fjöl
öðrum orðum að rita hraðritun-
artákn algengustu íslenzkra orða
á mettíma. Leitazt hefur verið
við að gera bækling þennan, sem
er fyrst og fremst ætlaður til
sjálfsnáms, eins aðgengilegan og
framast er unnt, m. a. með því
að undirstrika þau atriði, sem
mikilsverð eru. Ætti að vera
kleift að ná því á mjög skömm-
um tíma. Þá má og vinza úr tákn-
unum að vild og læra jafnvel eitt
tákn á degi hverjum. Þar að auki
er hreinritun ónauðsynleg þeim,
sem rita táknin einungis til eigin
nota, þvi að þessi fóu tákn, ljósu
og einföldu hraðritunartákn eiga
menn að geta lesið reiprennandi,
þegar þau hafa á annað borð ver-
ið numin. Er af firamansögðu
Ijóst, að margir eiga að geta haft
nokkurt gagn af þessari takmörk-
uðu hraðritunarkunnáttu, sem
lítinn tíma tekur að öðlast, t. d.
fyrirlesarar og ræðumenn við
gerð uppkasts, námsmenn í
kennslustund, blaðamenn í við-
tölum, svo og flestir við ritun
ýmissa minnisatriða í dagsins önn.
Bæklingurinn kostar 135 kr.
með söluskatti í bókaverzlunum,
og fást nánari upplýsingar um
hann að Miklubraut 58, Reykja-
vik.
Enn jbd er
talsvert
LEIKUR HJÁ TÓNLISTARFÉLAGINU
bruggað og
smyglað
mörgum aðilum varðandi áfengis
vandamálið og eru þær lagðar
fyrir með írumvarpinu.
Hér á eftir verða talin nokkur
atriði úr skýrslum til áfengismála
nefndar en geta verður þess að
þeim eru hvergi gerð tæmandi
skil. Fram kemur að starfandi eru
átta bindindissamtök í landinu og
eru flest þeirra mynduð úr fjölda
bindindisfélaga sem starfandi eru
víða um land.
Áfengisútsölur eru alls sjö, þar
af þrjár í Reykjavík. Áfengisneyzla
á mann árið 1965 var 2.070 lítrár
á mann og heíur laukizt með
hverju ári allt frá því áfengis
banninu var aflýst 1935 en það
ár drakk hver íslendingur 0,898
lítra áfengis. Geta má þess að
hvergi á hjnum Norðurlöndunum
er meðalneyzla áfengis jafn lítil
og hér.
Samkvæmt skýrslum áfengis-
’miálanefndar «<r áfengisástandið
í landinu nokkuð mismunandi eft
ir byggðarlögum eftir þvi hvort um
er að ræða sveitir eða kaupstaði
og þorp. í 172 hreppum er al
menna ástandinu lvst þannig að
það sé gott eða sæmilegt en í 4
hreppum er talið að bað sé slæmt
Áfengisástand í sveitum virðist
aðallega bundið við viss -tækifæri
eða samkomur alls konar. Mikið
ber á í skvrslum hér og hvar
af landsbyggðinni að aðkomumönn
um er kennt um drykkjuskap á
skemmtunum. í yfirgnæfandi meiri
hluta hreppana er talað um að
allar samkomur fari vel fram og
dryggjuskaparástand sé þar gott
eða ágætt Grunur leikur á um
leynivínsölu í 9 hrennum og talið
er að bruggað sé í 7 hreppum og
smyglað úr skipum í 3 sjávar
hreppum.
í kauptúnum og þorpum er á-
stand í áfengismálum yfirleitt tal
Framliald á 10. síðu.
FRÁ MOSKVU
BORODIN-KVARTETTINN
insky fiðluleikari sýndi slíka
hæfni sem bam, að foreldrar
hans seldu allar eigur sínar
til þess að geta farið með hann
til prófessors Yamolsky í
Moskvu. Alexandrov fiðlul. kom
frá Leningrad og lærði hjá próf
essor David Oistrak. Berlinsky
og Shebalin komu frá Síberíu.
3 núverandi meðlimir Borodin
kvartettsins stofnuðu kvartett
þegar þeir útskrifuðust úr Tón
listarháskólanum 1948. Var það
Quartett Moskov Philharmonia
1955 var þeim veittur heiðurs
titillinn Borodin kvartett og
undir því nafni hafa þeir getið
sér mikinn orðstír víða í Evr
ópu t.d á Edinborgarhátíðinni
Framhald á 10. síðu.
Tónlistarfélagið byrjar nú
,i vetrarstarfsemi sína með tvenn
um tónlcikum, þeim fyrri n.k.
i* 1 föstudagskvöld kl. 7,15 og n.k.
laugardag kl. 3 síðd. í Austur
bæjarbíói, þá leikur „Borodin“
strengjakvartettinn frá Moskvu
!! en þeim seinni n.k. mánudag og
þriðjudagskvöld, einnig í Aust
urbæjarbíói, þá leikur ameríski
píanóleikarinn Shura Cherkas
sky, sem hér er fjölda manns
að góðu kunnur síðan að hann
var hér fyrir réttum 12 árum
og hélt hér þrenna tónleika
fyrir Tónlistarfélagið og lék
einnig með Sinfóníuhljómsveit
inni.
Tónlistarfélagið er nokkuð
síðbúið í haust með tónleika
sína, en það stafar af óviðráðan
legum ástæðum. í september
síðastliðnum áttu amerísk-ís-
lenzka sópransöngkonan Leona
Gordon og maður hennar píanó
leikarinn Marcus Gordon að
halda hér tónleika, en á síðustu
stundu veiktist Marcus Gord
on, svo að hann varð að leggjast
á spítala. varð af þeim sökum
að fresta tónleikunum um óá-
kveðinn tíma. Þá átti óperu
söngkonan Hertha Töpper og
maður hennar dr. Franz Mixa
að halda hér tónleika í byrjun
þessa mánaðar, en einnig þeim
tónleikum varð að fresta af ó
fyrirsjáanlegum ástæðum, en
þau hjónin munu koma hingað
í janúar n.k og halda tónleika.
Mun nú Tónlistarfélagið af
fyrrgreindum ástæðum . halda
nokkra tónleika með stuttu
millibili.
Borodin-kvartettinn er
fremsti strengjakvartett Sovét
ríkjanna. Það er stórviðburður
að hann sækir ísland heim og
leikur hér. Hinir fjórir snjöllu
listamenn eru ættaðir víðsveg
ar að úr hinu víðlenda ríki, en
leiðir þeirra allra lágu til Tón
listarháskólans í Moskvu. Dub-
6 27. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ