Alþýðublaðið - 27.10.1966, Page 7
Austurríki snýr
baki við EFÍA
Austurríki, eitt af sjö aðildar-
ríríkjum Fríverzlunarbandalags-
ins (EFTA) hefur staðið í samn-
ingum við Efnahagsbandalagið
(EBE) um aukaaðild síðan í marz
1965. í Vínarborg er nú gert ráð
fyrir, að samningur um aukaað-
ild verði undirritaður um mitt
næsta ár og taki gildi 1. janúar
1968. Þetta hefur það í för með
sér, að Austurríki segir sig úr
t)FTA og reisir á ný tollmúra
gagnvart fyrrverandi bandalags-
þjóðum sinum í EFTA.
Samningamenn Efnahagsbanda-
lagsins hafa tekið skýrt fram, að
Austurríki geti ekki haldið á-
fram aðild sinni að EFTA, ef
landið fær aukaaðild að EBE.
Austurríkismenn hafa sagt, að
helzt kjósi þeir aðild að bæði
EBE og EFTA, enda hefði bað að
sjálfsögðu mikla kosti í för með
sér sér fyrir þó. Það yrði t.d.
freistandi fyrir fyrirtæki nð setj-
ast að í Austurríki og fá toll-
frjálsan aðgang að bæði EBE
og EFTA. Og Austurríki gæti
þannig orðið milliliður milli
hinna tveggja markaðsbandalaga.
En Austurrílcismenn játa, að
siík tvöföld aðild sé óraunhæf.
Þeir hafa tjáð sig fúsa að ræða
,,aðrar lausnir“. En í reynd merk
ir þetta, að þeir liafa gert ljóst,
að þeir muni segja sig úr EFTA,
ef þeir komast að viðunandi sam
komulagi við EBE.
* SAMKOMULAG
Fram til febrúar 1966 höfðu
Austurriki og EBE haldið sex
viðræðufundi. Á þessum fundum
var rætt um öll þau mál, sem
samningamenn EBE höfðu um-
boð til að fjalla um, en viðræð-
urnar hafa aðeins miðað að því
að skýra grundvailarafstöðu
beggja aðila. Skýrsla um niður-
stöður viðræðnanna verður nú
rannsökuð með hliðsjón af póli-
tiskum áhrifum þeirra innan
EBE. í lok mánaðarins eða í byrj-
un næsta mánaðar er gert ráð
fyrir, að ráðherranefnd EBE
fjalli um málið og gefi síðan
samningamönnum EBE ný fyrir-
mæli.
Samkomulag ríkir um, að frjáls
vöruskinti skuli eiga sér stað
milli EBE-landanna og, Austur-
ríkis að loknum 4—5 ára um-
þóttunartíma. Af austurrískri
hálfu hefur meðal annars komið
fram; að EBE beri að lækka
tolla sína gagnvart Austurríki
á skemmri tíma en Austurríki
gagnvart EBE.
Og í Vín er sagt: Fulltrúar
Efnahagsbandalagsins hafa sýnt
sjónarmiðum okkar mikinn skiln
ing, og við teljum, að sam-
komulag hafi náðst í grundvall-
aratriðum, en ekki hefur tekizt
að ganga lengra þar sem samn-
ingamenn EBE þarfnast nýrra
fyrirmæla.
Báðir aðilar eru sammála um,
að einnig skuli fjarlægja toll-
múra á sviði landbúnaðarafurða.
Austurrríkismenn hafa haft mik-
inn áhuga á því, að þessir toll-
ar verði afnumdir. Bændur í
Austurríki eygja mikla möpuleika
á eflingu landbúnaðarins, ef
þeim. verður leyft að selja af-
urðir sínar tollfrjálst á hinu fjöl
menna EBE-svæði.
★ AUSTUR-EVRÓPA
Enn fremur hafa báðir aðilar
fallizt á. að ytri tollar verði
samræmdir. Austurríki á að hafa
eigin tollskrá, en hún verður
samræmd tollskrá EBE. Sérstakt
ákvæði veitir Austurríki nauð-
synlegt svigrúm til að tryggja
það, að verzlunin við Austur-
Evrópu aukizt ..eðlilega“. Hér
verður um að ræða frávik frá
samræmingunn.i
Af hó’fu EBE hefur því ver-
ið haldið fram, að þetta geti
haft það í för með sér, að vör-
ur verði fluttar til Austurríkis
frá Austur-Evrópu með sérstök-
um kjörum og að austurrískir
kaupsýslumenn njóti síðan góðs
innan EBE. Samningamenn Aust
urríkis hafa svarað því til
að innflutningurinn frá Aust-
ur-Evrópu sé svo lítill, að hann
muni ekki valda neinum erfið-
leikum varðandi samninga Aust-
urríkis og EBE. Aðeins 12% inn-
flutnings Austurríkis kemur frá
Austur-Evrópu.
í grundvallaratriðum ríkir
samkomulag um, að finna verði
lausn, sem tryggi það, að. verzl-
un Austurríkis og Austur-Evr-
ópu bíði hnekki vegna austur-
rískrar aukaaðildar að EBE.
Walter Hallstein, forseti fram-
kvæmdanefndar EBE (annar til
hægri). Með honum á m.vndinni
eru vestur-þýzku ráðherrarnir dr.
Rolf Dahlgriin (t. v.) og Kurt Sch-
miicker. í
* HLUTLEYSI
Einnig ríkir samkomulag: ,í
grundvallaratriðum um, að Austr
urríki verði að aðhæfa stefnu
sína í efnahagsmálum efnahags-
málastefnu EBE að svo miklu
leyti sem það er nauðsvniegt
með tilliti til samkeppnisaðstöðu.
Af pólitískum ástæðum setíja
Austurríkismenn fyrirvara varð-
Framhald á bls. 10.
FRÍMERKI
Vafalaust eiga flestir ísl. frí-
merkjasafnarar ameríska flug-
frímerkið með myndinni af
Frelsisstyttunni í New York, svo
algengt sem það er á bréfum og
blöðum frá Vesturheimi. Hægri
helmingur merkis þessa er gulur
með stöfunum ,,US air rnail, 15
cent.” Yfir stafinn ,,U” er prent-
uð sku'ggamynd af fjögurra hreyfla
flugvél. Vinstri helmingur frí-
merkisins er grár með mynd af
efri hluta Frelsisstyttunnar, en
að ofan er setningin „Liberty for
All.”
Það fyrsta, sem maður sér blasa
við, er maður siglir upp Hudson-
fljótið og nálgast N. Y. eru liin
himinháu stórhýsi á Manhattan.
Ó^leymanleg sjón, hvort heldur
er á degi eða nóttu. Og hinum
megin við fljótið, á Liberty-eyj-
unni stendur hin fræga Frelsis-
stytta og lyftir risablysi sínu 305
fet í loft upp, lýsandi út yfir
fjörðinn, fljótið og liúsaraðirnar.
Þessi stytta á sér sérkennilega
sögu. — Hinn frægi frakkneski
myndhöggvari Auguste Bartholdi,
kom því til leiðar árið 1865, að
frakkneska þjóðin skyldi gefa
Ameríkumönnum einhvern sýni-
legan vott um vináttu og þakklæti
fyrir góða viðkynningu þessara
tveggja þjóða. — Hann var send-
ur vestur til þess að rannsaka
hvað heppilegast mundi vera að
gefa í þessu skyni. Er siglt var
inn til New York, varð listamað-
urinn sérstaklega var við þá
miklu eftirvæntingu, er skein úr
augum hinna mörg hundruð út-
flytjenda, sem stóðu við skjól-
borðsbrúnina og mændu á ,.hið
fyrirlieitna land,” þar sem allar
vonir þeirra og þrár nú- áttu að
rætast. Þá sló niður í hann þeirri
hugmynd, að gjöfin ætti að vera
myndastytta, sem táknaði frelsið
og vonina. Hún væri ímynd þess,
er innflytjendur þráðu mest í
hinu nýja landi. Og einmitt hérna
á eyjunni, þar sem skipið var að
sjgla framhjá, skyldi styttan
standa. Hún skyldi vera það
fyrsta, sem mætti auga liins fram-
andi manns á þröskuldi nýja
heimsins. Hér skyldi „Libertas”
taka á móti hverjum innflytjanda
með logandi blysi, sem ímynd
frelsis og möguleika í hinu nýja
landi. — Frelsi og sjálfstæði
skvldi gjöf Frakklands til Banda-
ríkjanna tákna um aldur og ævi.
Hugmyndin var ágæt og stað-
urinn vel valinn. Og þar stenður
nú hin heimsfræga stytta, konan
sem réttir út hendina og heldur
á stóru blysi. En blysið er nú orð-
ið að vita. innsiglingarvitanUm
til New York.
Það er sagt, a'ð Bartholdi liáfi
gert líkneskið eftir móður sinHi.
Framhald á bls. 10
ISLAND
l’
lrimerkisins lfibí;
„Dagur fríinerkisins cr n.k. þriðjudag 1. nóv. — Verður þá í notkun
sérstakur stimpill á pósthúsinu. — Ilér er sýnishorn af unislögjim,
sem félag frímerkjasafnara hefur gefið út í tilefni dagsins.
I
27. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J
''' - ' •<' ,