Alþýðublaðið - 03.11.1966, Síða 6
afnaðarmenn á
líu sameinast
Á sunnudaginn voru sósíalista-
flokkur ítaliu og jafnaðarmanna
Pietro Nenni einróma kjörinn for-
maður hins nýja flokks af 20.000
manns, sem sóttu fyrsta þing
flokksins. Fundarmenn risu úr
sætum til aö hylla hinn aldna leið
toga sinn, og ætlaði faignaðarlátun
um aldrei að linna.
★ HRIFNING
Svo mikill var samhugurinn að
iiann minnii á anda þann er ríkti
meðal þeirra sem börðust igegn
fasistum á ttríðsárunum. Og þenn
an anda er reynt að endurvekja,
en að þessu sinni beinist samhug-
urinn að lausn raunhæfra, þjóð-
félagslegra og mannlegra vanda-
mála. Nýr verkamannaflokkur
hefur verið stofnaður, og hann
veit hvað hann vill og er staðráð-
inn að bera baráttumál sín fram
til sigurs.
Þetta kom igreinilega fram í
stefnuyfirlýsingarijæðu N^nnis.
Ilann eyddi fáum orðum að for-
tíðinni heldur talaði um fram-
tíðina. Við verðum að byggja á
reynslu fortjðarinnar, og skapa
framtiðina, sagði Nenni.
í hinni geysistóru íþróttahöll,
þar sem flokksþingið var haldið,
voru ekki einungis gamiir flokks-
félagar saman komnir heldur mörg
þúsund nýrra flokksmanna. Full-
trúar Jafnaðarmannaflokksins og
Sósíalistaflokksins voru aðeins
1500, hinir fundarmennirnir 18.000
komu hvaðanæfa að af Ítalíu, í
áætlunarbifreiðum og járnbrautar-
lestum. Margir komu ásamt fjöl-
skyldum sínum.
Menn voru í 'hátíðarskapi frá
því snemma um morguninn. Fund-
urinn átti að hefjast kl. 9 en hófst
ekki fyrr en kl. 11, en þessi seink
un var óvenjuleg, jafnvel á ít-
alskan mæiikvarða. En skýrinigin
var sú, að fólksstraumnum til
íþróttahallarinnar ætlaði aldrei að
linna.
Og þegar leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins, Tanassi, tók loks
til máls og hélt fyrstu ræðu þings
ins var lófaklappið svo gífurlegt
að jafnvel fagnaðarlæti á iþrótta
mötum hurfu í skuggann. Og full
trúarnir á þinginu voru sér þess
meðvitandi, að þeir voru viðstadd
ir sögulegan atburð, en þeir voru
einnig komnir til að vera við-
staddir hátíð.
★ SAMHENTUR FLOKKUR
Ræða Nennis var eins málefna
leg og hún gat verið. Stefið í
raéðu hans var það traust, sem
skapazt hefur í fyrsta sinn síðan
á dögum frelsunarinnar, en það
er einmitt þetta traust, sem sett
hefur svip sinn á þetta mikil-
væga þing. Þetta verðum við að
notfæra okkur, sagði Nenni. Við
skulum ekki bíða eftir því hvað
Leiðtogar ítalskra jafnaðarmanna
Pietro Nenni, formaður hins nýja
de Martino.
aðrir segja um okkur, við skul-
um fyrst koma hinum nýja flokki
á laggirnar, bætti hann við.
Nenni minnffist sérstaklega á
hina mörgu sósíalistaklúbba, sem
menntamenn hafa stofnað að und
anförnu. í þessum klúbbum sam-
einast fremstu menn samfélagsins
og þeir hafa sett mót sitt á hin-
ar opinberu umræður, sagði Nenni.
Seinna í ræðu sinni sagði Nenni!:
Við erum stoltir af því, að marg-
ir menntamenn eru viðstaddir
þennan stofnfund. Og við verðum
að 'gera allt, sem í okkar valdi
stendur, til að hagnýta okkur
þennan stuðning. Við verðum að
fá sósíalistíska menntamenn til
starfa í hinum nýja flokki, og við
verðum að leysa vandamál þeirra,
(talið frá vinstri) Mario Tanassi,
flokks jafnaðarmanna, og Franccs
listarinnar og menningarinnar og
stuðla að eflingu vísinda og rann-
sóknarstarfa.
Nenni kvaðst vera sannfærður
um, að hin pólitíska sameining
jafnaðarmanna mundi leiða til
sameiningar jafnaðarmanna í
verkalýðshreyfingunni. Að því
hlyti að koma, fyrr eða síðar.
'Nenni ræddi ítarlega baráttu
ítalskra kvenna fyrir jafnrétti og
sagði að of fáar konur héfðu af-
skipti af opinberum málum, enda
hefði ekkert verið gert á þeirn
20 áritm, sem liðip eru síðan kon-
ur hlutu atkvæðisrétt, til að leið
rétta misrétti það igagnvart kven-
fólki, sem gömul' lög kvæðu á
um.
MæstE dráttur í Happdrætti Aljþýttublaðsins verður 23. des-
ember. Þá eru hvorki meira né minna en þ|ár hifreiðir í boði,
hver annarri glæsiiegri: Hilmann Imp. Vauxhall Viva og volks
wagen. iiiflinn kostar adeins 1©0 kr. og er hér því um ein-
stætt tækíffæri að ræða. Skrifstofan er aS Hverfisgötu 4 og
síminn er 22710.
i
Látið ekki HAB úr hendi sieppa
£ 3. névember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ