Alþýðublaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 9
AMÉRÍSKT SPAGHETTI. 250 gr. spaglietti er soðið í 8 dl. af vatni, bætt út í kjötkrafti, 1 lauk og salti, (ekki miklu). — Látið sjóða í 10—12 mínútur og hrærið í öðru hvoru. Þegar spag- hettið er soðið hefur það drukk- ið í sig vatnið. Þá er helmingn- um af spaghetlinu hellt á botn inn á eldföstu fati, þar ofan á eru lagðar tómatsneiðar, síðan salt og pipar og þar ofan á spag- hetti aftur. Um 150 gr. af fleski eru snöggsteikt á pönnu og feit- inni af því hellt yfir spaghettið og síðan eru flesksneiðarnar settar ofan á spaghettið og fatið sett inn í vel heitan ofn í um 10 mínútur, þar til flesksneið- arnar eru mjúkar og rétturinn vel heitur. Skreytt með persille. OFNSTEIKT NAUTAKJÖT. Hakkað nautakjöt er ;snögg- steikt á pönnu, síðan tekið áf pönnunni og lagt í eldfast fat og ofan á hvert buff er sett ein tóm- atsneið og ein ostsneið .Mjólk er sett á pönnuna og safinn af kjöt- inu hitaður og bætt í kryddi, síð- an hellt yfir buffstykkin. Fatið er síðan sett inn í vel heitan ofn og hitað, þar til osturinn hefur bráðnað. Borið fram með soðn- um kartöflum og grænmeti. ÍTALSKUR KJÖTRÉTTUR 1 kg af kálíakjöti, hveiti, krydd, 120 g smjör, ca. '14 1 af sherry, ea. Va 1 af vatni eða kjötsoði, safi úr 1 lítilli 'Sítrónu. Skerið kjötið í þunnar sneiðar, og veltið því upp úr hveitinu og kryddinu. Steikið það síðan á pönnu. Bætið þá út í sherryinu og látið kjötið sjóða við hægan hita. Bætið síðan smám saman út í kjötsoðinu eða vatninu og látið sjóða í 2—3 mínútur. Rétt áður en borið er fram er safanum úr einni \ítrónu bætt út í. ÍTALSKT CANNELLONI 120 g hveiti, salt og pipar, 2 egg, rúmlega peli af mjólk. Hrærið saman hveitið, salt og pipar, ’ eggin og dálitla mjólk. Bætið síðan mjólkinni smám sam- an út í deigið. Búið úr deiginu ca. 9—12 pönnukökur. w Fylling: IV2 peli af þykkri sósu (gott að nota sósuafgang), ca. 200 g soðnir kjúklingar, svínakjöt, lambakiöt,. eða nauta- kjöt (sem sagt má nota HvaSa kjöt sem er) ca. 100 gr, rifinn ostur, Örlítið múskat (ef vill). Þetta er hrært saman og sett á hverja pönnuköku, sem síðan er vafin upp. Setjið síðan pönnukökurnar í eldfast fat og setjið ofan á þær tómata, örlítið krydd, smjörbita og rifinn ost. Bakið vjð góðan hita í 20-25 mínútur. Nægir fyrir 5-6. NOESKU POLARIS ELDHÚSINNRÉTTINGARNAR ERU FALLEGAR, STERKAR, STÍLHREINAR OG VERÐIÐ ÞAÐ BEZTA. — KOMIÐ OG SKOÐIÐ. — VIÐ SKIPULEGGJUM ELDHÚSIÐ YÐUR AÐ KOSTNADAR LAUSU. — EINNIG VEGGKLÆÐNINGAR — LOFTKLÆÐN INGAR — INNI- og ÚTIHURÐIR: NORSK GÆÐAVARA. Sigurðsson s.f. Skúlagötu 63 — Sími 19133. I DAG: Ný sending af hollenskum ★ vetrarkápum, ic pelsjökkum, ★ úlpum, ★ hettukápum og ★ 3/4 síðum kápum úr rúskinnslíki. Bernhard Laxdal Kjörgarði. STOLAR Nýkomnir aftur okkar eigulegu funda- og skrifborðsstólar. Gjörið svo vel að líta í gluggana. G. SKÚLASON & HLÍÐBERG HF. Þóroddstöðum. Bílstjóri Lyfjaverzlun ríkisins óskar að ráða bílstjóra: Upplýsingar á skrifstofunni Borgartúni 7, föstudaginn 4. nóv., kl. 2-3 e. h. Atvinna Skrifstofustúlka með nokkra kunnáttu í málum og vélritun óskast. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt. Laun fara eftir menntun og-reynslu. Umsóknir sendist 'afgreiðslu blaðs ins fyrir 4. nóv. merktar: „Sjálfstætt skrifstofu starf“. 9 3. nóvember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.