Alþýðublaðið - 03.11.1966, Blaðsíða 8
KONAN OG HEIMILIÐ
*
Onæmi gegn
sjúkdómum
Þegar barn fær smitandi sjúk-
dóm tekur líkaminn að framleiða
mótefni, sem vinnur gegn sýklun-
um eða vírusunum. Og þegar tek-
izt hefur að vinna bug á þeim,
helzt mótefnið í líkamanum og
hefur barnið þannig fengið vörn
gegn sjúkdómnum í framtíðinni.
Þetta er ástæðan fyrir þvi, að
fólk fær yfirleitt ekki t. d. misl-
inga, kíghósta og hettusótt nema
einu sinni.
Þess vegna eru börnin bólusett,
það er til að líkaminn myndi
nægilegt mótefni án þess þó að
sjúkdómar komi fram og það er
gert með því að lítill skammtur
af sýklum, sem gerðir hafa verið
skaðlausir, er settur í líkamann
og myndast þannig mótefni gegn
viðkomandi sjúkdómi. Það er mjög
mikilvægt, að börn séu bólusett
mjög ung, því að mjög ungum
bömum er hættara við smitun,
séu þau ekki á brjósti.
Þó að sem betur fer sé orðið
lítið um sjúkdóma eins og bólu-
sótt í menningarlöndum, má þó
ekki gleyma því, að í Austuriönd-
um geysa slíkir sjúkdómar alltaf
öðru hvoru. Og eins og samgöng-
um er háttað í dag, þegar ekki
tekur nema nokkra klukkutíma
að komast milli heimsálfa og
ferðamönnum fjölgar sífellt, þá
eru bólusetningar við slíkum
sjúkdómum siálfsaeðar.
c>
Drengurinn heldur i handfangið
á pelanum sínum, en hann hefur
fljótt komizt upp á lag með að
halda á pelanum þannig, Ilann
á þannig auðveldara meff að hvíla
sig á að drekka, ef hann vill.
Börnin verða ekki rauð í kringum
munninn af því aff nota svona
snuð.
Þessi leikgrind er þannig útbúin,
að börnin komast alls ekki upp
úr henni af sjálfsdáðum.
Fyrir minnstu börnin
FYRIE LITLU BÖRNIN.
ítalir eru kunnir fyrir að búa
til falleg barnaleikföng og enn
fremur alls konar nytsama hluti
fyrir börn. A myndunum, sem hér
fylgja, sjást ýmsar nýjungar fyr-
ir litlu börnin. Þarna er meðal
annars snuð, sem barnið getur
notað án þess að verða rautt í
kringum munninn, því að skifan
snýr niður á við.
Á myndunum sjást líka ýmsir
aðrir hlutir, t. d. barnapeli með
litlu handfangi, sem barnið getur
haldið í, einnig barnagrind úr fín-
gerðu neti, og geta börnin ekki af
sjálfsdáðum komizt upp úr grind-
inni. Hægt er að leggja grindina
saman.
☆
Barnhm líður vel i húðinni!
Barmnu líihr vii-þegar notað.er Nivea babyfein.
Jlin reynda mdöir veit hvers vegiia hún v'elur
bahyjein handa barni sími: Þessar sámstillfu fram-
leidsluviirur - krem, plía, pttður, sdþa,- innibalda
allt, seth húðlaknirinn álttur nanösýnlégt binni
viökvxmn húð barnsins. Börn, snyrt með babyfein,
jáhvorki sxrindi, nérauða og bólgna búð.
HIYEA
Wjjföjí
g 3. nóvember 1966 --- ALÞYÐUBLAÐIÐ