Alþýðublaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 2
2
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐ - 6. nóvember 1966
Nú getum við boðið viðskiptamönn-
um okkar heita steypu allt að 30* C.
Hitunarkerfi steypustöðvarinnar er
nú mjög fullkomið, bæði sér ketill
fyrir heitt vatn og auk þess nýr
gufuketill, sem gufuhitar sand og
möl eftir þörfum.
Steypustöð Verk h.f. er fyrsta sjálfvirka steypustöðin, sem reist er á íslandi og fyrsta og eina
steypustöðin hérlendis, sem hefur fengið viðurkenningu frá Sambandi Steypuframleiðenda í
Bandaríkjunum fyrir að uppfylla ströngustu kröfur um tæknilegan útbúnað og framleiðslu-
hætti.
STEYPUSTÖÐ VERK HF.
Skrifstofa símar 10385 og 11380.
Pöntunarsimar 41480 og 41481.
Vetrarsteypa
l
Flórenz einangruð vegna flóðanna
áóm 5. nóv. (NTB-Reuter).
ítalski herinn býr sig undir víð
tækar aðgerðir til hjálpar borg
inni Flórenz, sem er einzngruð frá
umheiminum eftir hin miklu flóð
og fárviðri, það sem geisaði frá
Ölpunum til Sikileyjar í gær. Að
minnsta kosti 18 manns hafa beð-
ið bana og þúsundir misst heimili
«ín. Stór svæði eru undir vatni
og f jöldi bygginga hefur eyðilagzt.
Héraðið Toseana á Mið-Ítalíu
hefur orðið harðast úti, en auk
■Flúrenz eru bæirnir Siena og Pist
orqa. einangraðir og flætt hefur
yfiy fjóra fimmtu hluta bæjarins
MUNIÐ
HAB
Grosseto. íbúana i Flórenz skort
ir mat, rafmagn og drykkjarvatn
og margir hinna 430.000 íbúa bæj
arins hafa misst 'húsgögn og aðrar
eignir. Fjöldi bifreiða hefur skol
azt burtu með vatnsflauminum.
Hin frægu listasöfn borgarinnar
eru ekki í hættu.
Það var áin Arno sem flæddi yf
ir bakka sína ,en í gærkvöldi hætti
að rigna og vatnsborðið lækkaði
Flóðin í Flórenz eru hin mestu í
sögu borgarinnar frá miðöldum,
en því versta er nú lokið. Önnur
flóðasvæði eru Pódalurinn og Frí
ulisléttan milli Feneyja og Trie
ste. íbúar margra þorpa og býla
voru fluttir burtu áður en flóðin
skullu 'á. Enn rignir í Suður Tyr
ol, þar sem margir vegir hafa lok
azt, en spáð er betra veðri í Nap
oli og á Sikiley þar sem fjöldi
manns tekur þátt i björgunarað-
gerðum.
□ London: — Viðræður eru
hafnar um möguleika á þvi að
Kosygin, forsætisráðherra
Rússa, kom í heimsókn til Bret
lands, að því er áreiðanlegar
heimildir herma.
□ Washington: — William Ful
'bright öldungardeildarmaður
hefur enn lagt til, að aftur
verði gert hlé á loftárásum á
Norður-iVietnam. Hann sagði að
þótt enginn árangur hefði orð ~
■ □ Kaupmannahöfn: — Danska
skipið „Peíina“ sökk í gær
morgun á Eystrasalti. 6 manna
áhöfn skipsins var bjargað um
borð í finnskt skip.
□ Accra: — Ghanastjórn hef
ur tilkynnt U Thant fram-
kvæmdastjóra Sþ að hún sé
fús að sleppa 19 Guineum.
sem haldið hefur verið í gísl
ingu, ef Ghanamönnum sem
kyrrsettir hafi verið í Guineu,
verði sleppt úr haldi.
□ Kaupmánna'höfn: — Tækni
menn við danska sjónvarpið
boðuðu verkfall í gærkvöldi, ef
ekki tækist samkomulag um frí
da'ga.
Enn skotiö
á bandarísk
orrustuskip
Saigon 5. 11 (NTB-Reuter.)
Enn var skotið á tvö bandarísk
orrustuskip úr strandvirkjum í
Norður-Vietnam í gær, í annað
skipti á 12 dögum, en engan sak
aði, að sögn bandarísks talsmanns
Átta manns biðu bana og fjórir
slösuðust þegar eldur kom upp í
flugvélaskipinu „Franklin D.
Roosevelt" í gærkvöldi. Hinn 27.
október biðu 43 manns baha og 16
slösuðust í eldsvoða í flugvélaskip
inu „Oriskany",
í gær voru farnar 155 árásarferð
ir yfir Norður-Vietnam. Tvær
bandarískar flugvélar voru skotn
ar niður.
Ræða um Vietnam
Á morgun verður í annað sinn
í útvarpinu þátturinn Á rökstólum
sem Tómas Karlsson, blaðamað
ur, annast. Síðast settust að rök
stólum Eggert G. Þorsteinsson , fé
la'gsmálaráðherra og Helgi Bergs
alþingismaður, og ræddu um sjáv
arútvegsmál. Að þessu sinni verð
ur rætt um stríðið í Vietnam og
eigast við Magnús Kjartansson, rit
stjóri, og Þorsteinn Ó. Thoraren
sen, lögfræðingur. Þátturinn hefst
kl. 20,20 annað kvöld.
Pressuball
í Borm
Bonn 5. 11. (NTB-Reuter).
Tveir norskir ráðherrar, frá
Elisabeth Schweigaard dómsmála
'ráðherra Noregs og Olof Palme
samgöngrumálaráðhcrra Svíþjóð'ar
voru meðal gesta á pressuballinu
í Bonn ,sem er einn mesti við
óurðurinn í samkvæmislífi borgar
ínnar í gærkvöldi.
Aðrir gestir voru blaðafulltrúar
utanríkisráðuneyta Norðurland
anna og ýmsir kunnir blaðamenn
En Stjórnarkreppan í Bonn varp
aði skugga á skemmtunina Og Er
hard kanzlari mætti okki. Fimm
ráðherrar mættu þeirra á með-
al Schröder utanríkisráðherra og
Liicke innanríkisráðherra svo og
tvö önnur knnzlaraefni, Gersten-
maier þingforseti og Rarzel þing
leiðtogi kristilegra démókrata.
ið af hléi því, sem gert var
á árásunum í byrjun þessa árs
væri hyggilegt að 'gera nýja til
raun.
□ Baden Baden: — Dietrich
von Gholtitz hershöfðingi, lézt ,
í gær 71 árs að aldri. Hann var
síðasti herstjóri Þióðverja í Par
ís í heimsstyrjöldinni og nei:
aði að hlvðnast skipun Hitlers
um að jafna borgina við jörðu.