Alþýðublaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 16
 tSurt/utettuft (Bffi Ör Svíbjóð hinni UmræSur og deilur hafa verið me'ð fjör- ugasta móti liðna viku. Sænsk val- kyi-ja, sem hingað kom í heimsókn, hef- ur komið blóði fjölmargra til að ólga, og hún hefur meira að segja unnið það afrek að koma af stað hreyfingu á því vatni, sem sumir kalla lygnast allra stöðupollna á landinu, sjálfum háskólanum. Sú virðulega menntastofnun er allt í einu orð- in með lífsmarki, þótt hx-eyfing- arnar hafi raunar verið dálítið klaufalegar, eins og hjá kálfi, sem er að stíga sín fyrstu spor í heiminum. En slíkt stendur þó jafnan til bóta, og klaufalegur kálfur er orðinn að heijarmiklu nauti áður en varir. Fyrst farið er að minnast á nautgripi, þá hlýtur tvennu að Skjóta upp í hugann. í fyrsla lagi minnist maður bændablaðs- ins okkar ágæta, en það er í hópi þeirra, sem valkyrjan sænska hefur sett úr skorðum. Sú regla er nefnilega algild um allan lieim, að bændablöð eru blaða ihaldssömust og fastheldnust á fornar dyggðir, enda hafa bænd- ur ævinlega fengið orð fyrir að vera seinþreyttir til vandræða. Hér á landi hefur bændablaðið þó tekið þann kostinn, hin síð- ari ár að minnsta kosti, að vera eins og veðráttan, sem bænd- ur eiga allt sitt undir, og slá úr og í og halda sjaldan sömu vind- áttinni nema daglangt. Róttæk tímabil hafa skipzt á við íhalds- söm skeið og stillingaraldir, en nú hefur valkyrjan sænska- vald- ið því að blaðið er tekið að slá nýja strengi og kyrja byltingar- Ijóð af engu minni eldmóði en sjálft málmagn hinna yfirlýstu byltingarmanna. Hitt sem skýtur upp í hugan- um, þegar á nautgripi er minnzt, er heimkoma forsætisráðherra frá Svíþjóð í vikubyrjun, en hann flutti með sér hingað ávís- un á tíu nautgripi, sem Svíar viJja gefa okkur í vináttuskyni. Sum blöð hafa gengið út frá því sem vísu, að þarna hljóti að vera átt við ký'r, en ekki var það þó sagt,'þegar skýrt var frá boðinu, lieldur var þar notað orðið „grip- ir,” en það getur átt við bæðí kynin. Og við erum fremur á því Baksíðumenn, að gefendur hafi í hyggju að láta okkur liafa naut til kynbóta, enda hefði það miklu skjótvirkari áhrif á naut- gripastofninn í landinu, heldur en þótt við fengjum tug mjólkur- kúa, sem yrðu fyrst og fremst til að hlaða upp smjörfjall á ný, Frétta- yfirlit vikunnar Orðabók háðskólans HÁSKÓLARÁÐ: Húsnæffismálastjórn stúdenta. LANDSLID: Einvalalið í handbolta, en útnefnt af nefnd í handbolta. PÖNTUNARFÉLAG: Kvalræði kaupmanna. TÓMAS JÓNSSON.- Metsölubók, sem ekki selst. VERZLUNARFRELSI-. Takmarkað frelsi, nær ekki til neytenda. köldu en það gamla ku btessunarlega vera farið að eyðast. Annars er í þessu sambandi ekki útilokað að eitthvað kunni að búa þarna undir og Svíar séu orðnir þreytt- ir á að heyra íslendinga guma af að þeir séu gáfaðasta þjóð í heimi, og því hafi þeim þótt rétt að gera sitt til að fjölga naut- gripum í landinu og gefa okkur ekki aðeins stærri naut en við eigum fyrir, heldur líka meiri naut. Eitt kviknar af öðru, og þess vegna verða greinar sem þessi oft eins og hlekkjafesti eða röð af ormum, þar sem hver bítur í halann á öðrum. í síðasta pai’agraff var minnzt á heimkomu, og þá er það frægasta heimkoma 'vikunnar sem hlýtur að koma næst á dag skrá, hcimkoma sötigsvcitaty innar á Baltiku. Þetta rússneska skip er alveg ái’eiðanlega orðið einhver frægasti farkostur ald- arinnar og þótt víðar væri leit- að, og ekki minnkar ‘frægð1' þess við það, að allt sem hing- að til hefur haldið frægð þess á lofti, er nú sagt vitleysa gerð til að ófrægja skipið og föru- nauta þess. Einhvers staðar stóð að ástæða frægðarinnar hafi einkum verið sú, að menn í landi hafi verið orðnir gulir og grænir af öfund yfir því að vera ekki um borð. Það hefði þó varla breytt litarhætti þeirra neitt, þótt þeir hefðu fengið ósk sína uppfyllta, því að þá hefðu þeir aðeins verið grænir og gulir af sjóveiki í staðinn. Brot úr skjaldmeyjarkviÖu Hingað norður ein skjaldmær skauzt, skáldkona og friðardúfa. Hlviðri napurt af því hlauzt, ýmsra værð gerði rjúfa. Moggi vatt sér í versta ham og vitglóru allri sleppti, því verið hafði hún í Víetnam og vissi, hvar skórinn kreppti. Kommarnir urðu klökkir við og kölluðust eiga liana, því þeir hafa ávallt sama sið, sem er kominn í vana, að eigna sér flest sem fallegt er, þótt fæst af því með þeim sprangi; þeir kunna á sannleikann kommarner, og kræfastur þeirra er Mangi. Háskólapiltar lilupu upp til handa og fóta og vildu setja á pall eitt sjónarspil, þótt sænskuna fæstir skildu; en í veginum varð þá einn velsæmisins protektor, einbeittur, þrár og hjartahreinn, háskólans vararektor. SÍRA SIGMUNDUR. Skopmynd vikunnar Sænski hershöfð- inginn, von Horn, hefur nýlega gef- iS út endurminn- ingar sinar — og ræðst þar á yfir- stjórn Sameinúðu þjóðanna, en von Horn var um skeið yfirmaður herafla samtak- anna. Svona hugs-. ar teiknari danska blaðsins Aktuelt sér árás von Horns á yfirboðara sína. Sáspaki segir... Verði nýju áfengis- Iögin samþykkt verða veitingahúsin sjálf- sagit kölluð þiurabúð ir á vissum kvöldmn. t i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.