Alþýðublaðið - 06.11.1966, Side 9
6. nóvember 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐ
hann átti mikið og fallegt bóka
safn. En því miður eyddist þa'ð
í eldi, þegar bærinn í Birtinga
holti brann. Fram á elliár var
Ágúst Helgason vakinn og sofinn
við Þúskapinn. Móeiður kona hans
sagði mér, að það væri helzt ekki
hægt að fá hann inn frá verki á
kvöldin. Þó að allir aðrir væru
liættir störfum. Alltaf þurfti hann
eitthvað að vera að úðra. Nú býr
í Birtingaholti sonur þeirra hjóna
Sigurður, mikill tónlistarfrömuð-
ur þar eystra og tónskáld.
Meðan Ágúst Helgason bjó,
dvaldist ég stundum í sumarleyf
um mínum í Birtingaholti. Þá var
Ágúst að vinna við girðingu fyr
ir utan tún, og Magnús sagði:
„Heyrðu Þórarinn! Nú skulum
við koma til Gústa bróður og vita
hvort við getum ekki tafið svo
lítið fyrir honum.“
Ég var til í það. En það heppn
a'ðist ekki. Ágúst hélt áfram að
giröa og leit varla við okkur,
þó við yrtum á hann. Þó var
hann manna gestrisnastur og ræðn
astur. Ég vissi líka, að Ágústi
þótti ekki jafnvænt um nokkurn
mann og Magnús bróður sinn, og
fáir hafa því verið meiri aufúsu
gestir i Birtimgaholti en hann.
En nú var Ágúst sem sagt önnum
kafinn við vinnu og gat ekki sinnt
öðru á meðan.
„Þarna sérðu, hvernig hann
Gústi bróðir er,“ sagði séra Magn
lis. „Ég sé, að hann er vant við
látinn, og þá þýðir ekkert að reyna
að tala við þann. Það er bezt að
við göngum hérna upp á hæðina
á meðan, ég ætla að kenna þér dá
lítið í landafræði."
Síðan þuldi hann yfir mér ör
nefnin og benti mér á ýmsa staði
sem honum voru kærir frá upp
vaxtarárunum í Birtingaholti
Loks gekk hann með mér að
sléttu einni í túninu, sem hann
sagði, að Þórarinn Árnason afi
minn hefði ræktað á sinni tíð,
og hefðu það verið fyrstu jarða
bæturnar sem gerðar voru í Birt
íngaholti. Auðvitað hafði þessi
slétta verið endurbætt síðan, því
að hún hafði gengið úr sér, enda
engar girðingar fyrrum til varn
ar, nema hlaðnir túngarðar, sem
tæpast gátu talizt gripheldir.
Mörgum árum eftir þetta kom
ég að Birtingaholti, og þá var Á-
gúst að láta aka áburði á þessa
sléttu, er ég vildi kalla Þórarins
flöt af því að Þórarinn afi minn
hafði ræktað hana. Þá greip mig
svo mikil vinnugleði að ég bauðst
til að teyma kerruhestinn á milli
og fannst með sjálfum mér að fyrir
vikið hefði ég með vissum hætti
lagt fram minn skerf til þess að
hlúa að þessum bletti, sem afi
minn hafði ræktað fyrir meira en
hundrað árum.
Eitt atvik enn er mér minnis
stætt frá Birtingaholti. Ég held
það hafi verið í eitthvert síð-
asta skiptið sem ég kom þangað
meðan Ágúst iifði. Þá vorum við
hjónin þar stödd um túnasláttinn.
Einn daginn var brakandi þurrk
ur og þá vann fólkið að því að
taka saman hey og koma því upp
í sæti. En seint um kvöldið, eftir
að allir voru komnir inn frá starfi
sé ég hvar Ágúst stendur úti á
hlaði. Hann var hár maður vexti
en nú sýndist mér hann bera svo
lágt rétt eins og hann væri allur
í keng. Ég fór að aðgæta þetta
betur og sá þá að hánn stóð svona
álútur og hallaðist fram eins og
hann væri að hlusta eitthvað út
í loftið. Öðru hverju rétti hann þó
úr sér og bar hönd fyrir augu
ög horfði til lofts. Þetta endur-
tók hann margsinnis. Mér þóttu
þetta svo skrýtnir tilburðir, að ég
gekk til hans og spurði, hvað hann
væri að gera.
„Ég er að hlusta eftir henni
Stóru-Laxá‘, svaraði hann og hall
aðist enn fram yfir sig í áttina
að ánni. Síðan bætti hann við:
„Sérðu ekki heysætin þarna í tún
Framhald á bls. 10.
Þórarinn Guðmundsson með fiðluna (Mynd: Oddur Ölafsson)
§
Skrifstofustarf
Viljum ráða mann til starfa við bókhald
á aðalskrifstoíu félagsins.
Oliverzlun Islands hf.
Hafnarstræti 5 — Keykjavík.
Buxnadragtir
pils og jakkar
NÝTT FRÁ LONDON
LAUGAVEGI 116.
OPEL 9f^F^
BEEOBD LQ) U
Nýtt glæsilegt útlit 12 volta rafkerfi
Stærri vél 1 aukín hæð frá vegi
Stærri vagn og fjöldi annarra nýjunga
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA
A.RMULA
mm ‘
TILKYNNING
Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að veita
styrki til náms erlendis í félagsráðgjöf.
Styrkir þessir eru fyrst og fremst ætlaðir
þeim, er hyggjast takast á hendur félags-
málastörf í stofnunum Reykjavíkurborgar,
t.d. í sjúkrahúsum, við barnavernd og félags-
málaskrifstofu.
Askilið er, að umsækjendur hafi a.m.k. gagn-
fræðapróf.
Umsóknum skal skilað í skrifstofu félags- og
framfærslumála, Pósthússtræti 9, eigi síðar
en 30. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri
næstu viku daglega, nema laugardag, kl.
16.00—17.00.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
5. nóvember 1966.