Alþýðublaðið - 12.11.1966, Qupperneq 4
Bttstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Rltstjórnarfull-
trúl: Eiöur Guönason. - Símar: 14600-K903 — Auglýslngaslml: 14800.
Aösetur AlþýButiúslö viö Hverfisgötu, Keykjavík. — PrectsmiSja Alþýðu
bUöslas. — Askrlftargjald kr. 95.00 — I lausásölu kr. 7,00 eintaiíte,
tftgefandl AlþíSuflokkurimi.
ÞJÓÐNÝTiNG
NÝAFSTAÐIÐ þing Sambands ungra jafnaðar-
manna hefur heldur betur farið í taugamar á rit-
stjórum Morgunblaðsins, sem virðast nú vera farnir'
,að gera sér grein fyrir þessari staðreynd íslenzkra
stjórnmála, að jafnaðarstefnan og hugsjónir hennar,
eiga sívaxandi fylgi að fagna meðal unga fólksins.
Er gremja þeirra ofur skiljanleg, þegar það er haft
í huga, 'að í síðustu, borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík beið Sjálfstæðisflokkurinn sinn mesta ó-
sigur til þessa, og voru það hrakfarir, sem enn er
ekki séð fyrir endann á. í þeim kosnmgum setti
Sjálfstæðisflokkurinn nokkra unga lögfræðinga á lista
sinn, og sagðist um leið vera sá flokkur, sem mest
gerði fyrir unga fólkið. En hvað skeði? Fylgishrunið
varð herfilegt og unga fólkið kaus aðra flokka en
Sjálfstæðisflokkinn, þrátt fýrir ungu frambjóðend-
urna. Enda voru eldri mennirnir í flokknum ekki
seinir á sér að skella skuldinni yfir á hina ungu, og
kenna þeim hve illa fór.
Þessa dagana fer það mest í taugar Morgunblaðs-
ritstjóranna, að ungir jafnaðarmenn skuli í ályktun-
um þings síns hafa minnzt á þjóðnýtingu. Syngur
Morgunblaðið sinn gamla söng um, að nú sé verið
að vekja upp þjóðnýtingardrauginn og boði bessi
stefna versta afturhald.
Það er mikill misskilningur hjá Morgunblaðinu, að
þjóðnýting sé hvarvetna horfin af stefnuskrám jafn-
aðarmanna. Ber fullyrðing blaðsins aðeins vott um,
að ritstjórar þess fylgjast ekki eins vel með stjórn-
málaþróun úti í heimi, og ætlast mætti til af þeim.
Jafnaðarmenn leggja í dag ekki eins mikla áherzlu
á þjóðnýtingu og gert var fyrr á árum, en það að þeir
séu henni algjörlega fráhverfir, er fjarstæða.
Þjóðnýtingarstefnan á sér ekki aðeins talsmenn með
al jafnaðarmanna. Hún á sér einnig valdamikla tals-
menn innan Sjálfstæðisflokksins. Hvað segir Morgun
blaðið til dæmis, um þá stefnu Ingólfs Jónssonar
landbúnaðarráðherra að þjóðnýta Áburðarverk-
smiðjuna, sem nú er í eigu hlutafélags? Fróðlegt
væri að fá svar við því. Hver er undirrót þess, að
einn helzti talsmaður Sjálfstæðisflokksins telur^ að
þjóðnýta beri Áburðarverksmiðjuna, en ekki ýmis
önnur fyrirtæki, eins og til dæmis olíufélögin?
Morgunblaðið hefur haft og hefur enn sína þjóð-
nýtingarstefnu. Hún er sú, að þar sem vonlaust er,
að einkaframtakið geti fengið ágóða skuli ríkið sjá
um reksturinn. Ef ríkisfyrirtæki gengur vel, skal
afhenda það einkaframtakinu, en ef einkarekstur
gengur illa skal ríkið yfirtaka hann.
Ungir jafnaðarmenn horfa fram í ályktunum þings
síns, og þeir vilja ýmsar breytingar. Það er jafnan
talið eðlilegt, að ungt fólk sé nokkru róttækara, en
þeir sem eldri eru, og þannig er það ævinlega þar
sem líf er í starfsemi unga fólksins.
4 12. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
¥ANTAR bLAUBURÐAK
FÚLK- S
ÉFTIRTAUN RVERFSs
MIÐBÆ, I. OG II.
IIVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
LAUGARNESHVERFI
LAUFÁSVEG
, LAUGARÁS
LAUGARTEIG
KLEPPSIIOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
HRINGBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
SELTJARNARNES, I.
ASKUR
BÝDl’R
YÐUR
SMURT
BRAUÐ
& SNITTUR
ASKUR
suðurlandsbraut 1%
sími 88550
símb i^soo.
Eftirmiðdögskaffi í Lído kl. 3-5,
sunnudag. Viggo Spaar skemmtir
Viggo Spaar
með hinum ótrúlegustu
brögðum og af þeirri
kímni, sem vakið hefur
á honum athygli jafnt á
Norðurlöndum sem í
Þýzkalandi og Austur-
ríki.
Auglýsingasísni Alþýðubla^sinis er 14906
ÁFENGT ÖL:
Góðborgari úr Vesturbænum, sem liringdi
til okkar í gær var sannarlega ekki myrkur í
máli. Hann kvaðst hafa verið að lesa það í blöðun
um, að nú ætti að fara að framleiða áfengt öl
liér á landi, — til útflutnings. Hvað kemur til
spurði hann, að okkar ágætu alþingismenn, sem
meðal annars standa að því, að ríkið selur okkur
rótsterkt brennivín á þriggja pela flöskum, skuli
telja það þjóðarháska, ef leyft yrði að selja hér
öl með rúmlega fjögur prósent áfengisinnihaldi?
Mér finnst ýmislegt torskilið af því, sem stjórn
málamennirnir gera, sagði hanri, en þetta finnst
mér þó . einna vitlausast.
Á það hefur verið bent, að áfengur bjór
er seldur hér á svörtum markaði í allstórum stíl,
— og liann er talsvert dýr. Ég veit til dæmis
til þess að á síldarhöfnum fyrir austan var verð
ið á bjórkassa á svörtum markaði allt að átta
hundruð krónur. Ef menn eru fúsir til að borga
þessi býsn fyrir bjórinn, sé ég ekki betur en hér
sé um stórkostlega tekjulind að ræða fyrir okkar
Játæka ríkissjóð.
FURÐULEG HRÆSNI.
Þetta mál, sem og raunar áfengismálin öll hér
á landi, einkennast af svo furðulegri hræsni, að
það tekur ekki nokkru tali, hélt hann áfram.
Nú síðast er talað um að innleiða það, að
veitingahúsin hér verði vínlaus eitt laugardags
kvöld í mánuði_ Halda menn virkilega f alvöru
að þetta sé leiðin til að halda æskunni frá áfeng
inu? Þetta er ekki leiðin til þess, en ef menn vilja
á ný innleiða vasapela fylliríið alræmda, þá er
þetta hinsvegar leiðin.
Svo sneri hann sér aftur að ölinu ,sem nú
á að fara að framleiða á Akureyri og sagði: Ég
veit að margir íslendingar verða forvitnir að
smakka þetta öl, og það er ég sannfærður um að
mönnum tekst, þótt það eigi ekki að takast. Menn
hafa ævinlega leiðir til að verða sér úti um bann
vöru, ef þeir virkilega hafa hug á því. Annar
hver maður, sem og hefur verið talað við hefur
bragðað Egil sterka og allir hrósa honum. Það er
kominn tími til þess að hrist verði duglega upp í
þessum málum, sagði góðborgarinn að lokum, það
á að hætta að láta hræsnara ráða, horfast í augu
við staðreyndir og reyna að gera eitthvað af viti
áfengismálunum í stað þess að sitja auðum hönd
um eða gera tómar vitleysur eins og nú er gert.
^jjgsa’
■ J