Alþýðublaðið - 30.11.1966, Page 1
Mfflvikadsgur 30. nóvember - 47. árg. 269. tbl. - VERÐ 7 KR.
SKAFLAR
Það átíu margir í erfiSleikum með bílinn sinn í morgun og
sennilega hafa strætisvagnarnir sjaldan verið f.vllri. Það er
nii orðinn talsvcrður snjór hér í höfuðstaðnum, sá mesti á
þessum vetri — og sannkallaður jólasnjór.
Tillagan um aði
Kína að SÞ kolfe
NEW YORK, 29/9 (NTR-Reu- |
ter) — Riki þau, sem beitt hafa !
sér fyrir aðild Kína að' SÞ biðu
herfilegan ósignr þegar AUsherij-
arþingið felidi tillöguna um að-
ild Kína að samtökunum með' 57
atkvæðum gegn 47 í dag. 17 ríki
sátu hjá, og fulltrúi eins rikis,
Laos, var fjarverandi.
ísland greiddi atkvæði gegn að-
ild Kina, en liin Norð'urlöndin
greiddu tiUögunni atkvæði.
Þótt búizt hafi verið við að til-
lagan yrði felld, bjóst enginn við
þvi, að hún yrði felld með svona
miklum meirihluta. Hin óvægna
utanríkisstefna Kínverja og starf-
semi Rauðu varðliðanna ihafði mik
il áhrif á úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar, að sögn kunnugra.
Fyrr í dag samþykkti Allsherjar
þingið á ný tillögu Bandaríkja-
manna um, að telja verði hugsan-
lega aðild Kína svo mikilvægt mál,
að hún verði að fá tvo þriðju
meirihluta lá Allsherjarþinginu.
66 ríki greiddu bandrísku tillög-
unni atkvæði, 48 voru á móti og
sjö ríki sátu hjá. ísland greiddi
tillögunni atkvæði.
Nauðsyn að
r
hindra verð
innanlands
Reykjaívk, — EG.
— Það er nú brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar, að vasklega
verð'i hriigciö vii í þtim vanda, sem við er að' etja og komið í veg
fyrir verðhækkanir i'inanlands. Ef verðhækkanir verða, munu
þær hafa í for með sér minnkandi útflutningsframleiðslu, en það
mundi svo aftur orsaka versnandi lifskjör, og til slíks má ekki koma,
sagði Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra í umræðum mn verð-
stöðvunarfrumvarpið á Alþingi í gær. Hann kvað þessi mál hafa
verið rædd ítarlega á nýafstöðnu flokksþingi Alþýðuflokksins, og þar
verið samþykkt að styðja þær grundvallarráðstafanir. sem í frum-
varpinu feldust.
væri að gera nú ráðstafanir til að
firra bæði síldariðnaðinn og frysti
húsin sjkalkkafö^um, væri þess
nokkur kostur. Hann minnti á stór
auknar niðurgreiðslur og hækkun
fjölskyldubóta, sem liði í þeirri
fyrirætlun, sem þetta frumvarp
miðaði að. Hann kvað rikisstjórn-
ina hafa haft samráð við laun-
þega og atvinnurekendur, en ekki
hefði tekizt þar að ná samkomu-
lagi, en undirtektir forseta ASÍ
og fulltrúa verkamanna hefðu þó
verið mjög vinsamlegar, en þeir
hefðu sagt, að enn væri of margt
óljóst í þessum efnum. Hann kvað
kaupmenn og iðnrekendur ekki
hrifna af þessum ráðstöfunumj
Framhald á 15. síðu.
Ríki þau, sem stóðu að tillög-
unni um aðild Kína, kröfðust þess
sem fyrr, að Formósu yrði vikið úr
samtökunum um leið og líína væri
veitt aðild. Meðal ríkja þeirra, er
stóðu að tillögunni, voru Alban-
ía og Kambódía. Skilyrðið varð
til þess, að nokkur riki sem ella
hefðu greitt tillögunni atkvteði
greiddu atkvæði gegn henni.
Bretar greiddu tillögunni ; at-
kvæði og studdu ehinig tiliöga
Bandaríkjanna að aðili Kína verði
að liljóta tvo þriðju atkvæða. ÁRs
herjarþingið hafnaðí einnig ít-
alskri tillögu um, að SÞ skipi
nefnd til að kanna afstöðu Klna
gagnvart SÞ og hvort Kína xfhmi
fallast á ákvæði sáttmála SÞ.
Skömmu áður en atkvæðagreiðsl
Framhald á 14. siðu.
Hækkerup
forsætis-
róðherra?
KAUPMANNAHÖFIJ, 29/11 (N
TB-RB) — Kaupmanr.ahafnarblað
ið „Politiken" sagði í forystugíein
í dag að ekki mundi koma á óv*rt
ef Jens Otto Krag- helgaði sig
utanrikismálunum ei'ngangu er
frá liði kosningTinum «g ró kæm-
ist á, en þa yrffi Per Hækkerup
sjálfkjörinn eftirmaður hans sem
f orsæi isráffherra.
Málgagn jafnaðarmanna, „Aiktu-
elt“, telur að hin nýja minnihluta
stjórn Krags sé langtum öflligri
en fráfarandi minnihlutastjórn,
Framhald á 14. síffu.
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra mælti fyrir verðstöðv-
unarfrumvarpinu og rakti í upp-
hafi máls síns sveiflukennt eðli
höfuðatvinnuvega okkar, og sagði
að eðlilegt væri, að menn vildu
<h;^a sem jafnasAar tekíiur, olg
kæmi þetta bezt í ljós, þegar mikil
velgengni væri í einstökum at-
vinnugreinum, eins og verið hefði
í síldveiðunum undanfarin ár.
Meiri síld hefði nú veiðzt, en
nokkurn hefði getað órað fyrir
fyrr á árum, og þessi afli hefði
skapað gjörbreytta tekjuöflunar-
möguleika hjá þeim sem við þessa
grein störfuðu. Verðlagsþróun út-
flutningsafurða hefði verið hag-
stæð undanfarin ár og því getað
borið uppi launahækkanir innan-
iands. Rakti hann síðan þær verð
lækkanir, sem orðið hafa á helztu
útflutningsafurðum okkar, síldar-
mjöli, síldarlýsi og freðfiski.
Framhjá þessum staðreyndum
verður ekki komizt, sagði hann,
þegar efnahagsmálin eru atliug-
uð. Meðan verðið á afurðum okk-
ar var gott skapaði þetta ekki
teljandi örðugleika innanlands, en
nú þegar breyting er orðin á, er
nauðsynlegt að bregðast við með
einhverjum hætti. Hann kvað afla-
magnið eitt hafa bjargað því, að
síldveiðar væri enn unnt að stunda
þrlátt fyrir verðfallið, og eðlllegi
Blabakonu neitaö um
vegabréf til Ameríku
Rvík, — ÓTJ.
LOFTLEIÐIR buðu fyrir
skömmu einum blaðamanni frá
liverju Reykjavíkurblaffanna í
viku ferffalag til Ameríku í þeim
tilgangi aff kynna starfsemi fyr
irtækisins þar. Lagffi hópurinn
af staff síðastliffna nótt, aff und
anskildum fulltrúa Þjóðviljans,
Vilborgu Harffardóttur. Ástæffan
er sú aff henni var neitaff um
vegabréfsáritun af pólitískum á-
stæffnm. Þar sem um boffsferff
var aff ræffa var sótt um sér-
stakt leyfí, en viff þeirri mála-
leitan barst ekkert svar. Stjórn
Blaðamannafélags íslands kom
saman til skyndifundar í gær
vegna þessa máls, og var am-
bassador Bandaríkjanna sent mót
mælabréf vegna hinnar lítt skilj
anlegu afgreiffslu þess. Umrædd
'■laóakona er aff vísu bæffi dUg-
leg og hæfileikum gædd, en viff
verffum samt aff draga í efa aff
henni tækist aff steypa stjórn
Bandaríkjanna á einni viku