Alþýðublaðið - 30.11.1966, Síða 3
MHHWtHMHHmMHMMHHMUHMMnHW WMMVWVWmtWMWWWWMW >1 MtHW
Þrjár höggmyndir / stækkun
HIN STÓRA höggmynd Ás-
mundar Sveinssonar, sem Loft-
leiðir festu kaup á, var í gær-
morgun sett upp framan við
skrifstofu og hótelbyggingu fé-
lagsins á Reykjavíkurflugvelli.
Eins og áður hefur verið sagt
frá í Alþýðublaðinu var mynd
þessi stækkuð í Sindrasmiðj-
unni og stóð Jón Gimnar Árna
son fyrir því verki. Frummynd
ina að þessu verki gerði Ás-
mundur fyrir nær tveim ára-
tugum og hefur myndin oft
verið á sýningum hér á landi
og erlendis. Myndin var stækk-
uð upp í 3,60 metra og stendur
nú á stöpli sem er 2,70 metrar
á hæð.
Unnið er að stækkun á þrem
öðrum Ihöggmyndum eftir Ás-
mund sem settar verða upp á
almannafæri. Reykjavíkurborg
er að láta stækka Vatnsberann
og Öldugjálfur og hópur eldri
stúdenta hefur fest kaup á
myndinni af Sæmundi fróða á
selnum og verður hún gefin
Háskóla íslands þegar stækk-
unin er fullgerð. Væntanlega
verður henni komið fyrir á há-
skólalóðinni. Þessar þrjár
myndir verða allar steyptar í
brons erlendis.
Aftur á móti er mynd Loft-
leiða stækkuð með öðrum1
hætti eða þannig að eirþynnur 1
eru settar utan á stálgrind.3
Með þeirri aðferð er nú mögu- í
leiki á að stækka nrer hváða
höggmynd sem er hér á landi
í stað þess að senda þær utan
og láta steypa í brons, sem er
mun dýrari aðferð.
BÆTT AÐBÚÐ OG LÆKNAÞJÓN-
USTA VIÐ SÍLDARSJÓMENN
Reykjavík — EG.
Þrír þingmenn Alþýðuflokksins
þeir Hilmar S. Hálfdánarson, Bene
dikt Gröndal og Sigurður Ingi
mundarson hafa flutt svohljóðandi
þingsályktunartillögu um bætta
aðbúð og læknaþjónustu fyrir síld
arsjómenn:
Alþingi ályktar að fela ríkis
stjórninni að skipa firnm manna
nefnd til að athuga og gera tillög
ur um bætta aðbúð síldarsjómanna
í landi, m.a. að því er varðar stofn
setningu og starfrækslu sjómanna I Jafnframt verði nefndinni falið
stofa á öllum meginhöfnum Austur að kanna, hvort ekki sé möguleigt
lands. I Framhald á bls. 14.
Rætt viö sjónvarpstæknim.
TÆKNIMENN sjónvarpsins
hafa boðað að þeir muni leggja
niður vinnu 1. des. verði ekki
gengið að kröfum þeirra um að
þeir verði hækkaðir í launaflokki.
Þetta mál hefur nú verið æði Iengi
í athugun hjá fjármálaráðuneýti.
í gær var rætt við tæknimennina
en ekki var samið endanlega en
Framhald á bls. 14. ‘
Vísað kurteislega á dyr
Reykjavik, Ó.T.J.
MIKLA athygli liefur vakið
svikamál það sem danska rann-
sóknarlögreglan er að kanna
hér í samvinnu við íslenzka
kollega sína, en jafnframt er
mikil Ieynd um alla hluti í
feamba|nc>.i við það. Svo sem
skýrt liefur verið frá er for-
stjóri Hovedstadens' Möbelfa-
brik, grunaður um að hafa
kveikt í liúsi fyrirtækisins til
þess að eyðileggja skjöl sem
sönnuðu á liann fjárdrátt og
annað misferli. íslenzkir aðilar
eru sagðir flæktir í málið, en
ckki fást upplýsingar um þeirra
hlutdeild, frekar en annað.
Fréttameun Ajþýðublaðlsins
litu inn til rannsóknarlögregl-
unnar í gærdag til þess að
reyna að hafa tal af Dönunum,
en án árangurs. Jatnskjótt og
þeir kynntu sig var þeim kurt-
eislega vísað á dyr — með
breiðu brosi. Þó tókst að ná
mynd af öðrum lögreglumann-
anna og endurskoðanda, sem
þeir hafa með sér.
Ólafur Jónsson. Brynjólfur Jóhannesson.
Karlar eins og ég -
bók um Brynjólf
KARLAR EINS OG ÉG nefnist
nýútkomin bók sem hefur að
geyma æviminningar Brynjólfs
Jóhannessonar, leikara. Ólafur
Jónsson færði í letur og útgef-
andi er Setberg. Gísli B. Björns-
son sá um útlit bókarinnar.
Brynjólfur Jóhannesson er með
elztu leikurum sem enn eru í fullu
fjöri og vafalítið hinn vinsælasti.
Hann hefur nú starfað um 42 ára
skeið hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur í Iðnó og hefur auk þess farið
með mörg hlutverk í öðrum leik-
húsum. Gefur því ævisaga Brynj-
ólfs góða mynd af leiklistarlífi í
Reykjavík í rúmlega fjóra ára-
tugi.
Bókin er 220 blaðsíður að stærð
Framhald 14. síðu.
30. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3