Alþýðublaðið - 30.11.1966, Blaðsíða 6
Eins og þegar hefur verið frá
skýrt í Alþýðublaðinu voru til-
lögur og álit skipulags og laga
n efindar ASÍ-þingsins, samþykkt á
þinginu sl. miðvikudagskvöld með
nær öllum greiddum atkvæðum
gegn einu. Fór atkvæðagreiSslan
fram í þrennu lagi, fyrst um álit
og tillögur, síðan um ákvæði til
bráðabirgða og loks tillaga um
kosningu skipulagsnefndar, er
staxfa skal fram að framhaldsþingi
sem haldið verður í nóvember. Hér
fara á eftir élit og tillögur nefndar
innar:
30. þing A lþýðusambands íslands
ítrekar fyrri samþykktir sambands
þinga um íkipulagsmál. Á grund
velji þeirra og með hliðsjón af feng
inni reynslu, lýsir þingið yfir því
að það teli.r að leysa beri skipu
lagsmálin í aðalatriðum á eftirfar
andi grundvelli:
1) Alþýðu.jambandið verði heild
arsamtök v<a-kalýðsins, byggt upp
af landssnn böndum stéttarfélaga í
meginatriðim á grundvelli fyrri
samþykkta og þeirrar þróunar,
sem siðan hefur orðið. Þeim nú
verandi f:a nbandsfélögum, sem
ekki verður skipað í landssamband
skal heimil Éframhaldandi bein að
ild að Alþ\ Susambandinu, en leit
ast skal við að skapa möguleika á
að þau geti skipað sér í landssam
bönd. Blöneuð féiög t.d. sjómanna
og | verkamanna geta átt aðild að
fleiru cn einu landssambandi, méð
deildarskipttngu, eða öðrum hætti
sem samkomulag verður um milli
viðkomandi landssambanda og fé
laga.
Jafnframt geri stjórnir Iands
sambandan:;a f samráði við aðild
arféiögin og viðkomandj fjórðungs
sambönd áratlun um stækkun fé-
lagssvæða o| aðrar tiltækar aðgerð
ir ,tii að treysta starfsgrundvöli
hinna smærri félagseininga.
2) Landssamböndin verðj skipu-
lögð eftir starfsgreinum og fari
þau með m/Jefni starfsgreinarinn
ar eftir því sem fyrir verður
mælt í lögúm ASÍ og samþykktum
landssambandanna.
30. þingi Aiþýðusambands íslands
þar á meðal kosningum samkvæmt
41. grein og 24. grein sambands
laganna, skal þinghaldi frestað.
Þingið skal kvatt saman að nýju
eigi síðar en 15. nóv. 1967 og skal
verkefni þess það eitt að fjalla um
tillögur laga- og skipulagsnefnd
ar og eða breytingatillögur sem
fram kunna að koma í sambandi
við þær.
Þingið hefur vald til að gera
breytingar á lögum og skipulagi
Alþýðusambandsins samkvæmt 52.
grein laga sambandsins.
Rétt til þingsetu eiga fulltrúar
sem kjörnir voru á 30. þing ASÍ
eða varamenn þeirra sbr. þó á
kvæði 33. greinar sambandslag-
anna. Við atkvæðagreiðslur um
lagabreytingar skal viðhafa alls-
herjaratkvæðagreiðslu og hefur
'iver fulltrúi jafnmörg atkvæði og
félagsmannatölu þeirri nemur,
sem hann er fulltrúi fyrir.
Nú vill félag senda færri full
trúa en það á rétt til, og fara þá
fulltrúar (fulltrúi) þeir sem mæta
með atkvæði, miðað við heildar
tölu félagsmanna.
30. þing ASÍ samþykkir að kjósa
nefnd í laga- og skipulagsmálum.
Nefndin starfi til framhaldsþings
og geri tillögur um nauðsynlegar
breytingar á lögum og skipulagn
ingu ASÍ.
Tillögur nefndarinnar skuli lagð
ar fyrir framhaldsþing það, er
halda skal samkvæmt bráðabirgða
ákvæði laga ASÍ, en meginefni
tillagna sinna, skal nefndin senda
sambandsfélögum fyrir lok marz
mánaðar 1967.
Sambandsfélögin skulu ræða og
taka afstöðu til tillagnanna eigi
síðar en mánuði fyrir framhalds
þingið.
Eðvarð Sigurðsson, Óskar Hall-
grímsson, Jón Sn. Þorleifsson,
Jóna Guðjónsdóttir, Pétur Sigurðs
son, Bjöm Þórihallsson, Björgvin
Sighvatsson.
Með fyrirvara:
Jón Ingimarsson, Sveinn Gamalíels
son, Jón Bjarnason.
Dúfnaveizla Laxness var sýnd í fyrravetur við geysiniikla aðsókn og
vinsældir. Leikritið var tekið aftur til sýningar í vetur og í kvöld
verður það sýnt í 10. sinn á þessum vetri. Hefur ævinlega verið
húsfyllir. Myndin hér að ofan er úr einu atriði leiksins, talið frá
hægri: Borgar Garðarson, Haraldur Björnsson og Hclga Bachmann.
Sðgur og sagnir úr Vestmannaeyjum
Skuggsjá hefur látið gefa út
„Sögur og sagnir úr Vestmanna-
eyjum“, sem Jóhann Gunnar Ól-
afsson hefur tekið saman. Um út-
gáfu þessarar bókar, seigir svo á
kápusíðu:
„Árin 1938 og 1939 komu út tvö
hefti af Sögum og sögnum úr
Vestmannaeyjum, sem Jóhann
Gunlnar Óiafsson hafði saftiað1.
Hefti þessi séidust fljótlega upp,
enda mun upplag þeirra hafa ver-
ið takmarkað. Var því horfið að
því ráði að prenta sagnir þessar
á ný og er hér, í þessari bók, að
finna allar þær sagnir, sem í heft
unum tveim voru, nema nokkuð
hefur verið fellt burt af kveðskap
þeim, sem var í 2. hefti. Hinsveg-
ar hefur verið bætt við nokkrum
smáþáttum og einnig fylgir þess-
ari útgáfu ýtarleg nafnaskrá, sem
ekki vannst tími til að láta fylgja
fyrstu útgáfu sagnanna."
Sagnir þessar eru flokkaðar nið
ur í eldri og yngri sagnir og taka
þær yngri yfir megin hluta bókar-
innar, en hún er alls 268 hls. að
stærð. Fyrsta sögnin í bókinni er
tekin úr Þjóðsögum Jóns Árna-
sonar. Er hún örstutt og hljóðar
á þessa leið:
„Sú sögn er og til um Vest-
mannaeyjar, að tröll hafi átt að
kasta þeim út á sjó þangað sem
þær eru, og það allt sunnan af
Hellisheiði, en ókunnugt er mönn
um um önnur atvik að því.“
GJörbreyting verð
ur á skipulagi ASl
3) Núverandi sambandsfélög verði
aðUar að landssambandi viðkom
andi starfsgreinar og kjósi fulltrúa
á þing þess, eftir nánar ákveðn
um refrlum.
4) Landssamböndin verði beinir
aðilar að Albýðusambandinu og
þing ASÍ verði skipað fulltrúum
landssamban<tanna, og félaga sem
utan þeirra kunna að standa, kjörn
um eftir resrlum .sem settar verða
ílögum Aibvðnsambandsins.
5. Réttamaða núverandj fjórð-
ungssambanda og fulltrúaráða
verði akveðin í Jögum Alþýðusam
bandsins.
Fjórðungssamböndin og fulitrúa
ráðin vei’ði tengiliður milli félaga
á sambandssvæ«i sínu, landssam
bandanna og ASÍ.
Þan favf .=ameiginieg mál-
efni félasanna n* hafi á hendi þjón
ustu fvrirgreiðslu fyrir þau.
Þegar lokið er afgreiðslu máia á
l eina tíð voru svokölluð Farth
-g, frímerki á ferð og flugi um
íða veröld, en nú sjást þau, ekki
'ngur á póstsendingum, aðeins í
ilbúmum frímerkjasafnara. Farth
ng-myntin er nefnilega ekki ieng
ur í gildi í brezka heimsveldinu
Farthing var mjög lág mynt, lík
lega liálægt einum eyri ísl. Og hér
kemur mynd af frímerki £ Ber-
muda-eyjum yfirprentað með orð
unum „One Farthing". Einhverjir
mundu ef til vill spyrja sem svo:
„Hvaða póst var hægt að flytja
fyrir svo lágt burðargjald?“ Jú,
þetta Bermuda-frímerkl var notað
á dagblaðapóst. Prentað mál er
venjulega í lægri taxta hjá póst
húsunum en bréfa-póstur, hvað
burðargjöld snertir. Allt fram að
aldamótunum 1900 var það svo á
Bermudaeyjum, að allur blaða-
póstur var burðargjaldsfrír en sú
breyting varð á eftir það, að frí-
tnerkja þurfti prentað mál með ein
um Farthing. Þessar nýju reglur
um burðargjald fyrir prentað mál
voru ákveðnar skömmu fyrir jól
árið 1899 og var þá þegar sent
hraðskeyti til prentsmiðju einnar í
London og hún beðin að sjá um
útgáfu á eins Farthings-frímerkj
um, helzt fyrir áramót. Prentsmiðj
an reyndi að hraða prentuninni
og gerði sitt bezta til þess að frí-
merkin yrðu tilbúin í tæka tíð.
Fyrst var ákveðið að yfirprenta
eins shiilings-merki, sem nóg var
til af, en fljótlega var horfið frá
þessu, einhverra hluta vegna, lík
iega þó vegna litarins, sem var of
líkur hærri verðgildum af Ber
muda-frímerkjum. Hinsvegar var
nú tekið til við að prenta þessi
shillingsmerki í gráum lit og yfir
prenta þau síðan með „one Farth-
ing“. En allt tekur sinn tíma.
Hinn 1. janúar 1900 voru þessi
frímerki enn ókomin til Bermuda
íbúar eyjanna fengu því blaðapóst
sinn burðargjaldsfrítt fram til 11
janúar en þá komu loks þessi frí
merki frá London.
Um upplag þessara „one Farth
ing“-frímerkja er ekki vitað ,en
mikið var prentað af þeim, og þótt
nú séu liðin nær 66 ár frá útgáfu
þeirra, er ekki mjög erfitt að eign
ast þau.
Það var víst árið 1908, sem Ber
muda-eyjar fengu Farthing merki
án yfirprentunar, en eftir heims
styrjöldina fyrri, er allt tók að
stíga í veröi, urðu Farthing-merki
ekki hentug á póstsendingar vegna
síns lága verðgildis. Síðan 1930
hafa þau ekki verið notuð og eins
og áður er sagt, er Farthings-
myntin ekki lengur í gildi í brezka
heimsveldinu.
Frímerkjaþátturinn var beðinn
að geta þess að lítil prentvél hand
knúin er til sölu. Hentug fyrir þá,
sem vildu prenta fyrstadags-umslög
sín sjálfir t.d. frímerkjaklúbba.
Þeir sem vildu fá nánari upplýsing
ar, sendi þættinum línu. Verð vél
arinnar er nálægt 7 þús. kr. Utan
áskrift þáttarins er: Frímerkja-
þáttur Alþýðublaðsins, Hverfis-
göíu 8 — 10 R.vík.
g 30. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ