Alþýðublaðið - 30.11.1966, Side 10
.4*4^
Næsti dráttur í Happdrætti Alþýðublaðsins verður 23. des-
ember. i»á eru hvorki meira né minna en þjár bifreiðir f boði,
hver annarri giæsiiegri: Hilmann Imp. Vauxhall Viva og volks
wagen. IVSiðinn kostar aðeins 100 kr. og er hér því um ein-
stæti tækifæri að ræöa. Skrifstofan er að Hverfisgötu 4 og
er 22710.
Látið ekki HAB úr hendi sleppa
llaunakerfið "
«Framhald af 7. síðu.
rjeðir um málsafköst eða svo-
nefnda staðla, sem marka þau af
kpst, sem verkafólk á að leggja
fíam áður en það fær bónus. Það
er á bls. 72 í skýrslu stjórnarinn
arog segir svo: Málsafköst eru þau
ajköst er æfður verkamaður skil-
ar sem gagnkunnugur er vinnuað
férð, verkfærum og vélum og vinn
ur með hraða sem unnt er að halda
án þess það skaði heilsu hans.
Hverju verði á þá fólkið að
grelða það kaup sem það fær í
bónus eftir þessari forskrift. Það
á sem sé að greiða hana með
heilsu sinni eða vinnuálagi sem er
ineira en talið er óskaðiegt fyrir
heilsuna.
Mér þykir fyrir þvi að þurfa að
benda á þetta í því plaggi sem trún
aðarmenn verkalýðshreyfingarinn
ar hafa fært okkur til að vinna eft
ir en ég verð samt að gera það.
Ég hefi orðið nokkuð langorð
um þetta efni en þó alltof stutt
orð, vegna þess að þetta mál ligg
ur enn órætt á vörum verkafólks
— þess fólks sem á ótakmörkuðum
vinnutíma á að vinna í ákvæði jafn
erfiðustu vinnuna í landinu. Og
þau eru ennfremur sögð í þeim
tilgangi að fi-am komi sú gagn
rýni sem þarf þegar gera skal mér
liggur við að segja byltingu í
vinnutilhögun og launakerfum —
áður en komið er of langt á þess
ari braut.
Staðlarnir eða málsafköstin eru
alltof há og það kemur í ljós þeg
ar athuguð er vandlega þessi grein
sem ég las hér áðan.
Sem sagt — það sem er heils
unni skaðlegt og það er þá væntan
lega miðað við réttan og sléttan
dagvinnutíma, skal lagt fram fyr-
ir tímavinnukaupið. Bónus skal
greiðast fyrir of mikið eða
helsunni skaðlegt vinnuálag.
Góðir félagar þessi mál öll
þarf að rekja upp og prjóna að
nýju áður en lengra skal haldið,
en fyrst og síðast 1 sambandi við
bónusvinnuna verður að semja um
ákveðinn styttan vinnudag, að öðr
um kosti verði hún ekki tekin upp.
Kvikmydfr
Framhald af 7. síðu.
ur vafasamt og á sízt við klám
myndablöð. Orðið „klám“ er frem
ur saurugrar merkingar, en orðið
„erotik" á fremur við hina já
kvæðu hlið kynlífsins, ef ég mætti
taka svo til orða.
Þessj umrædda kvikmynd til-
heyrir svonefndum „Jeg en“ bóka-
og kvikmyndafjöldaframleiðslu-
flokki ,uppfundnum í Danmörku.
Þessi mynd, Jeg en elsker, er víst
eins konar eftirlíking á Jeg- en
kvinde, sem að líkindum var upp
hafið að þessu öllu saman. Síðan
er komin Jeg -en mand, og ein
hver bók nefnist Jeg- en utro
mand. Þá kemur líklega næst Jeg
en homosexualist og Jeg- en lesbisk
kvinde.
| Hvað sem því og öðru líður, þá
mun sá einn tilgangur þessarar
| myndar að efla og eða æsa upp
kynferðislegar hneigðir kvikmynda
húsgesta. Hér er gerð tilraun til
að framleiða nógu mikil grófleg
heit. En því miður gengur myndin
ekki nógu langt til þess arna.
Grófleiki hennar er hvergi nógu
djúpstæður til að hafa fjörgandi
áhrif á kynlíf manna. Sem sagt:
Boðskapur myndarinnar er fallítt.
Þessi mynd verður því aldrei meir
>en „sokkabandalristoí<ía:‘ );ða| '
„magabeltiskynlífssaga", eins og
spakur maður tók til orða.
Annars hef ég nú alltaf verið á
móti því að hafa kynfýsn manna
að féþúfu:
Sigurður Jón Ólafsson.
Askrift or 14900
25KE3
Fullveldisfagnaður F.U.J.
verður í LIDÓ í kvöld og hefst kl. 21.00, húsið opnað kl. 20.30. Forsala aðgöngu-
miða á skrifstofu Alþýðuflokksins.
DAGSKRÁ:
1. Fagnaðurinn settur: Kristján Þorgeirsson formaður F.U.J. í Reykjavík.
2. Minni íslands: Eggert G. Þorsteinsson, félagsmálaráðherra flytur ræðu-
3. Skemmtiþáttur: Ómar Ragnarsson.
4. Gamanþáttur eftir Svavar Gests, sem tveir þjóðkunnir leikarar flytja.
5. Skemmtikraftur hússins.
6. Miðnæturbomba?
7. Dansað til kl. 2.00 e- m.
Ungir Reykvíkingar fjölmenniö F.U.J.
J[0 30. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ