Alþýðublaðið - 30.11.1966, Síða 15
Verðlækkanir
Framhald aí' bls. 1.
en þeir gerðu sér vonandi ljósa
nauðsyn þessara aðgerða.
Rakti forsætisráðlierra síðan
ýmis efnisatriði frumvarpsins og
lagði til að því yrði vísað til 2.
urnræðu og fjárhagsnefndar.
Eysteinn Jónsson (F) sagði, að
þetta frumvarþ fjallaði alls ekki
um kjarna þess vanda, sem við
væri að etja. Þetta væri frum-
varp um verðlagseftirlit, en ekki
verðstöðvun. Hefði raunar ríkis-
stjórnin þegar í lögum, nær allar
þær heimildir, sem þetta frum-
varp fæli í sér. Kvað Eysteinn
þetta frumvarp aðeins flutt í aug-
lýsinga.skyni, því nú væri ríkis-
stjórnin búin að koma öllum ríkis-
búskapnum í sjálfheldu. Hann
kvað mikla dýrtíðaröldu enn eiga
eftir að skella hér yfir. Spurði
hann síðan hvers vegna ríkisstjórn
in hefði ekki beitt þessum aðgerð-
um fyrr, ef þetta væri svo auð-
velt viðfangs. Hann vék að niður-
greiðslunum, sem nú væru komn-
ar upp í allt að 730 milljónir á
ári, og ef til vill meira, en rúm-
iega 200 milijónir vantaði á fjár-
lög til að standa straum af þess-
um kóstnaði og hækkun fjölskyldu
bóta.
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála-
ráðlierra kvað öll þessi rrtál iiafa
verið rædd ítarlega á flokksþingi
Alþýðuflokksins um síðustu helgi,
og þar verið samþykkt að styðja
þær grundvallarráðstafanir, sem í
þessu frumvarpi fælust.
— Það er brýnasta hagsmuna-
mál þjóðarinnar nú, að vasklega
verði brugðið við í þeim vanda,'
sem nú er við að etja og koma í
veg fyrir hækkanir innaniands,
um þetta er nauðsyn að samstarf
komist á. Mér er til efs, að al-
menningur geri sér ljósa þá grund
, vallarbreytingu, sem átt hefur sér
stað -á verðlagi útflutningsafurða
okkar, sagði 'hann. Kvaðst Gylfi
þess vegna í viðbót við það, sem
forsætisráðherra hefði sagt, vilja
vekja athygli á eftirtöldum stað-
reyndum:
Miðað við verðlag 1965 er heild-
arframleiðsla sjávarafurða í ár um
80 milljón krónum minni.
Verðhækkanir urðu síðari hluta
árs 1965 og fyrri-hluta 1966. Með-
alverð þorskafurða hækkaði um
10% og meðalverð skelfisksafurða
- um 5%, en meðalverð útfluttra
. síldar- og loðnuafurða lækkaði
hinsvegar um 12%. Heildai'verðið
1966 er 2% iægra en verðið var
1965.
Ef það verð sem er nú, hefði gilt
allt þetta ár, sagði Gylfi, hefði
verðmæti útfluttra þorskafurða
aukizt um 3—4% framyfir það
sem var í fyrra, en verðmæti síid-
ar og loðnuafurða hefði orðið 28
% lægra. Heildarl. í ár á þorski,
síld og loðnuafurðum væri því
13%. Ef aflinn væri áætlaður til
áramóta, mundi þetta líta þannig
út, að verðmæti fiskframleiðslu
okkar í ár hefði numið 5675 millj-
ónum króna miðað við verðlag í
fyrra, miðað við meðalverð í ár
næmi verðmætið 5555 milljónum
króna, en ef miðað væri við verð-
ið í dag, væri verðmætið ekki
nema 4925 milljónir króna, eða
I væri 750 milljónum króna minni
en orðið hefði ef verðlag ársins í
fyrra hefði haldizt og 630 millj-
ónum króna minna, en ef miðað
væri við meðalverðið í ár.
Viðskiptamálaráðherra -gat þess
síðan, að landbúnaðarframleiðsl-
an í ár mundi nokkurnveginn ó-
breytt, og iðnaðarframleiðslan í'
ár svipuð.
Af þeim tölum, sem ég hef hér
að framan nefnt, sagði ráðherra,
má sjá hversu alvarlegu lágmarki
verðlagsmJllin hafa nú náð. Ef lit-
ið er á magnaukningu þjóðarfram-
leiðslunnar verður þa|5 uppi á
teningnum, sagði hann, að hún er
3—3,5%, en vegna versnandi við-
skiptakjara verður aukning sjálfra
þjóðarteknanna aðeins 2% eða
sama og nemur fólksfjölguninni
hér, og ef verðlag helzt óbreytt
frá því sem nú er á næsta ári,
mun það hafa í för með sér, að
þessi versnandi viðskiptakjör vega
upp á móti 4% aukningu þjóðar-
framleiðslu, en um það hfrfur
þjóðarframleiðslan vaxið undan-
farin, ár. Þetta eru mikilvægar
staðreyndir, sagði ráðherra. Okk-
ur er nú lífsnauðsyn að staldra
við og koma í veg fyrir að út-
flutningsframleiðslan minnki að
magni til vegna hækkandi tilkostn
aðar innanlands. Slíkt mundi hafa
í för með sér versnandi lífskjör
og verður að beita öllum tiltæk-
um ráðum til að koma í veg fyrir
að svo verði.
Lúðvik Jósefsson sagði, að ræða
Gylfa hefði verið mjög villandi
og hann reynt að draga upp ein-
hverja hi-yllingsmynd af óstand-
inu, en þó væri alls ekki ljóst enn,
hvernig ástandið í þessum verð-
liagsmálum yfirleitt væri. Hann
sagði, að ríkisstjórnin væri að
reyna að skjóta sér undan vand-
anum. í frumvarpi hennar væri
ekkert sem segði að verðlag ætti
að stöðvast, heldur væri aðeins
um -heimildir að ræða. Stefna rík-
isstjórnarinnar fær ekki staðizt,
sagði Lúðvík, og hún verður að
víkja frá henni. Hann gagnrýndi
síðan alltof hiia álagningu á mörg-
um sviðum, sem hefði mjög hækk-
að undanfarin ár, og taldi að mjög
þyrfti að breyta skipan eftirlits
með verðlagi, því fáránlegt væri
ef nú ætti að fara að löggilda þá
háu álagningu, sem nú væri í
gildi.
Lúðvík varð að gera hlé á ræðu
inni, er fundartíma var lokið kl.
fjögur, en hann hélt áfram ó síð-
degisfundi og sagði þá meðal ann
ars, að það væri engin lausn að
stöðva verðlagið eins og það væri,
heldur þyrfti nú þegar að taka
upp mjög öflugt verðlagseftirlit.
Þá kvaddi :sér hljóðs Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra,
hann kvað stjórnarandstæðinga
.viðurkenna, að einhverra aðgerða
væri þörf vegna aðstöðu atvinnu-
veganna. Bjarni kvað skýrt að
orði um það, að heimild frum-
varpsins um verðstöðvun yrði
beitt, þegar það væri orðið að lög-
um. Skoðanir manna væru skiptar
um verðlagseftirlit sagði hann, og
vafalaust væri verðlagseftlitið hér
orðið gagnslítið, en um langan
tíma væri strangt verðlagseftirlit
ekki raunhæft, því menn virtust
ævinlega finna leiðir til að fara
í kring um það.
Einar Olgeirsson sagði, að ætl-
un frumvarpsins og ríkisstjórnar-
innar væri að ihalda niðri kaupi
verkamanna. Sneri hann sér síðan
að álagningarmálum og sagði
frjálsa ■ samkeppni ekki til hér,
vitnaði meðal annars til oliufélag-
anna, og -sagði einnig, að heild-
salar hér hefðu með sér samtök
mn að halda uppi verði og sendu
út leynilega lista um álagningu.
Minnti hann á frlá-sögn Alþýðu-
blaðsins um heildsalann, sem neit-
aði að selja ákveðinni verzlun
barnaföt, vegna þess að verzlun-
in legði ekki nógu mikið á.
Ljúka átti fyrstu umræðu um
málið í gærkvöld.
Flokkstjórn
FramHalo af X. sfða.
Friðjón Skarphéðinsson, Ak.
Kristján Sigurðsson, Sigluf.
Einar M. Jóhannesson, Húsav.
Magnús Bjarnason, Sauðárkr.
Sigurjón Sæmundsson, Sigluf.
Steindór Steindórsson, Akur.
Austurland:
Arnþór Jensson, Eskifirði
Guðlaugur Sigfússon, Reyðarf.
Gunnþór Björnsson, Seyðisf.
Hilmar Hálfdánarson, Reyðarf.
Sigurjón Kristjánsson, Neskst.
Varamenn í flokksstjóm utan
Reykjavíkur og nágrennis:
Su'ðurland:
Guðmundur Jónsson, Selfossi
Eggert Sigurlásson, Vestm.
Ásgeir Ágústsson, Stykkish.
Stefán Guðmundsson, Hverag.
Reynir Guðsteinsson, Vestm.
Snæbjörn Einarsson, Helllss.
Ásgeir Einarsson, Keflavík
Sigríður Ólafsdóttir, Akran.
Sigríður Jóhannesdóttir, Keflv.
Vestfirðir:
Ingibjörg Finnsdóttir, ísaf.
Sigurður Jóhannesson, ísaf.
Óli. Jóh. Sigmundsson, ísaf.
Eyjólfur Bjamason, Suðureyri
Guðmundur Andrésson, Þing.
Páll Jóhannesson, Patreksf.
Eyjólfur Jónsson, Flateyri
Norðurland:
Jón Þorsteinsson, Blönduósi
Þorvaldur Jónsson, Akureyri
Guðmundur Hjálmarsson, Blö.
Jóhann G. Möller, Siglufirði
Einar Fr. Jóhannesson, Húsav.
Björn Guðmundsson, Hv.taniga
Þorsteinn Hjálmarsson, Hofs.
Kristján Jóhannesson, Dalvik
Austurland:
Egill Guðlaugsson, Fáskrúðsf.
Ari Bogason, Seyðisfirði
Sigurður Pálsson, Borgarfirði
Steinn Jónsson, Eskifirði
Kristján Imsland, Hornafirði.
Framhald af 11. síðu.
ar með góðu langskoti, þá ná Þjóð
verjarnir hröðu upphlaupi og
skora, en Sig. Einarsson skorar
af línu eftir sendingu frá Erni.
Nú ná gestimir tveimur hröðum
upphlaupum og -skora úr toáðum
og skömmu síðar er Erni vikið
steinn var allan timann í mark-
inu en það var mikill misskiln-
ingur hann átti stórgóðan leikj
í fyrri hálfleik, en tók varla,
bolta í síðari hálfleik. Nær hefði
verið að skipta og setja Kristófer
inn á þá. Gunnláugur fvrirliði
stóð sig vel í sókninni, en var
með afbrigðum lélegur bakvörð
ur. Ingólfur átti góðan dag, en
má ekki láta skap sitt bitna á
meðspilumm sínum. Sig. Finars-
son var að vanda góður og þeir
bræður Örn og Geir sömuleiðis,
en Geir fékk ekki að vera nógu
mikið inn á í seinni hálfleik)
Hermann var góður í fyrri hálif-
leik en týndist í þeim seinni
Mörkin skoruðu: i ,
ísland: Ingólfur 5, Gunnlaugur 4*
Geir, Örn, Hermann 3 hver.Jón
og Si:g. Einarsson 1 hvor.
V-Þýzkaland: Lubkink 8, Hönn;
ige, Schmidt 4 hvor, Heger, Mii
ehleisen 3 hvor, Bartels 2, Feld-;
hoff 1.
Vikið af leikvelli í tvær mín. Öm
Hallsteinsson og Guðjón Jónsson.
af leikvelli fyrir lítilvægt. brot
og á meðan skora Þjóðverjanrir
og jafna nú 15-15 á 15. mín.
Á sömu mín. er Sig. Einarsson
í færi en er hindraður og viti
er réttilega dæmt, en Hermann
er óheppinn og skot hans lend
ir í stöng.
En næsta vítakast tekur Gunn
laugur og skorar örugglega 16-
15. Gestirnir jafna en Gunnlaug
ur nær yfirhöndinni, aftur jafna
beir, en enn skorar Gunnlaugur,
en næstu þrjú mörkin em þýzk.
Þá er staðan orðin 18-20. Gunn-
laugur minnkar muninn, en þá
bæta Þjóðverjamir tveim mörk-
um við Á 29. mín. skorar Geir
úr hörðu upphlaupi, en þeir
býzku eiga síðasta mark leiks-
ins eins og að innsigla sigur og
lokastaðan er 20-23, nokkuð, sem
fáir höfðu þorað að vonað, en
olli þeim þau vonbrigðum sem
horfðu á leikinn.
4r Liðin.
Þýzka liðið er gott og það
sterkasta miðað við það hversu
jafnt það er. Þeir virðast ekki
tefla í neina tvísýnu heldur leika
af öryggi og nákvæmni. Hraðinn
er ekki svo mikill, en þó bru'gðu
þeir fyrir sig miklum hraða oft
á tíðum. Liðið er skipað hávöxn
um leikmönnmu, sem virðast
margir hverjir heldur þungir á
fæti. Beztu menn liðsins vora
markvörðurinn í síðari hálfleik og
þeir Lubking og Schmidt, sem er
hávaxinn og nýtur þess í skot-
um.
íslenzka landsliðið átti allgóð-
an leik, lék fyrri hálfleik af ör-
yggi, en botninn datt úr öllu
saman í síðari hálfleiknum. Þor-
veitingahúsið
ASKUR
BVÐUR
YÐUR
SMURT
I BRAUÐ !
& SNITTUR
ASKUK i
suðurlandsbraut H
sími 88550
SlfrelSaeigendur
fprautum og réttans
njöi afgreiðela,
HifreiðaverkstesðiS
VESTURÁS H.P.
vdðarvoc 30, aími 3S740.
SMURSTÖÐIN
Ssetúni 4 — SM XÖ«2*27
BCHmt er smurður fljðft og 'fíSL
StSjum allar téguadir af smurolöi
Landsleikur í handknattleik:
BSLAND - ÞÝZKALAND
í Laugardalshöli'nni í kvöld kl 20.15. DÓMARI: Thorild Javerstan, Svíþjóð.
H. S. J.
30. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐI0