Alþýðublaðið - 30.11.1966, Qupperneq 16
ÆceEECfiamöi)
Jólasnjórinn kominn
Bráðum koma blessuð jólin;
börn og kaupmenn hlakka til.
Svo segir í gamalli vísu, og í
þessu er mikill sannleikur fólg-
inn, eins og ævinlega í gömlum
vísum. (Það er annars merkilegt
að allt sem segir í gömlum vísum
•og menn nota til að krydda mál
sitt í ræðu og riti, skuli vera mik-
«11 sannleikur eða þörf og tíma-
bær lábending eða viðeigandi spak
mæli eða eitthvað enn finna; en
hins vegar er allt það sem sett
er saman í samtíðinni til einskis
nýtt; ef það dugar til uppfylling-
ar í ræðu er það ekki lengur nýtt,
íieldur gömul vísa, gott ef ekki
•gömul lumma.) Jólin eru að sjálf-
sögðu öllum gleðigjafi, en þó sér-
staklega börnum og kaupmönn-
um. Börnin hlakka til jólanna af
barnaskap og óvitahætti og kaup-
menn hlakka til þeirra af svipaðri
ástæðu, ekki kannski beinlínis af
óvitaskap, heldur vegna óvitaskap-
ar barnanna og raunar líka og
ekki síður þeirra, sem fullorðnir
teljast í árum.
í>etta er orðin löng þula um lítið
inál, en góð orð eru aldrei of oft
tkveðin, svo að aftur sé viteað í
gamla vísu, og vissulega er það
staðreynd, sem vert er að hafa í
'<huga, að jólin eru sífellt að verða
’tneiri og meiri verzlunarhátíð, en
flest önnur þýðing þeirra en ábat-
inn vill gleymast. Þó er alltaf eins
og fólki finnist að viss blær, jafn-
vel Ihelgibragur, þurfi að vera yf-
ir jólamánuðinum og þá sérstak-
«ega, eins og dundi yfir höfuðstað-
arbúa í fyrrinótt og gærmorgun.
Jólasnjórinn er sem sagt kom-
inn, tæpum mánuði fyrir tím-
ann. Strax í fyrrakvöld var snjó-
kastið komið í fullan gang um all-
ar jarðir og í gærmorgun spruttu
snjókerlingar upp eins og gor-
kúlur við annað livert hús. Bílar
voru fenntir í kaf á götunum, eins
og vera ber, (og er fullkomið álita
mál, hvort þeir séu þar ekki bezt
geymdir til frambúðar, sumir að
minnsta kosti) og færð á strætum
og gangstígum var með þyngra
móti.
Haldi hins vegar sama veðurlag
áfram og verið 'hefur að undan-
förnu, þá verður þessi snjór sjálf-
sagt horfinn aftur löngu fyrir jól,
jafnvel strax á morgun, ef hann
er þá ekki farinn í dag. Það má
heita alveg öruggt að fyrir jól
verður hann farinn, en þá vakn-
IVMtMUMmMHHtMMMHUMMMMMUmUMUMVMMItmV
í jólðkauptíðinni
Menn knýja dyra klyfjaðir allskonar varning
og krökkum og fullorönum bjóða margt Iaglegt og skrýtið.
Og enginn þarf framar að láta sér nægja neinn narning,
því nóg er af vörunni, enda kostar hún lítið.
En þrálátt er jagið í jólakauptíðinni:
Jón úr Vör ber að dyru mí þriðja sinni.
ar sú spurnnn, hvort líkur séu til
að annar jólasnjór komi þá í stað-
inn fyrir þann, sem féll í fyrri-
nótt. Því er auðvitað ekki hægt að
svara með fullri vissu, en mjög
verður það þó að teljast undir
hælinn lagt. Það má' fáu treysta í
þessum heimi, og enn færra í
þessu landi og alls engu í veður-
farinu. Það má meira að segja
halda því fram í fullri alvöru, að
það sé óvenjugóð frammistaða að
láta jólasnjóinn koma í nóvember.
Það er ekki nema skekkja um
tæpan mánuð, en maður getur
alltaf átt von á því að jólasnjó
kyngi niður í júní eða júlí, en
hins vegar sé hér hiti og sumar-
blíða um jólin.
Nei, þá eru börnin og kaup-
mennirnir öruggari mælikvarði á
það, hvenær búast má við jólun-
um. Þrátt fyrir allt er þeim bet-
ur treystandi en veðráttunni.
tMMHHMMUtUHMHMUMMMtMMMtMHmMMMtMMMÍM
C3C
Og hvað mundir þú eiginlega gera? Auka söluskattinn, minnka
hlutfallshækkunina í beinn sköttunum og láta hinum smáu í þjóð-
félaginu blæða? Það er eins gott að þú ert ekki forsætisráðherra.
Það voru óvenju margir á ferll
þennan eftirmiðdag, þegar
Myndsjáin átti leiö um bæinn.
Eftir Lækjargötunni sprangaði
hæjandi hópur af ieðurleggjuð-
um stuttpilsum . . .
Vfeir
Alltaf fer um mig notalegui*
ylur, þegar það hefur snjóað
svolítið liraustlega, svo að mað-
ur getur vaðið snjóinn upp aö
ökla. Það minnir mig á gamla
og góða ilWiWsflaea. sem eru
alit of sjaldgæfir nú til dags . ■
Kallinn er alveg í öngum sín-
um. Hann er svo hræddur um,
að tæknimennirnir geri verk-
fall og sjónvarpið verði að loka.
Hann er nefnilega orðinn alveg
forfallinn tíviisti, sá gamli . . ■
Ég les það í blöðunum að þeir
ætli að sýna jaröhita á hcims-
sýningunni. Mér finnst nú að
það ætti heldur að sýna útlend-
ingum þann sem sendir okkur
þetta blessaða sjóðandi og
kraumandi brenuisteinsvatn —
nefnilega fjandann sjálfan , n