Alþýðublaðið - 01.12.1966, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 01.12.1966, Qupperneq 4
I Rltstjórer: Gylfl Gröndal (éb.) og Benedikt Gröndal. — RltstjórnarfuU- trúi: ElOur GuOnason. — Símar: 14900 14903 - Auglýslngasími: 1490«. AOsetur AlþýOuhúsiO viO Hverfisgötu, Reykjavik. — Pr*ntsmlöja AlþýOtt blaösins. — Askriftargjald kr. 95.00 — 1 lausásölu kc. 7,00 elntakiO. Utgefandl AlþýOuflokkurimi. EINOKUN V3EHÐLAGSMÁL voru mikið rædd á þingi Alþýðu- f lok^sins, sem haldið var um síðustu helgi. Lýstu þing fulltrúar einhuga stuðningi við þá verðstöðvun, sem ríkisstjórnin hefur flutt um frumvarp á Alþingi, og töldu að samfara henni hlyti að fara aukið eftirlit með verðlagi. Þá var mikið fjallað um einokunarmyndun í ís- lenzku efnahagslífi, og var talið, að samtök fyrirtækja til að tryggja sér hátt verð væru algeng. Var í því sambandi sérstaklega rætt um olíuverzlun og trygg- ingar, en í þessum tveim greinum viðskipta hafa orðið harðir árekstrar milli neytenda og fyrirtækja í seinni tíð. Um þessi efni gerði flokksþingið eftirfarandi sam- þykkt: „31. þing Alþýðuflokksins lýsir undrun og vanþókn- un sinni á því, að olíufélög og tryggingafélög skuli bindast samtökum sín í milli um að draga úr þjón- ustu við neytendur og gera þeim olíu- og trygginga- viðskipti óhagstæðari en þau hafa verið. Alþýðuflokkurinn telur slíka verðmyndun með ein- okunarsniði óviðunandi með öllu og skorar á ríkis- stjórnina að hafa þegar forgöngu um setningu löggjaf ar er banni þvílíka verzlunarhætti og verndi neyt- endur. Öðrum kosti hlýtur ríkisvaldið að taka í sínar hendur alla starfsemi á þessum viðskiptasviðum.<£ Hér er hart að orði komizt, enda ríkt tilefni til. Við- komandi félög hafa sprottið upp eða vaxið á síðustu áratugum og þannig notið velmegunar þjóðarinnar í ríkum mæli. Þau hafa mikil viðskipti við atvinnu- lífið, þar sem kaupin gerast í stórum upphæðum, en haf'a ekki að sama skapi ástundað aðra viðskiptavini sína — almenning. Er meiri hörku beitt við litla fólk- ið en fínu kúnnana. Alþýðuflokkurinn hefur barizt allra flokka mest fyr ir ejnokunareftirliti og víðtækri vernd fyrir neytend- ur. Sú barátta hefur enn eltki borið mikinn árangur — en þó skilja allir, að hér hlýtur að koma löegjöf gegn einókun, eins og í öðrum siðuðum löndum. Hvejiær? I IDESEMBER I I t)AG er 1. desember, annar af þjóðhátíðardögum Islendinga, er þeir minnast frelsisbaráttunnar. Um léið og litið er um öxl, er rétt að minna á, að frelsi öðlást þióð ekki einu sinni fyrir alla framtíð, heldur ver^ur hún að vinna fyrir frelsinu og varðveita það ár eftir ár. Hún þarf að varðveita þióðerni, tryggja fjárbagslegt frelsi sitt og vera sjálfstæð í viðskiptum við aðrar þjóðir. Frelsisbaráttan heldur því áfram. 4 1. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ TILKYNNING um breytingar á brottfarartíma sérleyfisbifreiða á leiðinni Reykjavík - Keflavík - Hafnir - Garður - Sandgerði - Stafnes. Frá og með mánudeginum 28. nóvember breytist burtfarartími sem hér segir: Frá Reykjavík til Keflavíkur - Garðs og Sandgerðis, kl. 9.45 árd. í stað kl. 9,30 árd. Frá Reykjavík til Stafness, kl. 17 í stað kl. 19. Frá Reykjavík til Kefla'víkur, Keflavíkurflugvallar, Hafna, Gaxðs og Sandgerðis, kl. 18,30 í stað kl. 19. Frá Keflavík til Reykjavíkur kl. 8,15 árd. í stað kl. 8 árd. Frá Keflavík til Garðs, Sandgerðis og Stafness kl. 18. Frá Keflavík til Garðs og Sandgerðis, kl. 19,30 í stað kl. 19,00. Frá Sandgerði kl. 19,30 í stað kl. 19.15, frá Keflavík til Reykja- víkur, kl. 20.00 í stað kl. 19,45. Frá Sandgerði, kl. 17 til Keflavíkur og Reykjavíkur. Frá Höfnum til Reykjavíkur kl. 7,30 árd. í stað kl. 8,45 árd. Sunnudaga, kl. 12,30. Ferðaáætlanir fást í afgreiðslustöðustöðum bifreiðanna í Umferða- mistöðinni Reýkjavík. Bifreiðasiöð Steindórs ( UmferBamiðstöðinni) ★ FYRSTI SNJÓRINN. Óvenju miklura snjó hefur dengt niður hér sunnanlands undanfarna daga og enn er ekki lát á frostinu. Mörg ár eru liðin síðan snjó að hefur jafn mikið jafn snemma hér og kom þetta þvi . flestum á óvart. Vertíð mikil er nú hjá þeim sem selja keðjur og snjódekk og er sannkölluð jólaös hjá þeim þessa dagana þótt desember sé nú rétt aðeins að byrja. Það er aðeins tiltölulega, stutt síðan Bif reiðaeftirlit ríkisins féklíst til a’ð viðurkenna snjódekkin, sem margir voru þá þegar búnir að nota í mörg ár. Núverandi viðurkenning er hinsvegar óljós fremur og þar ekki skýrt að orði kveðið. Ýmsir telja negldu snjódeggin hafa mikla kosti fram yfir hin, og víst er að undir sumum kringumstæðum veita þau talsvert meira viðnám, en hisvegar er þess að geta, að sumum þykir leiðinlegra að aka á þeim og enn aðrir benda á að þau fari illa með göturnar. ★ KEÐJURBIAR SKEMMA . Það var sannarlega tímabær aðvörun hjá iögreglunni ,þegar tilkynnt var fyrir nokkrum dögum, að þeir bílar, sem ekki hefðu viðunandi utbúnað á hjólum yrðu teknir úr umferð. Þetta voru orð í tíma töluð. Þeir sem eru að þvælast í umferðinni snjódekkja og keðjulausir gera ekki annað en þvælast fyrir öðrum, þegar jafnmikill snjór er og hefur verið að undanförnu auk þess sem slíkur akstur skapar verulega slysahættu. Ber því að taka undir þessa aðvörun lögreglunnar. Hitt er svo annað mál, að lögreglan ætti hiklaust að banna keðjuakstur að óþörfu þegar allt er alautt, en margir eru latir að taka keðj urnar af þegar fer að lilána og skrölta á þeim dögum, eða jafnvel vikum saman ,en eins og kunnugt er fer keðjuaksturinn mjög illa með gatnakerfi borgarinnar, og fer áreiðanlega að verða athugandi að takmarka verulega eða jafn vel að banna með öllu, þegar ástæðulaust er. — Karl. — HAB - ÞRIR BILAR í BODI - HAB

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.