Alþýðublaðið - 03.12.1966, Síða 1
Laugardagur 3. desember — 47. árg. 272. tbl. — VERÐ 7 KR.
EGGERT G. ÞORSTEINSSON, sjávarútvcgsmálaráðherra flutti í
gær ítarlega yfirlitsræðu um sjávarútvegsmálin á aðalfundi L. í. Ú.
Benti liann á, að fjórir togarar og nokkrir gamlir bátar, samtals
um 3.700 lestir, hefðu horfið af skrá, en 15 fiskiskip, samtals 4.700
lcstir bæzt við flotann. Eggert ræddi hin margþættu vandamál vegna
aflabrests í vissam greinum og verðfalls. Taldi hann, að ef Alþingi
neitaði að heimila auknar botnvörpu- og dragnótaveiðar í landhelgi,
yrðu menn að vera viðbúnir afleiðingunum, sem menn vissu hverj-
ar yrðu. Hann taldi, að með raunsæju og öfgalausu starfi mundi
þjóðinni takast að draga úr þeim tímabundnu erfiðleikum, sem að
steðja.
Eggert ræddi tillögur Vélbáta 4) Ráðherrann kvað erfitt að
útgerðarnefndar um endurbætur : lofa breytingu á veikinda- og slysa
á aðstöðu báta frá 40—120 lestir greiðslum sjómanna, að þær verði
að stærð. Um tillögurnar sagði miðaðar við tryggingu en ekki hlut.
Eggert:
1) Fiskverð verður ákve'ðið af
réttum aðilum á næstunni og mun
ríkisstjórnin greiða fyrir samkomu
lagj eftir fremsta megni.
2) Viðbótaruppbætur hafa ver-
ið settar á línufisk til áramóta.
3) Ráðuneytið hefur rætt við
Fiskveiðasjóö og Stofnlánadeild
úm greiðslufrest og er niðurstöðu
að vænta bráðlega.
5) Varðandi tryggingakerfið
benti ráðherrann á, að bátar innan
120 lesta fengju eins og togar-
arnir, meira en þeir'greiddu kerf
inu.
6) Tillögum um tækniþróun hef
urverið vísað til Fiskifélagsins og
Fiskimálasjóðs og hefur fengið góð
ar undirtektir ihjá hinum síðast-
Framhald á 14. siðu.
rpsfræðsla
EGGERT G. ÞORSTEINSSON, sjávarútvegsmálaráðherra drap
í ræðu sinni á aðalfundi L. í. Ú. í gær á fjcgur mál, er varða
rannsóknir og' fræðslu fyrir sjómennsku og úígerð. Þau voru
þessi:
SÍLÐARLEITARSKIP: Smíði þess hófst í júní hjá Brooke Mar
ine Ltd. í Lowestoft í Bretlandi og lýkur 1. júní 1967.
Þaö er 440 lesta og útbúið til skuttogs- eða hringnóta-
veiða. Kostnaður um 40 milljón.
HAFRANNSÓKNASKIP: Meginhluta og erfiðs ítarlegs und-
irbúnings er lokið. Skipið verður 790 lesta skuttogari,
sérstaklega útbúinn. með 4 rannsóknarstofum. í bygg
ingasjóði eru yfir 15 milljónir.
SKÓI,ASKIP: Talið mjög nauðsynlegt fyrir sjómanns- og skip
stjóraefni, aðallega við þjálfun í notkun nútima tækja.
Kugmynd um að nota einlivern togara, sem til er.
Kostnað þarf að rannsaka.
SJÓNVARP: Ráðherran kastaði fram þeirri hugmynd að nota
sjónvarp til að kynna sjómannastörf. Hann hefur beðið
um, að útvarpið geri kostnaðaráætlun um slíka fræðslu-
þætti.
SJÁVA
Eggert ílytur
ræðu sína
<
| Eggert G. Þor,ste?f.isson, sjáv- 1
i arútvegsmálaráðherra, fíyturi
> ræðu sína á þingi Landssant- (
[ bands íslenzkra útvegsmanná 1
gær. (Mynd: Bjaml.)
Lánfökuheimild I
lánasjóðs tvöföld
Reykjavík, — EG.
Lagt var fram á Alþingi í gær
stjórnarfrumvarp til breytinga á
lögum um Iðnlánasjóð og gerir
það ráð fyrir að almenn lán-
tökuheimild sjóðsins verði hækk
uð um helming úr 150 milijónum
í 300 milljónir króna og sjóðn-
um jafnframt heimilað að bjóða
út almennt skuldabréfalán að upp
hæð 25 milljónir króna, til að
nota til hagræðingarlána, og
skulu þessi skuldabréf vera und
anþegin skattskyldu og framtals
skyldu.
í athugasemdum við frumvarpið
segir á þessa leið:
Þegar samþykktar voru á síð-
asta þingi breytingar á lögum
nr. 45 3. april 1963, um Iðnlána
sjóð, var meginefni þeirra, að Iðn
lánasjóði væri lieimilt, að fengnu
samþykki ríkisstjómarinnar að
taka allt að 100 milljón króna lán
til þess að mynda nýjan lánaflokk
í því skyni að veita sérstök hag-
ræðingarlán, til viðbótar almenn
um lánum, er að mati sjóðsstjóm
arinnar teldust stuðla verulega að
því að auka framleiðni og bæta
aðstöðu iðnfyrirtækja til bess að
aðlaga sig nýjum viðhorfum vegna
breyttra viðskiptahátta, svo sem
tollabreytinga og fríverzlunar.
Reglugerð um hagræðiugarlán
Iðnlánasjóðs var gefin út hinn
7. júlí 1966.
Ríkisstjórnin samþykkti í sept
ember sl., að Iðnlánasjóði væri
heimilt að hefja þegar á þessu
hausti lánsfjáröflun. þar sem mik
ilvækt væri, að lánveitingar • úr
hinum nýja flokki hagræðingar-
lána gætu hafizt sem fyrst. í
samráði við Seðlabankann var tal
FramhaM ■- > ‘ t.
Tveir árekstrar
Miðvikudaginn 31. nóv. var ek-
ið á ljósbláa sendiferðabifreið R-
7170, sem stóð við Vitastíg ofan
við Skúlagötu. Við áreksturinn
iskemmd.ist frambretti bifreiðar-
innar. í gær var ekið á ljósgráa
Opel-bifreið, sem stóð á móts við
Langholtsveg 150. Ekki hefur enn
náðst til bifreiðastjórans, sem á-
rekstrinum olli, en hann ók hið
bráðasta burtu. Er hann fceðinn
um að gefa sig frarr. viS lögregl-
una, svo og sjónarvottar að á-
rekstrinum, ef einhvcrjir kymiu
að vera.