Alþýðublaðið - 03.12.1966, Síða 9
IÁLMARSSON:
;munir eða þjóðarhagur?
Vestfirðir eru harðbýlt hérað
en úti fyrir þessum harðbýla skaga
eru fiskimiS, sem gefa björg í bú,
allt árið. Þó njóta þessi fiskimið
takmarkaðrar verndar af út ærslu
landhetginnar, því vetrarmiðin
eru utan hennar. Er því ekki ó-
eðlileg ósk Vestfirðinga um frek-
ari útfærslu.
Svo til öll afkoma manna er þar
háð sjávarafla, enda munu varla
annarsstaðar ötulli sjómenn.
Naumast er hægt að segja, að
hlaðið hafi verið undir þetta hér-
að af fjármunum Sunnlendinga,
sem greinanhöfundur talar um.
Einna síðastir landsmanna fengu
Vestfirðingar beint samband við
þjóðvegakerfið. Sjálfvirkur sími
er ætlað að verði þar á seinni skip
unum. Sama mun um hið marg-
umrædda sjónvarp, enda ekki boð
ið upp á nein atkvæðaviðskipti
í því sambandi. Menntaskóli á
ísafirði hefur ekki siglt neinn
óskabyr, það sem af er. Takmörk
uð kynni hafa Vestfirðingar af
ýmsum menningar- og skemmti-
stofnunum þéttbýlisins, t.d. Þjóð-
leikhúsinu, sem er þó styrkt af
almannafé.
Það má því segja, að það sé
fremur þegnskapur og átthaga-
tryggð, sem veldur því, að sæmi-
iega þróttmikil byggð helzt í þess-
um landshluta, auk þess sem af-
koma manna er sæmileg, meðan
sjávarafli bregðist ekki.
Hitt er svo annað mál, að rask-
ist undirstaða atvinnulífsins. sjáv
araflinn, til muna frá því, sem nú
er, þá er hætt við að menn þreyt-
ist á að nytja þennan harðbýla
skaga og miðin út af honum. og
flytji heldur í dýrð Suðumesja.
Á það má svo líta, hvort það séu
sérhagsmunir eða þjóðarhagur að
þau mið séu nýtt til fulls og til
sem mestrar atvinnu, en það tel
ég ekki verði með togurum frá
Faxaflóa.
Það mætti spyrja hvort þjóðar-
búið og útflutninginn munaði
nokkuð um Vestfjarðafiskinn.
En fyrst rætt er um sérhags-
muni. Það skyldu þó ekki vera
sérhagsmunir Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar að einhverju leyti,
að togarar fengju að veiða innan
fiskveiðilögsögunnar? Og ihvað
kynnu þeir sérhagsmunir að ná
til mikils hluta Reykvíkinga.
Hitt er víst, að sé nýting Vest-
fjarðamiða sérhagsmunir Vestfirð
inga, þá nær það til 100% íbúa
Vestfjarða, því með sjávarafian-
um stendur og fellur byggð á
Vestfjörðum.
Um eitt er ég svo sammála
greinarhöfundi, og það er neta-
veiðin. En sú hrina er ekki upp-
runnin á Vestfjörðum, því Vest-
firðingar þraukuðu við línuna
meðan fært var, og þrauka nokk-
uð enn, þrátt fyrir lítinn verð-
mun á neta- og línufiski. Það er
einnig þegnskapur, að ég tel.
Hjörtur Hjálmarsson.
Brynjólfur Jóhannesson for-
maður Félags ísl. leikara
Mánudaginn 28. þ.m. var hald
inn aðalfundur Félags ísl. leikara.
Tíu leikarar og söngvarar gerðust
félagar á þessum aðalfundi. Nú
eru félagsmenn alls um 90 og hafa
aldrei áður verið jafn margir fé
lagsmenn í Félagi ísl. leikara.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
voru umræður um ýmis kjaramál
og hagsmunamál leikara og söngv
ara. Á árinu var minnst 25 ára af
mælis félagsins og var af því til-
efni boðið hingað fulltrúum frá
leikarasamböndum á Norðurlönd
um.
Formaður FÍL sótti fund leikara
ráðs Norðurlanda er haldinn var í
Aabu í Finnlandi og var honum
einnig boðið til Finnlands í til
efni af 100 ára afmæli Svenska leik
hússins í Helsingfors.
í tilefni af 25 ára afmæli FÍL var
fyrsti form. félagsins Þorsteinn
Ö. Stephensen sæmdur gullmerki
FÍL svo og Valur Gíslason sem
Framhald á bls. 14.
Frá Flateyri.
Paul Michelsen, Hveragerði
opnar blómaverzlun laugardaginn 3. des. að
SUÐURLANDSBRAUT 10.
Reykjavík.
Poítablóm — Afskorin blóm — Gjafa-
vörur allskonar — Útlend strá í gólfvasa.
— Góð bílastæði. —
Blómaverzlun MICHELSEN
Suðurlandsbraut 10 — Sími 31099.
Sjónvarpsloftnet
fyrir Reykjavík og blandarar nýkomið.
Hljómur
Skipholti 9 — Sími 10278.
Konsokaffi - Konsokaffi
Hin árlega kaffisal'a kristniboðsfél. karla til
ágóða fyrir kristniboðið í „Konsó“, verður
sunnud. 4. des. og hefst kl. 3 síðdegis í Kristni-
boðshúsi Betaníu. — Reykvíkingar drekkið síð-
degiskaffið í Betaníu á murgun.
Bazar Sjálfsbjargar
verður haldinn sunnudaginn 4. desember í
Skátaheimilinu við Snorrabraut (gengið inn
Egilsgötu megin) og hefst kl. 14 e. h.
Komið og gerið góð kaup, um leið og þér styðj-
ið gott málefni.
SJÁLFSBJÖRG, félág fatlaðra.
STYTtKIÐ OSS
ISTARFI!
3. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9