Bókasafnið


Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 9

Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 9
bókmenntir þegar nýja bókasafniö í Garðabæ var opnaö Það var hátíð í bæ, þegar bókasafnið í Garðabæ var opnað í nýjum húsakynnum í Garðaskóla, þann 8. maí s.l. Fjölmenni var við opnunina, strengjasveit lék, margar ræður voru fluttar og nokkrar góðar gjafir bárust, svo sem málverk, grafik, handmálað postulín og bókagjafir, flest verðmætar bækur, nýjar og gamlar. Þrjár sýningar voru settar upp fyrir opnunina: Sýning á nýju skipulagi Garðabæjar, sýning á bútasaum (quilt) og teiknimyndasýning skólabarna frá öllum vinabæjum Garðabæjar á Norð- urlöndum. nefna nýju barnadeildina, sem mikil nauðsyn var á. Einnig er kominn vísir að tónlistadeild, þá tímaritadeild, en sér- stök fjárveiting hefur fengist til að kaupa og binda inn öll helstu íslensk tímarit frá upphafi. Safnið hefur fengist við að safna heimildum um sögu byggðarlagsins og verða þær heimildir nú mun aðgengi- legri. Gott samstarf hefur verið við Nor- rænafélagið í Garðabæ. í safninu liggja frammi bæklingar og ýmsar upplýsingar um norrænu vinabæina og varðveittar eru myndir frá vinabæjarmótum. — eftir Erlu Jónsdóttur bókasafnsfræding Húsnæði og búnaður. Hið nýja húsnæði er 350 m: auk tveggja lesstofa 60 m’ og 40 m2). Það er frá upphafi hannað sem almennings og skólasafn með sér inngangi, lyftu og snyrtingu en einnig innangengt í skól- ann. Allur húsbúnaður er danskur, valinn af arkitektunum Manfreð Vilhjálmssyni og Þorvaldi Þorvaldssyni. Birta og lita- val hefur tekist vel. Ríkjandi litir eru grænir. Aukin þjónusta. Með auknu húsnæði aukast þjón- ustumöguleikar safnsins. Má þar fyrst Þjónusta við nemendur og kennara. Bókasafnið er einnig virkt skólasafn fyrir Garðaskóla sem spannar 7., 8„ og 9. bekk grunnskóla og fjölbrautarskólann. Hver nemandi á að fá a.m.k. 6 kennslu- stundir í safnnotkun. Hátt á annað þús- und heimildaritgerðir eru árlega unnar í tengslum við safnið í mjög góðri sam- vinnu við kennara og skólastjóra. Les- stofur eru í báðum skólunum með handbókum sem safnið sér um. Nemendur skólans hafa forgang að safninu frá kl. 9—13 en almenningur frá 13—19, daglega. Opið er allt sumarið frá kl. 13. Útlán voru á síðasta ári 9.8 bindi á íbúa. Næsta verkefni safnsins verður að út- vega efni til fullorðinsfræðslu. Lokaorð. Þrátt fyrir sól og sumar hafa útlánin aukist mikið þessa tvo mánuði sem safnið hefur verið opið, hver metdagur- inn rekur annan. Er það að einhverju leyti að þakka barnadeildinni og ekki síður því að safnið er staðsett miðsvæðis í bænum, næst íþróttamiðstöðinni og sundlauginni sem er mikið sótt allan ársins hring. EJ. 9

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.