Bókasafnið


Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 13

Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 13
þing ráninu og ég hafði í greinaflokki mínum gegn nánast ókeypis útlánum íslenskra bóka. Lögfræðingarnir segja: ef við fá- um ekki greiðslu fyrir afnotin af spól- unum rýrna gæði framleiðslunnar fyrst og síðan stöðvast framleiðslan. Fimmtíu krónur — og átta aurar. Sjá menn eitthvert vitrænt samband þarna á milli? Málfarsleg gæði íslenskra bóka fara þverrandi. Það er byrjunin. Síðan lamast framleiðslan. Fyrir bók á að koma sama greiðsla og fyrir Vídeóspólu. Útgefendur ættu vita- skuld að fá hluta af þeirri greiðslu. Bókaútgáfan í landinu myndi þá aftur eflast að gæðum og höfundum væru tryggð laun fyrir vinnu sína, samkvæmt markaðslögum, og mætti þá leggja niður smælki á borð við Launasjóð rithöf- unda, sem er ekki annað en fyrirlitlegur baunadiskur fyrir frumburðarrétt. Ég hef veitt því athygli, og það er sorgleg staðreynd, að það fólk sem einkum sýnir rithöfundum og bókum óvirðingu, er einmitt það fólk sem vanist hefur því frá blautu barnsbeini að fá bækur ókeypis að láni í almennings- bókasöfnum. Það er samkvæmt gamal- kunnu lögmáii: menn hvorki meta rétti- lega né bera virðingu fyrir því sem kost- ar ekkert og liggur á glámbekk. Ég get ekki tjáð mig um þjónustu bókasafna sem handhafi útlánakorts. Ég skipti ekki við almenningsbókasöfn. Ég kaupi þær bækur sem ég tel mig þurfa að lesa. En ég get tjáð mig um viðskipti mín við almenningsbókasöfn sem útgefandi og rithöfundur. Ég er ekki hrifinn af þeim. Eg endurútgaf í fyrra endurminn- ingar Jóns Engilberts, Ffús málarans, aukna að máli og myndum, í þeim skilningi nýja bók, og brá á það ráð að sannreyna þá kenningu að viðskipti út- gefanda við söfn, salan til safnanna, skipti þó nokkru máli fyrir útgefandann. ÉG bauð bókina bréflega áttatíu bóka- söfnum á landinu með 30% — þrjátíu prósent — afslætti. Fimm söfn, auk Þjónustumiðstöðvar bókasafna, svöruðu tilboði mínu og keyptu samtals tólf ein- tök. Frá Borgarbókasafninu heyrðist ekkert. Þegar málið var kannað og gengið eftir svari kom á daginn að ein- hver innkaupanefnd á vegum safnsins hafði ákveðið að kaupa ekki svo mikið sem eitt eintak af forlaginu. Mjög merkilegt. Borgarbókasafnið lánar út árlega eitthvað á aðra milljón binda. Og legg ég nú til að í næsta blaði bóka- safnsfræðinga svari fræðingarnir, og þá einkum bókaverðir Borgarbókasafnsins, þessari spurningu minni og dragi ekki af sér: Hvert er viðhorf yðar til rithöfunda og bókaútgefenda? Almenningsbókasöfn frh. af bls. 20 virkir og jákvæðir í afstöðu sinni og sýna fram á gildi þjónustu sinnar og hvetja menn til að færa sér hana í nyt. Þeir ættu að tengja söfnin við aðrar uppeldis-, félags- og menningarstofn- anir. Þar á meðal skóla, fullorðins- fræðslu, tómstundahópa og aðila sem stuðla að framgangi lista. Þeir ættu að hafa vakandi auga með nýjum þörfum og áhugamálum, sem upp kunna að koma í samfélaginu, svo sem stofnun hópa, sem þurfa á sérstöku lesefni að halda eða nýju frístundastarfi sem taka ætti tillit til i bókakosti og starfsemi safnanna. UNESCO Public Library Manifesto, endurskoðuð útgáfa frá 1972 Baldur Ingólfsson þýddi TIMEX Norræna bókavaröa- þingið haldið í Reykja- vík eftir rúmt ár 15. norræna bókavarðaþingið verður haldið í Reykjavík dagana 24,—-27. júní 1984. íslensk undirbúningsnefnd var stofnuð snemma á árinu 1981 og tók hún þá þegar til starfa. Formaður nefndarinnar er Elfa-Björk Gunn- arsdóttir. Aðrir nefndarmenn eru Helgi Magnússon, Hrafn Harðarson, Kristín H. Pétursdóttir, Sigrún K. Hannesdóttir, Þorleifur Jónsson. Samnorræn dagskrárnefnd, sem kallast ISPLAN 84 var hins vegar fullskipuð í október 1981. í henni sitja tveir fulltrúar frá hverju Norð- urlandanna. Af íslands hálfu sitja í nefndinni Elfa-Björk Gunnarsdóttir og Þorleifur Jónsson ogerElfa-Björk formaður hennar. EBG 13

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.