Bókasafnið


Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 23

Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 23
námsför Bókasafnið í Stavanger er fylkisbóka- safn með tveim útibúum og bókabílum. Það er vel búið bókunt eða 293 titlar. Annað efni, svo sem tónlist, grafik, mikro-og kvikmyndafilntur o.fl. er um 30 þús. titilar. Útlán voru 6.1 bóka á íbúa. Tölvan og bókasafnið. Bókasafnið hefur teledata og er það eitt af þrem fylkisbókasöfnum í Noregi sem tekur þátt í þriggja ára tilrauna- starfsemi (1979-82) sem símaþjónustan norska stendur að. Á lesstofu bókasafnsins stendur tölvuskermur til almenningsnota. Þar er hægt að fá upplýsingar um ýmis bæjar- mál sem upplýsingaskrifstofa bæjarins ofl. hafa látið gera, um fjögur til fimm þús. síður. Okkur virtust þetta mest upplýsingar ætlaðar ferðamönnum og öðrum sem fræðast vildu um fylkið og bæinn. Bókasafnið hefur látið útbúa efni til að setja inn á þessa tölvu, en vegna þrengsla í upplýsingabankanum hefur það dregist. Okkur var tjáð að fyrir lægju áætlanir um tölvustýrt útlánskerfi og vonuðust þeir eftir fjárframlögum til þessa verk- efnis frá ríki og bæ á næsta ári. INFO-BANK eða upplýsingabanki. í samvinnu við olíuvinnsluna eða STATOIL hefur Stavangur og Roga- landfylki komið sér upp upplýsinga- banka. Þetta hófst 1976 með efnisöflun frá fylkinu en á síðasta ári kom svo bærinn inn í bankann með upplýsingar um fjármál bæjarins, ársreikninga, fjár- hagsáætlanir ofl. Þar er einnig að finna fundargerðir opinberra nefnda, sam- þykktir og skýrslur, orðrétt mataðar inn í tölvubankann. Þeir nota STAIRS-Kerfi (Storage and information retrieal syst- em) því fylgja handhægir efnisorðalykl- ar. Þetta er on-line og hægt er að fá útskrift á óskuðum texta. Skermar eru um fimmtíu, staðsettir víðsvegar, en ekki þó á bókasafninu. Upplýsingaskrifstofa Stavangerbæjar sér um efnisöflun fyrir upplýsingabank- ann. Um kvöldið var okkur haldin matar- veisla af bókasafnsstjóm. Var þar glatt á hjalla og góður matur. Elfa Björk hélt þakkarræðu fyrir hönd okkar gestanna af smekkvísi og skörungaskap. Síðasti dagur. — Kristiansand. Frá Stavanger til Kristiansand fórum við með lest yfir Sörland. Hvað landið er fagurt þarna — það er með því fegursta sem ég hefi séð. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir alla ferðina. Fylkið Rogaland var til forna oftast nefnt Norður-Agðir. Kristian konungur 4 stofnaði Kristiansand enda bærinn, hótel og götur nefndar eftir honum. Þetta er fallegur gamall siglingabær með gamalli víggirtri höfn. Ibúatalan er í kring um 600 þús. Menningarmiðstöðin í Kristiansand er mjög nýtískuleg bygging á þrem hæðum sem vakið hefur eftirtekt víða fyrir nýtískulegan byggingarstíl enda fyrstu áhrifin þegar inn er komið, birta og rými. Breytingamöguleikar eru mikl- ir, því ekkert er naglfast inni í safninu. Breiður gangur liggur þvert í gegnum bókasafnið með útgöngu á báða vegu. Vegfarendur stytta sér gjaman leið í gegnum bókasafnið og er það afar hvimleitt fyrir starfsfólkið. Á götuhæð er barnadeildin staðsett, einnig afgreiðsl- an, og kaffistofa. Á efstu hæð er svo rúmgóður sýningarsalur fyrir listaverk. Fjárframlög til þessa fallega bóka- safns hafa verið of lág að undanförnu eins og víðar í Noregi, og kemur það illilega niður á rekstrinum, einkum í tónlistadeildinni og aðstoð við náms- fólk. Útlán voru á síðasta ári um 6 bækurá íbúa. Seinni hluta þessa dags, að skoðunar- ferð lokinni, lauk okkar viðburðarríku námsferð með matarveislu í bókasafn- inu. Að lokum vil ég færa gestfjöfum okk- ar í Noregi, okkar innilegustu þakkir fyrir vel skipulagt þing og sérstaklegar þakkir vil ég færa Björg Heie og Anders Ericson frá Bibloitekstilsynet í Oslo fyrir góða fararstjórn og ánægjuleg kynni. Erla Jónsdóttir. 23

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.