Bókasafnið


Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 29

Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 29
fræðsla NORRÆNN SUMAR- SKÓLI í OSLÓ Norræni sumarskólinn fyrir bóka- verði var haldinn í norska bókavarða- skólanum í Osló daganna 2.—6. ágúst sl. Að þessu sinni var fjallað um upp- byggingu og rekstur bókfræðilegra gagnagrunna og tekið mið af Nordisk BDI-Index (Biblioteksvæsen — Dok- umentation — Information) sem er samnorrænn gagnagrunnur á sviði bókasafnsfræði. Höfuðáhersla er lögð á efni sem skrifað er á Norðurlandamál- um og sjá bókavarðaskólarnir um skráningu þess hver í sínu landi. Tóku þeir einnig reksturinn í sínar hendur í fyrra, en áður hafði NORDINFO veitt styrk til verksins. Fram að þessu hafa íslendingar ekki tekið þátt í þessu samstarfi, en ákveðið var á námskeiðinu að bjóða okkur aðild að því. Þátttakendafjöldi var takmark- aður við 25 eða fimm frá hverju landi. í þetta sinn fyllti ísland kvótann og héðan fóru: Auður Sigurðardóttir Iðntækni- stofnun, Halldóra Þorsteinsdóttir og Ingibjörg Árnadóttir Háskólabókasafni, Kristín Indriðadóttir Kennaraháskóla Islands og Þórdís T. Þórarinsdóttir Menntaskólanum við Sund. Áttu Nor- egsfarar ánægjulega og fróðlega daga í Osló í yfir 30°c hita. Hvernig gera á bókasafnið sýnilegt — boðið til ráðstefnu á Hanahóltni „Det synliga biblioteket“ er heiti á námskeiði, sem efnt verður til fyrir bókaverði dagana 7.—11. febrúar (að báðum meðtöldum) á sænsk-finnsku menningarmiðstöðinni á Hanahólmi (Hanaholmen) við Helsinki í Finnlandi. Svo sem heiti námskeiðsins ber með sér verður viðfangsefnið það, hvernig gera skuli bókasafnið sýnilegt, þ.e. sjálfsagt og áberandi í menningarlífi hverrar þjóðar. Leiðbeinendur og fyrirlesarar verða frá Danmörku, Englandi, Finn- landi og Svíþjóð og ef til vill víðar að. Væntanlega verður aldrei lögð of mikil áherzla á upplýsingahlutverk bókasafna né á mikilvægi almanna- tengsla, og mun óhætt að fullyrða, að námskeiðið á Hanahólmi hafi eitthvað á borð að bera fyrir alla þá í bókasöfnum, sem sjá urn upplýsingamiðlun og al- mannatengsl. Dagskrá námskeiðsins er ekki ennþá fullmótuð, en meðal fyrir- lesara verða auk bókavarða blaðamenn, sálfræðingar, markaðskönnuðir o.fl. I kostnaðaráætlun er gert ráð fyrir, að þátttökugjald verði 700 og 900 finnsk mörk. í því er innifalið fullur dvalar- kostnaður (gisting, fullt fæði) í 5 daga í eins (900 FMK) eða tveggja manna (700 FMK) herbergjum ásamt öðrum kostn- aði (v/fyrirlesara, námskeiðsgagna o.þ.u.l.) Þórdís Þorvaldsdóttir er fulltrúi Bók- varðafélags Islands í undirbúnings- nefndinni. Skólavörðustíg 6 - 101 Reykjavík - Sími 10680 Metum og gerum tilboð í bækur, blöð og tímarit. Seljum bækur, lesnar og ólesnar, heil tímarit, gömul íslandskort og myndir. Munið ab bókin er besti vinurinn 29

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.