Bókasafnið


Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 15

Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 15
Ráðstefna norrænna skólasafnyarða — haldin aö Laugarvatni dagana 21.—25. júní 1982 Nokkra sólríka og hlýja daga í júní dvaldi ég að Laugarvatni, og tók þátt í ráðstefnu norrænna skólasafnvarða. Þátttakendur voru frá öllum Norður- löndunum, nema Finnlandi og voru þeir um 70 talsins, þaraf um 15 íslendingar. Nordisk skolebibliotekarforening, ásamt Félagi skólasafnvarða (FÉS), stóðu að ráðstefnunni, og meiri hluti þátttakenda voru kennarar, sem vinna á skólasöfnum, en mér taldist til að ein- ungis 5 bókasafnsfræðingar hefðu setið alla ráðstefnuna. Ráðstefnan var í tveim hlutum, ann- ars vegar var fjallað um bamabók- menntir og bækur fyrir börn, og hins vegar urn hlutverk skólasafnsins í skól- anum. Á mánudagskvöld var ráðstefnan sett með pompi og pragt, en eiginlegt ráðstefnuhald hófst á þriðjudag. I fyrri hlutanum, sem var á þriðjudag og fyrir hádegi á miðvikudag, talaði Sigurborg Flilmarsdóttir um Stefán Jónsson og bækur hans. Það var mjög fróðlegt erindi, en Sigurborg er að vinna að cand. mag. ritgerð um Stefán og vonandi verður hún gefin út, því Stefáni hafa ekki verið gerð nægileg skil í bók- menntasögunni, sem einum fremsta rit- höfundi okkar. Guðrún Helgadóttir talaði um eigin bækur og rithöfundarferil, og Ólafur Jónsson hélt erindi um bókmenntir fyrir börn og kynnti lítillega nokkra islenska barnabókahöfunda. í framhaldi af erindi Ólafs spunnust nokkrar umræður úm fjölþjóðaprent, „sjoppubókmenntir" og „ritskoðun“ eða val bóka á skólasöfn. Guðrún Bjartmarsdóttir fjallaði um huldufólkssögur og ævintýri og staldr- aði þar nokkuð við hlut kvenna í þeim og Jakob Gormsen frá Danmörku ræddi um barnabókmenntir og útgáfu með sérstöku tilliti til ævintýra og þjóðsagna, sem eru mjög að ryðja sér til rúms aftur á bókamarkaðinum, sem andsvar við vandamálabækur eða „socialrealisma" síðustu ára. í þessum hluta ráðstefn- unnar var einnig erindi Ásgeirs Guð- mundssonar um Námsgagnastofnun og Ríkisútgáfu námsbóka og útgáfu kennslugagna á íslandi. Seinni hluta ráðstefnunnar, sem hófst á fimmtudag var fjallað um hlutverk skólasafnsins innan skólans. Ég beið dálítið spennt eftir þessum hluta, þar sem ég hafði áhuga á að kynnast við- horfum kollega minna á kennslufræði- lega og uppeldisfræðilega þættinum í starfsemi skólasafna, en þetta hefur verið eitt af deilumálunum varðandi skólasöfn hérá landi. Valgeir Gestsson talaði um íslenska skólakerfið, Elín Ólafsdóttir fjallaði um þær kröfur sem almennir kennarar gera til skólasafnsins og þær vonir sem bundnar eru við þau í kennslunni, og Bengt Jespersen frá Svíþjóð flutti erindi um kennslufræðilegt hlutverk skóla- safnvarða. Hann talaði um kennslu í safnnotkun eða safnfræðslu og sýndi dæmi um verkefni sem unnin voru í Hálsingborg í Svíþjóð, en skólar gátu pantað „pakka“ með slíkum verkefnum, kennsluleiðbeiningum og úrlausnum, frá miðstöð. Um kvöldið var haldið norrænt skemmtikvöld og voru flutt skemmtiat- riði frá öllum þjóðunum. Sungnir voru söngvar og kveðin kvæði og fluttar drápur, sem ortar voru um ráðstefnuna. Við íslendingarnir sýndum stuttan leik- þátt, byggðan á Guttakvæði Stefáns Jónssonar og sungum kvæðið. Þá var slegið upp færeyskum dans og endað með alþjóðlegu balli, þar sem leikin var tónlist úr öllum áttum af segulbandi. Á föstudag voru fluttar skýrslur frá hverju landi og af íslands hálfu töluðu Jónína Friðfinnsdóttirog ég. Jónina lýsti ástandinu hér á landi varðandi skóla- söfn og byggði mikið á tölum úr könnun sem Félag skólastjóra lét gera fyrir nokkru um ástand grunnskóla, og þar kom margt ískyggilegt í ljós. Einnig tal- aði hún um starfsemi FÉS. Ég talaði um nýstofnaða deild skólasafnvarða innan Bókavarðafélags Islands, DESKÓ, og einnig lítillega um kennslu bókasafns- fræði við Háskóla íslands. Ég ræddi aðallega um námsleið þá sem ætluð er kennurum sem starfa á skólasafni, en þessi leið hefur verið í boði nokkur síð- astliðin ár. Flemming Sorensen, formaður Nor- rænu samtakanna og Axel Wisbom fjölluðu um norræna samvinnu og kynntu hugmyndir að næstu ráðstefn- um, en næst verður þingað í Uddevalla í Svíþjóð 1984. Einnig kynntu þeir hug- myndir um alþjóðlegt samstarf. Michael Cooke, varaforseti IASL sat alla ráðstefnuna og tók hann til máls í lokin og óskaði öllum Norðurlöndunum velfarnaðar, því litið væri á þau sem fyrirmynd annarra á þessu sviði og hann hvatti fólk til að vinna sem mest og best að framgangi skólasafna. Á ráðstefnunni bar ekki mikið á þeim ágreiningi sem verið hefur um hvort kennarar eða bókasafnsfræðingar skuli starfa á skólasöfnum. Danir sögðust hafa afgreitt það mál hjá sér og vildu síðan lítið ræða það. I Noregi eru svip- aðar deilur og hér á landi og á ráðstefn- unni voru þrír norskir bókasafnsfræð- ingar, sem eru í sambærilegri deild og DESKÓ innan Norsk bibliotekforening. Norðmenn gáfu okkur ýmsar upplýs- ingar um þróun mála þar í landi, og um starfsemi skólasafna þar. Ekki voru gerðar neinar samþykktir eða ályktanir á þinginu, varðandi mál- efni skólasafna, þó ætla mætti af fréttum fjölmiðla og viðtölum við forsvarsmenn FÉS eftir ráðstefnuna. Mérfinnst heldur ekki tímabært að verið sé að gefa yfir- lýsingar á opinberum vettvangi þegar þess er gætt að málin eru að komast á viðræðustig milli hópanna tveggja, FÉS og DESKÓ. Að öllu samanlögðu var þessi vika að Laugarvatni ákaflega skemmtileg, þó hinn fræðilegi hluti um starfsemi skóla- safna, hafi verið heldur rýr og að galli var hve íslendingarnir voru fáir. Kost- urinn við slíkar ráðstefnur er að þar gefst tækifæri til að kynnast erlendum starfs- systkinum og nýjum viðhorfum og oft myndast persónuleg sambönd, sem verða báðum aðilum til framdráttar í starfi og þá er tilganginum náð. Ingibjörg Sverrisdóttir Bókavörður Fjölbrautarskólans í Breiðholti 15

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.