Bókasafnið - 01.10.1982, Blaðsíða 17
starfsmaður sér um safnið og er það
mjög mikið notað. Sumir fangar, svo-
nefndir fangelsislögmenn, taka einnig
að sér heimildaleitir og athuganir fyrir
aðra fanga, einkum þá, sem eru ólæsir,
og þiggja þá greiðslu fyrir aðstoð sína.
Þessir menn verða oft mjög lögfróðir.
Samkvæmt bandarískum lögum er
hverri hegningarstofnun skylt að veita
föngum aðgang að laga- og dómaritum.
í þessu safni var sérstök spjaldskrá yfir
mál og dóma.
Við spurðum bókavörðinn, hvort
skipulögð biblioþerapía færi frani í
safninu. (Bibliotherapy — endurhæfing
með aðstoð bóka). Hún sagði það ekki
vera. Fangarnir hefðu flestir mjög lítið
úthald við að hlusta. Ljóð, sem oft eru
notuð í slíkum dagskrám, næðu ekki
athygli þeirra, mjög margir fengjust
sjálfir við að yrkja og vildu þá allir koma
sínum eigin ljóðum að fremur en hlusta
á skáldskap annarra. Hins vegar væri
mörgum af þessum Ijóðum og öðru
yrkisefni fangana komið á framfæri í
blöð, bæði í útgáfur fangelsisprent-
smiðjunnar og annarra. Kvikmyndir
væru heppilegri en ljóð, en helst ekki
lengri en 20 mínútna myndir. Einnig
væru sérprentanir á greinum úr Read-
ers’ Digest (Úrval) mikið notaðar.
Það var augljóst, að bókavörðurinn
hafði lifándi áhuga á starfi sínu og naut
vinsælda meðal starfsliðs fangelsisins og
fanganna sjálfra. Það var eftirtektarvert,
hve mikla mannvirðingu en sem festu,
hún sýndi föngunum. Sér til aðstoðar
hafði hún bókavörð í hlutastarfi, er sá
um lagabókasafnið og vaktir þar, og
einn fanga, sem áður er nefndur. Sá
hafði verið dæmdur fyrir um fimmtíu
rán og tilraun til nauðgunar. Fyrri
bókavörður hafði verið rekinn úr starfi
vegna tilrauna til að smygla marijúana
inn í fangelsið.
Meðal þeirrar starfsemi sem rekin er
á vegum og í tengslum við safnið eru
heimsóknir ýmissa sérfræðinga, nám-
skeið og fyrirlestrar. Þár má nefna list-
sýningar og kennslu í myndlist og
handíðum, tónleika, rithöfundakynn-
ingar, leikrit, lyftinganámskeið, bóka-
markað og dýrasýningar. Lifandi dýr
eru oft höfð í safninu, og á meðan
heimsókn okkar stóð, gekk skrautlegur
og málóður páfagaukur manna á mill-
um.
Bingó er spilað á hverjum útborgun-
ardegi til þess að draga úr spennu, sem
margir fanganna komast í, þegar þeir
eiga von á peningum. Ýmsir skulda
öðrum þessa upphæð þá, aðrir vilja
rjúka af stað ogeyða peningunum strax í
sígarettur, áfengi eða jafnvel eiturlyf,
sem alls staðar virðast ná til þeirra, sem
sækjast eftir þeim, þrátt fyrir strangt
eftirlit.
að utan
Eftirvæntingin, sem bingó-spilinu
fylgir, þótt ekki væru verðlaunin önnur
og stærri en bækur, veitir föngunum
verulega útrás og virðist draga úr spennu
og erfiðleikum.
I bókasafninu er jafnan fangavörður,
en hann ber ekki skotvopn fremur en
annað starfslið. Um hádegið urðu
vaktaskipti og inn kom vígalegur kven-
vörður. Sýndist mér sumir fangar taka á
sig langan krók til þess að verða ekki á
vegi hennar.
í þessu fylki eru fleiri fangar í fang-
elsum miðað við íbúatölu fylkisins en
nokkru öðru svæði í Bandaríkjunum, og
stafar það af því, að hegningarlög eru
þama strangari en víðast annars staðar.
Mikill meiri hluti þeirra fanga sem við
sáum voru ungir menn, um eða innan
við þrítugt, og flestir þeldökkir. Margir
eiga við geðflækjur að stríða, og veldur
það miklum erfiðleikum, að sálfræðileg
þjónusta er í lágmarki, aðeins einn sál-
fræðingur starfar nú við Kirkland.
Yfir hádegisverði fengum við gott
tækifæri til að ræða við fangelsisbóka-
verðina. Miklar breytingar hafa orðið í
skipulagningu fangelsismála víða um
heim á stuttum tíma, og í Bandaríkjun-
um þykja Flórída og Kalifornía hafa
þróað þessi mál lengra en nokkur önnur
fylki.
Það kom fram í máli bókavarðanna,
að ólæsi og treglæsi meðal fanganna er
mjög algengt. Mjög lítið er gefið út af
bókum fyrir fullorðið fólk, sem þarf
hvatningar og uppörvunar við til þess að
fást til að lesa, reynt er að nota ungl-
ingabækur, en af þeim eru takmörkuð
not. Lengi vel voru yfirvöld mjög mót-
fallin því að kaupa inn myndbækur, en
nú er það gert, og má oft nota til að leiða
menn til meiri lesturs. Nokkur útgáfu-
fyrirtæki gefa út rit fyrir þeldökkt fólk,
og sögðust bókaverðirnir fylgjast vel
með þeirri útgáfu og kaupa hana.
Bókaverðirnir sögðu, að það erfiðasta
við að starfa í fangelsi væri að horfa upp
á menn koma aftur og aftur til að af-
plána nýja glæpi, sjá þá koma aftur í
hópinn hrópandi og fagnandi eins og
þeir væru að fara í sumarfrí á baðströnd.
Lífið væri mörgum þeirra bærilegra
innan veggja en utan og hvorki uppeldi
né umhverfi veitti þeim þann stuðning
og hvatningu, sem þeir þyrftu til að vilja
lifa lífinu öðruvísi.
Engar myndir fylgja þessari grein
minni, þar sem allar myndatökur voru
bannaðar. í huga mínum eru þó skýrar
myndir frá þessari heimsókn og þeim
heimi, sem er okkur flestum ókunnur og
við hugsum alltof lítið um. Ég held að
ekkert okkar ferðalanganna hafi komið
úr þessari fjögurra tíma fangelsisvist al-
veg sama fólkið og fór inn.
17