Bókasafnið - 01.10.1982, Qupperneq 28
bókakynningar
ástir hennar og hjónabönd og greinir frá
ýmsum hliðum sem umheiminum voru
áður ókunnar. Hún segir frá kvik-
myndaferli hennar, sjö hjónaböndum,
óteljandi ástarævintýrum, veikindum,
sorg og gleði. Elizabeth Taylor höfðaði
mál til þess að stöðva útgáfu bókarinnar
en án árangurs. Ingibjörg Jónsdóttir
þýddi.
Á síðasta ári kom út hjá Iðunni Ást-
arsaga aldarinnar eftir Martu Tikkanen.
Hún fjallaði eins og kunnugt er um
hjónaband hennarog Henriks Tikkanen
og ekki síst um drykkjuskap eigin-
mannsins. Henrik Tikkanen er kunnur
höfundur í Finnlandi og jafnframt
þekktur myndlistarmaður. Hann hefur
ritað endurminnigar sínar í nokkrum
bindum og kemur fyrsta bókin út á ís-
lensku i haust í þýðingu Ólafs Jónssonar.
Hún ber titilinn Brenna og fjallar um
„hórdóm og drykkjuskap, ólán og bráð-
an dauða, lýsir gæfulausri fjölskyldu og
baráttu hennar við ógæfuna. Það er hún
sem gefur gildi og ógildir um það um
leið“ svo notuð séu orð höfundar í upp-
hafi bókarinnar.
Hrollvekjur er úrval þýddra hryll-
ingssagna eftir nafntogaða höfunda.
Alfreð Flóki myndskreytir bókina.
Meðal þýðenda eru Þórbergur Þórðar-
son, Guðbergur Bergsson, Árni Björns-
son og Úlfur Hjörvar.
Barna- og unglingabækur
Að venju gefur Iðunn út fjölmargar
bækur fyrir börn og unglinga. Hér skal
getið nokkurra.
Mesta athygli mun vafalaust vekja
Gilitrutt, þjóðsagan kunna, í myndbún-
ingi Brians Pilkington sem vakti verð-
skuldaða athygli fyrir myndir sínar í
Ástarsaga úr fjöllunum eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Hún kom út í fyrra og
seldist í mjög stóru upplagi og hefur nú
komið út á nokkrum erlendum tungu-
málum. Gilitrutt er prýdd fjölda mynda,
öllum í litum, og er hin vandaðasta að
allri gerð.
Frumsamdar bækur eftir Magneu frá
Kleifum, Kára Tryggvason og Ragn-
heiði Jónsdóttur koma einnig út.
Út koma tvö ævintýri H.C. Andersen
með lytmyndum Ulf Föfgren, bók eftir
Svend Otto S., Ole Lund Kirkegaard og
margar fleiri. Meðal höfunda unglinga-
bóka má nefna Jan Terlouw, Bo Carp-
elan, Anke de Vries, E.W. Hildick og
Erik Christian Haugaard, allir viður-
kenndir úrvals höfundar.
Handbækur, námsbækur og fleira
Vegleg bók um ljósmyndun kemur út:
Taktu betri myndir eftir Michael Lang-
ford. Bókin er í stóru broti, prýdd geysi-
legum fjölda litmynda og skýringa-
teikninga. Hún er sniðin við hæfi bryj-
enda jafnt sem lengra komna og er talin
einhver besta bók sinnar tegundar sem
út hefur komið um þetta efni.
Hverju svarar læknirinn? í þýðingu
Guðsteins Þengilssonar er nýkomin út
en upplagið er á þrotum. Ný útgáfa er
væntanleg fyrir jól.
Ungbarnið — um þroska og umönnun
bama fyrstu tvö æviárin er handhægt
leiðbeiningarrit með myndum eftir
hjúkrunarfræðingana Maríu Heiðdal og
Önnu Ólafsdóttur.
Aðhlynning aldraðra eftir Sólveigu
Jóhannsdóttur er nýkomin út.
Bíllinn eftir Guðna Karlsson er kom-
inn út í fjórðu útgáfu, mikið breytt og
aukin.
Komin er önnur útgáfa á Lostæti með
lítilli fyrirhöfn sem kom út í fyrra og
seldist upp á svipstundu. Nú koma tvær
nýjar matreiðslubækur í sama flokki.
Einnig koma tvær minni matreiðslu-
bækur út.
Meðal nýrra námsbóka eru Dönsk
málfræði, Ritgerðabókin, Hreyfingar-
fræði, íþróttasálfræði og mikið endur-
skoðuð útgáfa af Straumar og stefnur í
íslenskum bókmenntum frá 1550 eftir
Heimi Pálsson.
Hörpuútgáfan
Hver einn bær á sína sögu. Saga Ljár-
skóga í Dölurn. Höfundurinn, Hall-
grímur Jónsson frá Ljárskógum, leiðir
okkur frá fyrstu sögnum til okkar daga
með hrynjandi frásagnarsnilld. Lesand-
inn hlýtur að hrífast af frásögn hans,
hvort sem hún er af órofafegurð náttúr-
unnar umhverfis lítinn smaladreng,
þættir úr fornum sögnum, sem snerta
forfeður hans og formæður, hof eða
hörga, greni lágfótu eða heimilið í
Ljárskógum. Gamansemi gætir hressi-
lega í sumum frásögnum hans, en hann
lætur heldur ekki ósagðar harmsögur.
þar sem djúp og innileg samúð birtist
frá hendi hans. I'bókinni er fjöldi
ljósmynda.
Glampar í fjarska á gullin þil — Frá-
söguþættir. Höfundurinn, Þorsteinn
Guðmundsson á Skálpastöðum í
Lundareykjadal, hefur verið virkur í
forystusveit borgfirskra bænda um flest
sem til heilla horfir. Hann hefur fengist
nokkuð við ritstörf. Kvæði og greinar
eftir hann hafa birst í blöðum og tíma-
ritum. Þættirnir í þessari bók eru af
sönnum atburðum sem höfundur hefur
upplifað á langri ævi. M.a. af snörpum
viðskiptum hans við laxinn í Grímsá,
þar sem snilli og þolinmæði ráða úrslit-
um leiksins. Bókin lýsir vel næmri til-
finningu höfundar fyrir náttúrunni og
lífinu í kringum hann.
Leiftur frá liðnutn árum 2. Safnað
hefur séra Jón Kr. ísfeld. Nú kemur út 2.
bindið í þessum bókaflokki. Fyrsta
bókin kom út á s.l. ári og hlaut mjög
góðar viðtökur. í bókinni eru fjölbreytt-
ar frásagnir. Sagt er frá margháttuðum
þjóðlegum fróðleik, reimleikum, dul-
rænum atburðum, skyggnu fólki, skipa-
ströndum, skaðaveðrum, sérstæðum
hjúskaparmálum ofl.
Borgfirzk blanda 6. Safnað hefur
Bragi Þórðarson. Væntanlegt er í haust
sjötta bindið af þessu safnriti. Upphaf-
lega var ætlunin að bækurnar yrðu
fimm. En vegna fjölda áskorana er út-
gáfunni haldið áfram. Efnið er með
sama sniði og áður blanda af þjóðlífs-
háttum, persónuþáttum og gamanmál-
um.
Föðurlandsvinir á flótta eftir norska
rithöfundurinn Asbjörn 0ksendal.
Hörpuútgáfan hefur áður gefið út eftir
0ksendal bækurnar „þegar neyðin er
stærst" og „Gestapo í Þrándheimi."
Bækur þessar hafa notið mikilla vin-
sælda hérlendis. M.a. þess vegna kom
0ksendal ásamt eiginkonu sinni til ís-
lands nú í sumar. Hann heimsótti Akra-
nes og ferðaðist á vegum útgáfunnar um
söguslóðir Borgarfjarðar.
Hættuför á norðurslóð er ný spennu-
saga eftir bandaríska rithöfundinn
DUNCAN KYLE. Eftir hann er áður
útkomin á íslensku bókin ísbúrið. Þessi
nýja bók segir frá hættulegri flugferð á
norðurslóð, þ.e. flugleiðinni frá Banda-
ríkjunum um Grænland og ísland til
Englands. Harðsvíraðir glæpamenn og
eiturlyfjasalar halda um taumana.
Þrjár nýjar ástarsögur: „Þú ert ástin
mín.“ Fjórtánda bókin eftir höfundinn
vinsæla BODIL FOSBERG. .Elskaðu
mig.“ Sjöunda bókin í flokknum
„Rauðu ástarsögurnar“ eftir ERLING
POULSEN. Þriðja ástarsagan eftir
ensku skáldkonuna NETTU MUSK-
ETT, en eftir hana hafa komið út
nokkrar bækur á íslensku. Nýja bókin
hennar heitir „Njóttu mín.“
Leikir og létt gaman — séra Sveinn
Víkingur tók saman. í þessa bók er
safnað leikjum og gamni fyrir fólk á öll-
um aldri. Ertu ískemmtinefnd?Áttu von
á gestum? Hvað viltu gera til þess að
skemmta þeim? Leikir og létt gaman
leysir þann vanda. Þessi vinsæla bók,
sem hefur verið ófáanleg um árabil, er
væntanleg nú í haust.
Draumráðningar og spilaspá. Bók
þessi kemur út í 2. prenntun nú í haust.
Þar er að finna svör við áleitnum spurn-
ingum. Boðar draumur þinn ást, ham-
ingju, gleði, sorg, ágóða, nýja vini? Vilt
þú læra spilaspá? Bók sem ungir og
gamlir spá í.
28