Alþýðublaðið - 20.01.1967, Side 4

Alþýðublaðið - 20.01.1967, Side 4
mmm Ritstjórar: Gylíi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnar£ull->. trúi: Eiður GuÖnason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906, Aðsetur Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Seykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-. blaðsins. - Askriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakið, Útgefandi Alþýðuflokkurinn. Virma sjómanna TILLÖGUR TOGARANEFNDAR um úrræði til að fcæta hag togaraútgerðarinnar bafa verið til athug- iinar og umræðu, síðan álit nefndarinnar var birt. -ÍEnn er ekki ljóst, hvort farið verður eftir þessum tillögum að einhverju leyti, en sumar þeirra hafa fengið misjafnar og aðrar að mestu fjandsamlegar lindirtektir. Sú tillaga, sem mest hefur verið deilt um, er á þá lund, að togurum verði veitt stóraukin 'veiðisvæði innán 12 mílna fiskveiðilögsögunnar. Þessi hugmynd á sér ýmsa stuðningsmenn, en einnig hafa borizt mót- tnæli gegn henni frá fjöldamörgum aðilum víða um landið. Fer ekki á milli mála, að þungi mótmælanna er mun meiri en stuðningsins. Önnur tillaga nefndarinnar var í þá átt að skerða vökulög togarasjómanna og snúa þannig við kjara- baráttu sjómannastéttarinnar. Er það furðulegur hugs unarháttur á síðari hluta tuttugustu aldar, þegar all- ar vinnandi stéttir frjálsra landa eru að stytta vinnu’ tíma að vandamál íslenzkrar togaraútgerðar verði leyst með því að eyðileggja þýðingarmestu áfanga, eem náðst hafa í kjaraharáttu viðkomandi stéttar. Sjómannasamtökin og annað vinnandi fólk á íslandi muni aldrei þola, að slíkum ráðum verði beitt. Stóraukin tækni hefur í nálega öllum atvinnugrein- um létt vinnu verkafólks og skapað möguleika fyrir Styttri vinnutíma, en afköst þó orðið meiri en áður. Á. þann hátt er sjálfsagt að nýta betur vinnuaflið, en ekki með því iað snúa klukkunni við og lengja vinnutímann á nýjan leik. Þó svo færi, að sú leið væri farin, hver trúir því, að það mundi ráða úr- slitum um afkomu togaranna? Bretar og Þjóðverjar hafa færri menn á togurum sínum, en þeir eru líka í stöðugum fjárhagsvandræðum og þurfa meiri eða minni opinbera styrki. Vinna harna BARNAVINNA er ekki mikil að vetrarlagi hér á landi, enda skólar þá starfandi. Samt sem áður er ástæða til að minna á, að heilbrigð skipan á vinnu- málum barna og unglinga er einn þeirra þátta í fé- lagslegum efnum, þar sem Islendingar standa enn langt að baki öðrum þroskuðum framfaraþjóðum. Barnavinna er nú nefnd af því, að Alþingi kemur saman á ný eftir fáa daga. Hefur þetta mál barn- anna átt erfitt uppdráttar í sölum Alþingis og hin- um rðmmustu hagsmuna- og íhaldsöflum jafnan tek- izt að eyða tilraunum umbótamanna til að bæta þó ekki sé nema örlítið löggjöfina um þetta efni. Með' ferð þessa máls er smánarblettur á Alþingi, sem verður að þvo af þinginu hið skjótasta. 4 20. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ (} ÍOlBLAíeiÐ VANTAR BLAÐBURÐAR- FÓLK í EFTIRTALIN HVERFI: MIÐBÆ, I. og II. HVERFISGÖTU, EFRI OG NEÐRI NJÁLSGÖTU LAUFÁSVEG LAUGARÁS RAUÐARÁRSTÍG GRETTISGÖTU ESKIHLIÐ KLEPPSHOLT SÖRLASKJÓL LAUGAVEG, NEÐRI SKJÓLIN HRINGBRAUT LAUGAVEG, EFRI FRAMNESVEG SÍMI 14900 Auglýsið í Alþýðublaðinu Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 14906 ★ TVENNIR TÍMARNIR. Samkvæmt nýjustu skýrslum voru smjörbirgðir í landinu um 850 tonn 1. janúar sl. og hafa minkað um 300 tonn á árinu sem leið. Nokkuð liefur þannig gengið á smjörfjallið, en ekki munu landsmenn þó þurfa að óttast að borða þurrt fyrst um sinn, sem betur fer. Sú var tíðin, að íslendingar þjáð- ust af feitmetisskorti. Trúverðugt vitni í þeim efnum er m.a. óskavísa Árna Böðvarssonar skálds á Ökrum: „Eg vildi að sjórinn yrði að mjólk,/und- irdjúpin að skyri, / fjöll og hálsar að floti og tólk, / frónið að kúasmjöri. / Uppfyllist óskin mín, / allt vatn að brennivin, / akvavít áin Rin, / eyjarnar tóbaksskrín. / Grikkland að grárri meri." Eins og vísan ber með sér hefst óskalistinn á mjólk og feitmeti, smjöri, floti og tólk, jafnvel brennivínið kemst ekki að fyrr en í sjötta lið í upptalningunni, og mun þó skáldinu hafa þótt sopinn harla góður. ★ VANDAMÁLIN SNÚAST VIÐ. Ánægjuleg breyting hefur orðið í þessum efnum, eins og smjörfjallið margumtal- aða sýnir og sannar. Enda eru íslendingar nú þrif- ltg og sælleg þjóð og hættir að sálast úr ófeiti, sem einatt kom fyrir í gamla daga. Bændur lands- ins hafa unnið mikið og þakkarvert starf að rækt- un landsins og framleiðslu landbúnaðarafm'ða. Hins vegar hefur framleiðslan verið æði handahófs- kennd og skipulagslítil, að ekki sé meira sagt, og verður sú tilhögun að skrifast að nokkru leyti á reikning forustumanna bænda, sem sofið hafa á verðinum. Af því stafar m. a. sú offramleiðsla, sem orðið hefur á smjöri síðustu árin og allir þekkja. Úr þessu á hins vegar að vera auðvelt að bæta. Mjólkurframleiðsluna ætti eingöngu að miða við þarfir innanlandsmarkaðarins, meðan ekki er unnt að fá sómasamlegt verð fyrir mjólkurvörur erlend- is. Engum ætti þó að þykja meira fyrir því en bændum sjálfum, sem unnið hafa hörðum höndum að framleiðslunni, að sjá á eftir vörunni á erlend- an markað fyrir skítsvirði, sem jafngildir því — þjóðhagslega séð — að aka verulegum hluta henn- ar á hauga. Enda munu þeir nú vera farnir að sjá þetta sjálfir og liaga afurðaframleiðslunni sam- kvæmt því. Til þess bendir m. a. minnkun smjör- fjallsins á sl. ári. Þannig eru tímarnir. Vandamálin snúast við og óskirnar eru líka aðrar nú heldur en þær voru fyrir tveimur öldum. Það gæti verið býsna fróðlegt að gera sér grein fyrir, hvernig óska- listi þjóðai-innar liti út í dag á þessum feitmetis- og velmegunartímum.. Að líkindum yrði hann nú með talsvert öðrum hætti en á dögum Árna Böðv- arssonar skálds, hvort sem það yrði nú brenni- vínið, gráa merin eða eittlivað annað, sem kæmist í efsta sætið. — S t e i n n . BBKS3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.