Alþýðublaðið - 21.01.1967, Síða 3
Ætlaði að
stofna klúbb
Rvík — SJÓ
í fyrrakvöld komst lögreglan á
snoðir um að gleðskapur mikill
færi fram í Hrannarbúð að Hafn
arstræti 1 hér í borg. Þar hefði
ungt fólk komið saman og hlustað
Framhald 14. síðu.
Kviknar i
strætisvagni
Rvík, SJÓ
Rétt fyrir kl. 9 í gærmongun
kom upp eldur í strætisvagni, er
stóð mannlaus á stæðinu við Kalk-
ofnsveginn. Hafði með einhverj-
um hætti borizt eldur í olíu, sem
var undir vagninum. Talsvei'ður
eldur var í strætisvagninum, er að
var komið, en fljótlega tókst að
ráða niðurlögum hans. Skemmdir
urðu í rnihna lagi.
Borgarnes fær
sjónvarp
í gærkvöldi var tekin í notkun
endurvarpsstöð fyrir Borgarnes.
’Var stöðinni valinn staður á Kára
stöðum eftir allmiklar athuganir.
Stöðin er 3wött.
Farþegar sluppu
með skrámur
Harður árekstur varð við Lóns
brú norðan Akureyrar á fimmtu
dag, er Volkswagenbíll, sem var
á leið niður brekkuna að brúnni
rann að vörubíl, er var við brúna.
Bifreiðin ók beint á járnrör, sem
stóðu aftur af palli vörubílsins
og lentu þau að mestu á þaki bif
reiðarinnar og hurðinni vinstra
megin. Bíllinn stórskemmdist og
virðist mesta mildi, að farþegar
Volkswagenbifreiðarinnar, sem
voru þrír skyldu sleppa nær ó-
meiddir eða aðeins með skrámur
Það var lán í óláni að rörin stóðu
aftur af vörubifrei'ðinni, annars
hefði bifreiðin, runnið á pall vöru
bílsins, sem var mun lægri og hefði
þá gengið beint inn í framrúðuna.
Bifreiðin var bæði með keðjur og
snjódekk, sem hvorugt kom að
lialdi í hálli brekkunni.
12 vindstig í Eyjum
Ofsarok var í Vestmannaeyjum
í gær og fóru því engir bátar á
sjó. Um átta-leytið í gærmorg-
un mældust 11 vindstig á Stór-
höfða og um miðjan dag í gær 12
vindstig. Enginn snjór er í Vest-
mannacyjum og er liiti um 2
stig. Spáð var áframhaldandi roki.
V E RÐTRYGGÐ
LS FTRYGG I N G
Tr/ggingafræðingur Andvöku hefur útbúið nýja verðtryggða líftryggingu, sem er algjör nýjung hér á landi.
Gamla líftryggingaformið, sparilíftryggingin, sem flestir kannast við, kemur nú, því miður, ekki að tilætluðum notum.
Þessi nýja trygging, sem er hrein áhættulíftrygging, er sérstaklega sniðin fyrir lönd, þar sem ör verðbólga hefur komið
í veg fyrir eðlilega starfsemi Hftrygginga, eins og t.d. hér á landi. í tryggingunni hækkar tryggingarupphæðin og
iðgjaldið árlega samkv. vísitölu framfærslukostnaðar.
Dæmi: Hefði Sigurður Sigurðsson, sem var þrítugur 1962, líftryggt sig fyrir
kr. 222.000.00 og greitt þá kr. 1.000.00 í iðgjald, væri hann tryggður í dag fyrir
kr. 317.000.00 og greiddi kr. 1553.00 í iðgjald.
Vér hvetjum alla fjölskyldumenn, sem hafa velferð fjölskyldu sinnar í huga, að
hafa.samband við Aðalskrifstofuna Ármúla 3 eða umboðsmenn vora og fá
nánari upplýsingar um þessa nýju líftryggingu.
IÍFTRYGGirVGAFEIACiIÐ ANDVAKA
Báran mófmælir
togaraálitinu
Aðalfundur Báru, félags smá-
bátaeigenda í Hafnarfirði, lialdinn
hinn 8. janúar 1967 mótmælir
framkomnum kröfum um auknar
heimildir til togveiða innan land-
helgi.
Telur félagið, að slíkar ráðstaf-
anir samrýmist ekki kröfum, sem
íslendingar hljóta óhjákvæmilega
að gera um sérstakar aðgerðir til
þess að koma í veg fyrir þær smá-
fiskveiðar, sem nú eiga sér stað
utan landhelgi.
Minnkandi afli af fiski, öðrum
en síld, hlýtur að kalla á auknar
friðunarráðstafanir á uppeldis-
stöðvum fisksins, og sérstaklega
varhugavert væri að auka togveið-
ar inni í fjörðum og flóum.
ítrekar félagið fyrri kröfur um,
að dragnótaveiðar vcrði bannaðar
í Faxaflóa.
Árshátíð
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í Reykjavík
heldur árshátíð næstkomandi þriðjudagskvöld
kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Skemmtiatriði: 1) Sýndar íslenzkar skugga-
myndir. 2) Leikþáttur, Árni Tryggvason og
Klemenz Jónsson. — Sameiginleg kaffidrykkja
— Félagskonur fjölmennið og takið með ykk
ur gesti.
21. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3