Dagur - 17.10.1997, Qupperneq 2

Dagur - 17.10.1997, Qupperneq 2
2-FÖSTUDAGUR 17.0KTÓBER 1997 ro^tr FRETTIR Áhorfendum hleypur eðlilega kapp I kinn á íþróttakappleikjum, KA-mönnum sem öðrum. Yfirleitt er stemmningin góð eins og á myndinni en undantekningar koma upp eins og í Kópavogi f fyrrakvöld þegar áhangendum KA og HK laust saman með alvarlegum afleiðingum. Sparkað var í liggjandi mann, hrækt á hann og tilraun gerð að hleypa úr dekkjum bifreiðar. Handknattleikssambandið hefur málið til umfjöllunar. Gróf árás eftír liandboltaleik Gróf líkamsárás á áhang- anda KA eftir handbolta- leik í Kópavogi. Maður hrækti framan í hann og reyndi að hleypa lofti úr dekkjum. Sá fáheyrði atburður átti sér stað eftir handboltaleik KA og HK sem fram fór í Kópavogi í fyrrakvöld, að áhorfandi réðist að áhanganda KA og barði af kröftum eftir að KA vann sigur á and- stæðingunum með einu marki. Kópa- vogsbúi sparkaði m.a. í Akureyringinn liggjandi og þurfti nokkra menn til að stöðva slagsmálin. Ennfremur reyndu tapsárir að hleypa lofti úr dekkjum bif- reiðar áhangenda. Kristján Sveinsson er bróðir fórnar- FRÉTTA VIÐ TALIÐ lambsins og hann var viðstaddur þegar allt varð vitlaust: „Við stóðum þarna bræðurnir og vorum að fagna. Þá kem- ur 17-18 drengur og ýtir helvíti hressi- lega við okkur. Við spurðum hvaða stælar væru í honum og þá skiptir eng- um togum að hann réðist á Árna. Eg stökk á gæjann til að reyna að hjálpa bróður mínum en var þá rifinn af hon- um. Bróðir minn lenti í gólfinu og þá tók einn sig til og sparkaði bæði í lær- ið innanvert og í síðuna á honum." Hremmingunum hjá Arna var ekki lokið því þegar hann reyndi að komast út úr húsinu voru gerð hróp að honum og hann laminn í bakið. Þegar að bfln- um kom, stóðu þar tveir menn og reyndu að hleypa úr dekkjunum. Síð- ustu viðskipti Akureyringanna við ólátaseggina voru að hrækt var framan í Árna og félaga hans. Arni og Kristján eru um fertugt og segir Kristján að engar ýfingar hafi átt sér stað fyrir slagsmálin á áhorfenda- bekkjunum. „Þetta er ótrúleg fram- koma og verður að taka hart á þessu. Ef ekki, ganga menn á Iagið og hleypa öllu upp,“ segir Kristján. Árni var á leið í myndatöku á sjúkra- húsí í gær enda lék grunur á að hann væri rifbeinsbrotinn. Hann hafði ekki kært málið til lögreglu en að sögn bróður hans íhugar hann það. Búið er að ræða við HSI og stjórn KA vegna málsins. Arni Stefánsson, liðsstjóri KA, hefur lent í ýmsu á undanförnum árum en hann minnist ekki hefndaraðgerða líkt og að ofan er greint frá. „Þetta er slæmt fyrir handboltann í heild sinni og öllu íþróttalífi til vansa. Eg á þó ekki von á að neinir eftirmálar verði af þessu atviki af okkar hálfu.“ - BÞ Það bíða víst fleiri en forsætisráðherra spenntir eftir að framkvæmdum við stjómarráðið ljúki, en þær hafa tekið lengri tíma en áætlað var. í pottinum segja menn að það sé farið að hafa áhrif á framþróun bæði ísienskrar kvikmynda- listar og þróun og endurnýjun námsgagna og námsefnis í grunnskólanum. Kvikmyndasjóður íslands er nú í bráðabirgðahúsnæði á lyrstu hæð Hallveigarstaða að Túngötu 14, en þar á bæ bíða menn eftir því að komast í framtíðarhúsnæði sitt á annarri hæð í mcnntamálaráðuneytinu. Þar er hins vegar íyrir starfshópur sem er að end- urskoða námsgögn og námsefni grunnskólanna. Hann bíður nú eftir því að komast á sinn stað í menntamálaráðuneytinu, en þar er forsætis- ráðuneytið tímabundið vistað meðan stjómar- ráðshúsið er gert upp. Framundan era talsverðar hræringar í fjölmiðla- heiminum. Blaðameimimirgamaireyndu Sigur- jón M. Egilsson og Sæmundur Guðvinsson ætla sem kumiugt er að stofna nýtt vikublað og í pott- inum er fullyrt að það verði kailað Nýja mánu- dagsblaðið. Eldri lesendur muna sjálfsagt eftir Mánudagsblaðinu sáluga, sem oft hneykslaði góðhorgara þessa lands, en hvort nýja blaðið á eftir að gera það, kemur í ljós Jón Axcl Ólafsson og peningamennimir sem að honum standa em líka sagðir stefna að blaðaút- gáfu eftir hálft ár, til viðbótar við útvarpsstöðina sem bráðum fer í loftið og sjónvarpsstöðina sem er á teikniborðinu: Og enn af fjölmiðlungum: Blaðamannafélag ís- lands ætlar að halda veglega 100 ára afmælishá- tíð laugardagiim 22. nóvemher næstkomandi. Pottverjar vora að ræða þessi hátíðarhöld og reyna að sjá íýrir sér það ástand sem kann að skapast þegar allir hlaða- og frétíamenn landsins þyrpast saman til að skála. Hvað svo sem úr verð- ur töldu pottverjar einsýnt að fréttir yrðu harla fátæklegar strax í V_______________- kjölfar afmælishátíðarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Borgarstjðri Eftirliti með vínveitinga- húsum virðist í mörgu ábóta- vant og borgaryfirvöld vilja breyta því. Víljum ekki kvóta á vínveitmgahús — Kvartað hefur verið yfir mörgutn vín- veitingahúsum í Reykjavík, sem sum hver valda verulegu ónæði og eru jafnvel rekin án tilskilinna leyfa. Hvað er hægt að gera við þessu ástandi? „Við höfum ekki viljað setja kvóta á fjölda vínveitingahúsa í miðborginni eða almennt. Við óttumst að þar með værum við jafnvel að festa skussana í sessi, en loka fyrir öðr- um. Við höfum ekki viljað búa til verðmæti með slíku kvótafyrirkomulagi. En við höfum fullan vilja til að vinsa úr þá sem ekki standa sig og það þyrfti að gera með miklu öflugra eftirliti en nú er. Við höfum það ekki í okk- ar höndum. Við höfum samþykkt og sent til dómsmálaráðuneytisins heimildir tíl Iög- reglustjóra til tímabundinnar eða varanlegr- ar Ieyfissviptinga vínveitingaleyfa, ef leyfis- hafí fylgir ekki settum reglum. I öðru Iagi höfum við hvatt lögreglustjóra til að beíta heimild í fjórðu grein lögreglu- samþykktar, á stöðum sem uppvísir verða að því að valda íbúum ónæði vegna hávaða af völdum hljómflutningstækja. Við höfum einnig lagt áherslu á að í áfengislögum, sem löngu er tímabært að endurskoða, verði krafa um mat á umsækj- andann sjálfan, en ekki bara búnað staðar- ins eins og nú er gert við veitingu vínveit- ingaleyfis." — Viljið þið sjá frekari breytingar á áfengislögunum ? „Við höfum lagt talsverða áherslu á að sveitarstjórnir geti ákveðið opnunartíma veitingahúsa. Það er forsenda þess að hægt verði að leyfa sveigjanlegri lokunartíma á þessum stöðum, þannig að ekki séu allir að koma út í einu. Það gengur ekki, eins og reynslan sannar." — Þarf að herða eftirlitið? „Já jrað er nauðsynlegt og þá einkum að styrkja heimildir lögreglunnar til að sinna þessu eftirliti, þannig að það sé hægt að sigta skussana frá. Við höfum viljað leggja mat á umsækjendur og það höfum við að vissu Ieyti verið að gera, þótt sumir segi okkur skorta heimild til þess. Það eru mörg gjaldþrot í þessari grein og menn fara oft frá og skilja slóðina eftir sig. Það er mikil svört atvinnustarfsemi í kringum þetta og því höf- um við viljað láta taka á. Ef menn þyrftu til dæmis að leggja fram ábyrgðir áður en þeir opna vínveitingastað, mat yrði lagt á umsækjandann og um leið ríkjandi virkt eftirlit, myndi ef til vill verða ákveðin grisjun." — Sumir segja að einhversstaðar verði vondir að vera. Hvað finnst þér um þá kenningu í þessum málum? „Ég hef vissa samúð með þessari kenn- ingu. En þeir verða helst að vera einhvers staðar þar sem þeir eru ekki að áreita aðra eða þröngva sér upp á þá sem ekki vilja verða á vegi þeirra.“ — Eiga „hinir vondu“ að vera í hjarta borgarinnar? „Það er í sjálfu sér ekki æskilegt. Þó er hæpið að loka stað vegna þess að það eru ekki nógu fínir kúnnar sem sækja hann eða þeir teljist undirmálsfólk, ef staðurinn er að öðru leyti í lagi. Ef það er kvartað undan hávaða, Iátum eða að mikil lögregluafskipti þurfa að eiga sér stað, þá horfir málið öðru vísi við.“ — FÞG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.