Dagur - 17.10.1997, Blaðsíða 11
X^MT'
FÖSTVDAGVR 17.0KTÓBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L. A
Dauði þingkonu
Hungitrsneyð á Imrrkasvæðum
Indónesíu
I gær höfðu nærri 500 manns látið lífið á þurrkasvæðunum í Irian
Jaya á Indónesíu. Stjórnvöld þar telja að fæðuskortur ógni lífi og heil-
su 90 þúsund manns í Ijallahéraðinu Jayawijaya vegna þurrkanna og
mikilla hvassviðra sem hafa geisað þar að undanförnu. Skógareldar
hafa svo bætt gráu ofan svart. Ekki hafa þó borist þangað nema 28
tonn af hrísgrjónum frá því hjálparstarf hófst á svæðinu þann 23.
september síðastliðinn, en talið er að þörf sé á um 36 tonnum á dag.
Vilja Tsjúbaís úr embætti
Ráðherrar úr ríkisstjórn Jeltsíns
Rússlandsforseta og þingmeiri-
hluti kommúnista ætla að setjast
niður að samningaborði til að
fínna einhverja lausn á þrætumál-
um sínum. Kommúnistaflokkurinn
hefur m.a. farið fram á það að
Anatolí Tsjúbaís víki úr embætti
varaforsætisráðherra, ásamt því að
ríkisstjórnin hverfi að einhverju
marki frá markaðsstefnu sinni.
Kommúnistaflokkurinn frestaði á
miðvikudag atkvæðagreiðslu í
þinginu um vantraust á
Tsjernómyrdín forsætisráðherra,
en atkvæðagreiðslan fer fram þann
22. október ef málamiðlun hefur
ekki náðst fyrir þann tíma.
Anatolí Tsjúbaís.
í febrúar 1994 var
Yann Piat, tæplega
hálffimmtug þing
kona fransks stjóm-
niálaílokks sem
þekktur er iindir
skammstöfuninni
UDF, skotin til bana í
bíl sínum á vegi í Suð-
ur-Frakklandi, af til-
ræðismönnum á bif-
hjóli.
UDF er annar af tveimur stórum
hægriflokkum landsins, virðuleg-
ur talinn og gjarnan skilgreindur
sem frjálslyndur.
Yann Piat hafði vakið athygli
með þra að ráðast skörulega gegn
spillingu, sem lengi hefur mikið
þótt vera um í suðausturhluta
Frakklands, sérstaklega á strönd
landshlutans Provence. Rívíera
og Cote d’Azur eru nöfn sem
lengi hafa verið höfð á lengri eða
styttri ræmum strandar þessarar.
Piat hafði með nýnefndri baráttu
sinni náð verulegum vinsældum
og verið af því tilefni kölluð
„Yann d’Arc."
Hægfara raimsókn
Fljótlega eftir að morð þetta
hafði verið framið komst á kreik
orðrómur um að þar hefðu ekki
eingöngu „venjulegir" glæpa-
menn átt hlut að máli, heldur
einnig áhrifamiklir stjórnmála-
menn í tengslum við mafíur. Um
þesskonar samtök er mikið þar á
ströndinni, sem mjög er sótt af
ferðamönnum. Itöísku mafíurn-
ar hafa fyrir löngu náð þar veru-
legum ítökum og á þeim slóðum
er mikið um Korsíkumenn. Fljá
þeim er við lýði ættarmafíuhefð
frá fornu fari.
Nokkur grunur hefur í þessu
sambandi fallið á suðurfrönsk
lögreglu- og dómsmálayfírvöld.
Þau þykja hafa farið sér hægt við
rannsókn morðmáls þessa og það
er enn óupplýst. Ekki síður kyn-
leg þykja viðbrögð sömu yfirvalda
gagnvart fleiri álíka voveiflegum
dauðsföllum. T.d. úrskurðaði rík-
issaksóknari í Aix-en-Provence
nýlega að tæplega sextugur mað-
ur að nafni André Isoardo, sem
fannst skotinn til bana úti í
runna, hefði svipt sig lífí. Að því
er blöð herma hafði Isoardo sam-
kvæmt þeirri niðurstöðu skotið
sig fimm skotum úr ýmsum átt-
um, þ.á m. einu í hægri úlnliðinn
og var hann þó rétthentur. Þetta
þótti ýmsum fullmikil leikfími til
þess að hægt væri að trúa henni
á Isoardo, þótt hann hefði verið
talínn fimleikamaður nokkur í
stjórnmálum. A þeim vettvangi
hafði hann byrjað sem kommún-
isti, orðið síðar róttækur hægri-
maður og loks gengið í UDF og
verið kosinn fyrir þann flokk í
svæðisráð fylkisins Provence-
Alpes-Cote d’Azur.
„Morðingjar í miðju valds“
Tveimur og hálfum mánuði eftir
morðið á Piat fundust bræður
tveir, Fernand og Christian
Sancené, látnir í bílskúr sínum.
Yfirvöld úrskurðuðu að útblástur
úr bíl hefði orðið þeim að bana,
þótt blóð væri á gólfi bílskúrsins.
Það fréttist að þeir bræður hefðu
vitað sitthvað um Piat-málið og
geymt þann fróðleik í tölvu hjá
sér. Hver sem sá fróðleikur var
mun honum hafa verið eytt úr
tölvunni við þetta tækifæri. Ann-
ar bræðranna hafði um skeið ver-
ið samstarfsmaður Jean-Claude
Gaudin, fyrrverandi ráðherra og
núverandi borgarstjóra í
Marseille.
Nú hefur Piat-málið vaknað
heldur betur til Iífsins eftir að út
kom bók um það eftir tvo rann-
sóknablaðamenn, André Rou-
geot og Jean-Michel Verne. TitiII
bókarinnar: „Yann Piat-málíð.
Morðingjar í miðju valds.“ I bók
þessari gefa höfundar til kynna
að þeir telji að Gaudin og annar
stjórnmálamaður í fremstu röð,
FranAois Léotard, formaður
UDF og fyrrum varnarmálaráð-
herra, hafi látið myrða Piat,
vegna þess líklega að hún hefði
komist yfír skjalfestar sannanir
fyrir því að „Rívíeru-furstar"
þessir, eins og þýska blaðið Der
Spiegel orðar það, hafi staðið í
fasteignabraski í samstarfi við
mafíur.
Myndir teknar af moröi
í bókinni eru stjórnmálamenn
þessir tveir að vísu aðeins nefnd-
ir dulnefnum, en enginn virðist
vera í vafa um við hverja sé átt.
Þeir hafa höfðað mál gegn höf-
undunum, en bókin er hæst á
sölulista og sagt er að margir
Frakkar telji ekki ósennilegt að
þar sé farið með rétt mál. Léot-
ard hafði raunar áður, meðan
hann var borgarstjóri í Fréjus,
verið orðaður við skuggaleg við-
skipti.
Þeir Rougeot og Verne styðjast
í bókinni einkum við upplýsingar
frá manni, sem auðvitað er ekki
gefið upp hver er en virðist vera
hershöfðingi á eftirlaunum, áður
starfandi hjá leyniþjónustustofn-
un að nafni Direction du res-
eignement militaire (DRM) er
mun vera á vegum hersins. Sam-
kvæmt bókinni hafði hershöfð-
ingi þessi fylgst með Piat um
skeið áður en hún var myrt og
var í bíl um 100 metrum á eftir
henni er það gerðist. Hann á að
hafa séð að morðingjarnir voru
erindrekar annarrar franskrar
leyniþjónustustofnunar og meira
að segja tekið myndir af þeim við
morðið.
Lionel Jospin, sósíalisti og nú-
verandi forsætisráðherra, sem
hefur á sér heiðarleikaorð og hef-
ur mjög látið í veðri vaka að
stjórn hans hyggist siðbæta
Frakkland, hefur heitið því að
„hið alvarlega” Piat-mál skuli
upplýst, jafnvel þótt til þess þurfi
að „opinbera leyndarmál viðvíkj-
andi vörnum ríkisins." Þetta
vakti almenna undrun; að mál
þetta snerti eitthvað öryggismál
Frakklands hafði enginn fram að
þessu heyrt minnst á.
Kohl er hvergi á fönun
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að
hann ætlaði að sitja allt næsta kjörtímabil í embætti kanslara, eða til
ársins 2002, hljóti hann til þess kjörfylgi. Kohl hafði nýverið lýst því
yfir að Wolfgang Scháuble, ráðherra í ríkisstjórn Kohls, yrði eftir-
maður sinn. Ummæli hans í gær tóku hins vegar af öll tvímælí um að
það þýddi að hann myndi víkja fyrir Schauble á kjörtímabilinu.
Prodi vinnur
traust þmgsius
Romano Prodi, forsætisráðherra
Italíu, bar í gær sigur úr býtum
þegar greidd voru atkvæði á þing-
inu um traustsyfirlýsingu á hendur
honum. Traustsyfirlýsingin var
samþykkt með 319 atkvæðum
gegn 285, og hefur Prodi því tryggt
sér stuðning kommúnista að nýju.
Hvatti Prodi þingheim til að sam-
þykkja fjárlögin fyrir 1998 hið fyrs-
ta, en Prodi sagði af sér embætti í
síðustu viku eftir að þingmenn
Endurreisnarflokks kommúnista
neituðu að greiða fjárlagafrumvarp-
inu atkvæði sitt.
Romano Prodi.
Danir húa vel að öldruðum
Hvergi á Norðurlöndum lætur ríkið jafnmikið af hendi rakna til aldr-
aðra eins og í Danmörku, að því er fram kemur í nýbirtri rannsókn
sem fimm norrænir vísindamenn hafa gert. Til að mynda fær einn af
hverjum fjórum Dönum eldri en 65 ára aðstoð heim til sín, en aðeins
einn af hverjum 6 eldri borgurum í Noregi og Svíþjóð. I skýrslunni
kemur fram að Noregur hefur um langa hríð greitt minna til aldraðra
en bæði Svíþjóð og Danmörk, en á síðustu árum hefur Svíþjóð skor-
ið verulega niður þjónustu við eldri borgara.
Göran Persson viH umræðu um lýð-
ræðið
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur sent bréf til rúm-
lega 60 háskólamanna, fréttamanna og stjórnmálamanna þar sem
hann hvetur þá til að taka virkan þátt í umræðu um þróun lýðræðis-
ins. Ríkisstjórnin fól einnig nýlega hópi þingmanna að fara ofan í
saumana á Iýðræðisþróuninni, með hliðsjón m.a. af alþjóðavæðingu
efnahagslífsins, niðurskurði í ríkisljármálum, aðildinni að ESB og
þróun fjölmiðla, og á hópurinn að skila tillögum um það hvernig
unnt sé að styrkja stoðir lýðræðisins.