Dagur - 17.10.1997, Page 16
VEÐIJR
HORFIJR
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan
sýnir hitastig, súluritið
12 tima úrkomu en vin-
dáttir og vindstig eru
tilgreind fyrir neðan.
Reykjavík
NNA3 VSV1 SV3 N2 SSA3
NNA3 S3 NV4 SA3
Stykkishólmur
NNA5 SSV3 SV4 N3 S4
NNA4 S4 NNV4 SSA4
Bolungarvík
Sun Mán
N2 SSV3 N4 SSV4
Blönduós
-5
-10
Fös Lau Sun Mán
‘ ’n
Mm ■
-10
- 5
0
NNA3 SSV2 S4 NV2 SSV3
NA2 S2 NNV2 SSV2
Akureyri
-10 J
NNA3 SSV2 SSA3 NV3 S3
NA3 SSV3 VNV3 SSV3
Egilsstaðir
N4 N3 CCV3 NNV4 S4
N4 SSV3 V3 S3
Kirkjubæjarklaustur
°c Fös Lau Sun Mán mm
NA4 NA1 SSV4 NNV2 SSA3
NA2 SV2 V2 SA2
Stórhöfði
!9 FÖS Lau Sun Mán mm
------------------------------. 30
•20
0
- _________________________________0
NA5 NNV2 SV5 N4 SSA4
NNA4 SSV5 VNV6 SA5
Veðrið í dag...
Breytileg átt, gola, en sums staðar kaldi. Smáskúrir eða
slydduél suðvestan- og vestanlands, en hjartviðri á austan-
verðu landinu.
Hiti 1 til 8 stig.
ÍÞRÓTTIR
i. .....
PáUþjálfar
Leiftursmeim
Páll Guðlaugsson
verður næsti þjálfari
Leiftursmanna. Geng-
ið verður frá samu-
ingi hans við Leiftur í
Ólafsfirði á morguu.
PáU miin þá væntan-
lega skrifa tnidir
tveggja ára samning
og táka til starfa hjá
Leiftri þaim 1. ndv-
emher næstkomandi.
Páll hefur átt í viðræðum við
þrjú Iið á undanförnum dögum,
Leiftur, Stjörnuna og Selfoss, en
var í gærdag ekki tilbúinn að
staðfesta að hann mundi skrifa
undir samning við Leiftur á
morgun, þegar blaðamaður Dags
hitti hann að máli á hóteli í
Reykjavík.
„Líklega verður gengið frá
málum á laugardaginn. „Eg er
búinn að ákveða hvert ég fer.
Þetta hefur átt sér langan að-
draganda og ég verð feginn þeg-
ar málin verða endanlega frá-
gengin,“ sagði Páll. Hann sagðist
þó ekki hafa viljað ganga lrá
neinu í dag. „Eg vil ekki klára
nein mál á föstudögum, ég er
með sérstaka hjátrú hvað það
varðar.“
Samkvæmt heimildum Dags
mun það vera tilboð Leifturs
sem Páll gengur að á morgun og
Páll er þegar farinn að vinna í
leikmannamálum. Flest bendir
til þess að Leiftursmenn haldi
flestum sínum mönnum. Ovíst
er með Þorvald Makan, aðal-
markaskorara liðsins í sumar, en
Eyjamenn hafa gefið honum
hýrt auga. Þá er ekki fullljóst
hvað verður með Rastislav
Lazorik, en samningur hans hef-
ur kostað Leiftursliðið drjúgan
skilding á undanförnum tveimur
árum. Ahugi er fyrir því að halda
Gunnari Má Mássyni áfram hjá
liðinu, en það er engin vissa fyr-
ir því að svo verði, enn sem kom-
ið er.
Næsta stig á ferliniun
- En hvað varð þess valdandi að
Páll sýndi því áhuga að taka að
sér þjálfun hér á landi, eftir
nítján ára dvöl í Færeyjum? „Ég
hef viðað að mér þekkingu í
þjállun á mörgum undanförnum
árum og mér fannst sem þetta
væri næsta stig á ferlinum; að
þjálfa íslenskt lið. Ég veit að mín
bíður erfitt verkefni, en mér
finnst það mjög kitlandi að koma
hingað og þjálfa," segir Páll.
Aðspurður um það hvort hann
líti á sig sem Færeying eftir öll
árin ytra, sagði hann svo ekki
vera.
„Ég lít alltaf á mig sem Islend-
ing, þó að árin hafi verið mörg
úti, ég er hins vegar ekld alkom-
inn heim. Ég reikna með því að
koma hingað og þjálfa í nokkur
ár.“
Gífurlegur áhugi
Ekki eru svo ýkja mörg ár síðan
Færeyingar voru aðhlátursefni
Islendinga þegar kom að knatt-
spyrnu og ekki var óalgengt að
íslenska liðið næði að fylla einn
tug af mörkum í innbyrðis viður-
eignunum við frændþjóðina. Það
breyttist í tíð Páls sem landsliðs-
þjálfara ogjafnteflið sem Færey-
ingar gerðu við Austurríkismenn
þaggaði niður í mörgun. Árang-
urinn upp á síðkastið lofar góðu
og munurinn á frændþjóðunum
er ekki lengur mikill. Skemmst
er að minnast naums sigurs ís-
lands gegn Færeyjum á Horna-
firði í sumar, 1:0, þar sem Fær-
eyingar stilltu ekki upp sínu
sterkasta Iiði.
„Unnið hefur verið mjög
skipulega að því að mennta þjálf-
ara, alveg frá 1984 og það hefur
skilað sér. Margir tæknilega góð-
ir spilarar hafa komið upp á síð-
ustu árum. Áhuginn er líka alveg
ótrúlegur, sem sést best á því að
af 44 þúsund íbúum stunda sjö
þúsund þeirra knattspyrnu.
- En mun Páll fara að flytja
færeyska knattspyrnumenn með
sér í íslensku úrvalsdeildina?
„Það á eftir að koma í Ijós.
Færeyskir spilarar hafa verið
heimakærir og þeir sem farið
hafa til danskra liða, hafa oft
snúið til baka. Ég held hins veg-
ar að það væri mjög þroskandi
fyrir þá að koma hingað og það
er vissulega möguleiki."
Ferill Páls
Páll Guðlaugsson er Vest-
mannaeyingur að upplagi og hóf
þjálfaraferil sinn í Vestmanna-
eyjum árið 1976, þegar hann
tók við 4. flokki Týs og þar var
Hlynur Stefánsson (núverandi
fyrirliði ÍRV) á meðal lærisveina
Páls. Stuttu síðar lá leiðin til
Þórshafnar í Færeyjum. Hann
var aðstoðarmaður Björns Arna-
sonar með 1. deildarlið Götu á
árunum 1981-82. Hann þjálfaði
síðan 2. og 3. deildarlið í Fær-
eyjum á næstu árum. Þekktastur
er hann fyrir að hafa stjórnað
færeyska karlalandsliðinu um
fimm ára skeið, 1984-89, en
hann hefur einnig stjórnað
drengja-, unglinga- og kvenna-
landsliðum Færeyja. Undanfar-
in tvö ár hefur hann stýrt liði
Götu sem varð tvöfaldur meist-
ari í fyrra, bæði í deild og bikar.
Uppskera liðsins í ár var sigur í
bikarkeppninni og 3. sætið í
deildinni.