Dagur - 18.10.1997, Page 18

Dagur - 18.10.1997, Page 18
34 - LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 rDwyur LIFIÐ I LANDINU Þeir eru áreiðanlega margir tónlistaraðdáendurnir sem syrgja sviplegt fráfall tónlistarmannsins fræga, John Denver, sem eins og kunnugt er fórst í flugslysi sl. sunnudag. Var söngvarinn og Iagasmiðurinn ástsæli að heíja sig til flugs á lítillieinkavél sinni af flugvellinum við Monterey er eitthvað fór úrskeiðis og vélin brotlenti með þéssum hörmulegu afleiðingum. Ferill Denvers var í meira lagi fjölskrúðugur og alls ekki einskorðaður við tónlistina. Hafa afrek hans nokkuð verið tíunduð í fréttum að undanförnu, en þar má fleiru bæta við auk annarra staðreynda um hann. Denver hét fullu nafni John Henry Dentschendorf, var af þýsku bergi brotinn og fæddist á gamlársdegi 1943. Dauðaorsök Denvers verður að teljast nokkuð kald- hæðnisleg í ljósi uppruna hans. Faðir hans var nefnilega þrautreyndur og heiðraður orustuflugmaður, sem hafði það í för með sér að mikið rót var á æsku Denvers, tíðir flutningar á fjölskyldunni milli herstöðva. Fæðingarstað- ur drengsins var í New Mexico, þar sem hann stundaði nám í byrjun. Skólagangan náði allt upp á háskólastig, eða til arkitektúrnáms í Texas. A námsárunum í Texas fór tónlistin, sem reyndar hafði lengi verið áhugamál hjá nemanum, að taka æ meiri tíma og var það einmitt í skólanum sem pilturinn kom fyrst fram. Nafni sínu hafði hann þá breytt úr Dentschendorf í Denver og í kjölfarið tók hann þá ákvörðun að freista gæfunnar sem tónlistarmaður og flytja til Los Angeles. Fljótlega eftir að hann kom til LA gekk hann til liðs við þjóðlagatríóið Mitchell Trio. Það kaldranalega við það var hins vegar að Denver leysti þar af hólmi stofnandann sjálfan, Chad Mitchell. Með Mitchell tríóinu var Denver í fjögur til fimm ár með þokkalegum árangri, en ákvað árið 1969 að fara eigin leiðir. Fyrsta lagið eftir Denver sem vinsældum náði var Lea- ving on a jet plain árið 1969. Það var hins vegar ekki í hans eigin flutningi heldur Peter, Paul and Mary, þjóð- lagasöngflokksins vinsæla. „Take me home, country roads,“ „Rocky Mountain high“, „Sunshine on my shoulder," „Annie’s song“ og „I’m sorry," eru hins vegar nokkur dæmi um lög sem hann söng sjálfur og urðu mjög vinsæl. Hér á íslandi er Denver hins vegar nær örugglega mest þekktur fyrir Iagið „Perhaps Iove,“ sem hann söng í félagi við stórtenórinn spænska Placido Domingo og kom fyrst út á plötu um 1980. Margar plötur Denvers hafa svo selst í milljónum eintaka, þar af hafa átta náð gullplötusölu og sex platínusölu í Bandaríkjunum. Fyrsta „Greatest hits“ plata hans (þær eru alls þijár og eru þeir tónlistarmenn fáir, ef nokkrir, sem náð hafa að eiga eins mörg góð Iög fyrir svo margar slíkar plötur) er t.d. ein sú mest selda af því tagi sem sögur fara af og var samfleytt í tvö ár inn á Billboardlistanum frá útgáfudegi 1973. Auk þess að vera söngvari, gítarleikari, Iagasmiður, flugmaður og arkitektúrlærður, var John Denver einnig ýmislegt annað til lista lagt. M.a. söng hann og lék í kab- arett með ekki minni hetju en Frank Sinatra. Lék bæði í sjónvarps- og bíómyndum og var virkur á ýmsum félags- sviðum, t.d. í mannúðar- og umhverfismálum. Síðast en ekki síst má svo nefna að Denver var á tímabili gríðar- lega vinsæll sjónvarpsmaður. Gerði hann þætti sem voru blanda af tónlist og spjalli sem milljónir Bandaríkja- manna horfðu á. Fékk hann meira að segja Emmyverð- laun fyrir einn þáttanna. Má sjá á þessari Iitlu samantekt um Denver, að mikill og Ijölhæfur listamaður er fallinn frá og því ekki að ósekju að hans sé minnst með trega og söknuði. Góður og fjölhæfur listamaður er rétt lýsing á John Denver gengnum. Björká Bylgjuiun Lndanfarna Ijóra sunnudaga hafa á dagskrá Bylgjunnar verið athygliverðir þættir um hana „Björk okkar" í um- sjón þess góðkunna og reynda útvarpsmanns, Skúla Helgasonar. Hefur Skúli leitað fanga vfða við gerð þátt- anna og grafið upp margt mjög athyglisvert frá ferli söng- konunnar sem ekki hefur heyrst áður. Enn eru tveir þættir eftir fyrir þá sem ekki hafa haft rænu á að hlusta hingað til og verður í þeim m.a. fjallað ítarlega um einherjaferil Bjarkar og ýmsa atburði, góða og slæma sem orðið hafa á þeim um fjórum árum frá því hann hófst. Fer Skúli t.d. ofan í saumana á öllu írafárinu sem varð í kringum „árás“ Bjarkar á blaðakonu eina í Austurvegi og bréfsprengjusendingunni sem Björk fékk frá biluðum aðdáanda fyrir eigi svo margt löngu. Buddy Guy o.fl. hefurnáð að halda velli á löngum tíma, allt ffá sjötta áratugnum fram til þessa og ekki hvað síst gengið vel í seinni tíð, hlaut m.a. tvenn verðlaun, sem besti sviðsmaður ársins og ásamt meðreiðarsveinum, „Besta hljómsveit ársins“. Plötur af þrenns konar tagi voru heiðraðar. „Besta kassagítar/munnhörpuplatan" var valin, Deep in the blues með munnhörpuleikaranum aldna James Cotton, „Besta nútíma blúsplatarí' var með öðrum munnhöruleikara með meiru, William Clarke, The hard way (Clarke var líka kosinn munnhörpuleikarí ársins) „Besta sálar/blúsplatarí' var svo valin Texas soul með W.C. Clark (blakkur kappi sem Stevie heitinn Ray Vaughan er sagður hafa dregið dám af hvað söng varðar, sem nú mun reyndar líka vera nýlátinn) og „Blúsplata ársins af hefðbundinni gerð“ þótti vera Come on in this house, með einum munnhörpuleikaranum til og líklega þeim frægasta, Juniour Wells (Islandsvini, er komhingað um 1985 með Buddy Guy og hélt fína tónleika. Eftir fregnum að dæma mun hann þó vera þungt haldinn þessa dagana af veikindum). Hvað svo konum viðkemur má svo að Iokum geta, að hin hvíta en jafnframt frábæra Debbie Davies var kjörin „Nútíma kvenblúsari ársins“ og Irma Thomas, sú frá- bæra söngkona sem söng upphaflega hið fræga Time is on my side er Rolling Stones gerðu svo síðarheimsfrægt, „Sálarblúslistakona ársins". Bjarkarferill tekinn fyrir i góðum þáttum á Bylgjunni. „Trega- vero- laun“ „Drottningin ÍNew Orleans". Irma Thomas verðlaunuð sem sálarblússöngkona ársins. Verðlaunaafhendingar af ýmsu tagi eru stór hluti af hin- um umfangsmikla tónlistariðnaði. Eru þar til dæmis mjög áberandi og áhrifamikil, MTV,- Grammy,- Brittish Music Awards verðlaunin og fleiri og ávallt mikið um- leikis þegar þau eru á döfinni. Önnur og sérhæfðari verðlaun eru svo líka til í hinum ýmsu geirum og ekki eins áberandi, en eru samt litlu síður merkileg til frá- sagnar. Þar eru m.a. rokkverðlaun sem tímaritið Kerrang stendur fyrir og sífellt verða meir áberandi og í heimi blús/sálartónlistar o.s.frv. eru hin þekktu W.C. Handy verðlaun mikill viðburður. W.C. verðlaunaafhendingin í ár er einmitt nýyfirstaðin og var þetta í 18 skiptið sem þau voru afhent. AIls var um 23 verðlaunaflokka að ræða, sem allt of langt mál væri að telja upp í heild, en ekki úr vegi að nefna nokkra af þeim sem heiðraðir voru. Chicagoblúsarinn Luther AHison, sem ásamt köppum á borð við Lonnie Brooks,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.