Dagur - 22.11.1997, Page 9
LAVGARDAGVR 22.NÓVEMBER 1997 - 25
LÍFIÐ í LANDINU
Hvenær ætlar þú að ganga í Alþýðu-
flokkinn aftur?
„Þótt hugmyndafræði mín hafí verið
róttæk og ég hafí stundum Iátið sverfa til
stáls gagnvart flokksböndum þá er Al-
þýðuflokkurinn minn gamli flokkur og ég
hef aldrei farið alveg frá honum og hann
ekki frá mér. Eg á mér þann draum í
pólitíkinni að hér verði til stór jafnaðar-
mannaflokkur. Ég vinn með þeim sem
vilja vinna að því markmiði. Ef ég kemst
að þeirri niðurstöðu að ég geri það best
með því að ganga í Alþýðuflokkinn þá
mun ég gera það.“
Sérðu fram á sameiginlegt framboð A-
flokkanna í næstu þingkosningum?
„Hlutverk jafnaðarmanna er að berjast
við afdalamennsku og sérhagsmuni í ís-
lenskri pólitík. Jafnaðarmenn munu hins
vegar ekki ná árangri nema A-flokkarnir,
ásamt Kvennalistanum og öðrum, bjóði
fram saman. Samstarfs- eða kosningayfír-
lýsingar þessara flokka nægja ekki. Ef
ekki verður af sameiginlegu framboði
hefur uppstokkunin á flokkakerfínu mis-
tekist. Það væri hörmulegt því jafnaðar-
menn hafa aldrei verið eins nálægt því og
nú að brjóta á bak aftur áratugaveldi
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.“
Eg hitti ágætan krata um daginn sem
sagði Hjörleif Guttormsson, Svavar Gests-
son og Steingrím f. Sigfússon ekki vera
jafnaðarmenn. Eru þeir jafnaðarmenn að
þinu mati?
„Það er þeirra að skilgreina sig. Ég
treysti mér vel til að eiga samstarf við þá í
stórum jafnaðarmannaflokki, einfaldlega
vegna þess að í stórum flokki er Ijóst að
skiptar skoðanir verða um einstök mál-
efni.
Ég mæti engum manni með fyrirfram-
gefnum fordómum. Mér Iíkar yfirleitt vel
við fólk. Það þýðir heldur ekkert að vera í
pólitík ef menn geta ekki látið sér semja
við fólk. Lykilatriðið er að bera virðingu
íyrir skoðunum annarra."
Sumir segja að Framsóknarflokkurinn
muni styrkja stöðu sína verði af sameigin-
legu framboði A-flokkanna.
„Það væri Framsóknarflokknum líklega
ekkert á móti skapi að sameiginlegt fram-
boð félagshyggjuafla yrði að raunveru-
Ieika. Þá gæti flokkurinn valið á milli
þess með hvorri blokkinni hann starfaði í
ríkisstjórn. Markmið þessa nýja afls er
hins vegar ekki að leiða Framsóknarflokk-
inn til valda, og alls ekki höfuðandstæð-
inginn, Sjálfstæðisflokkinn."
Þú segir Sjálfstæðisflokkinn vera höfuð-
andstæðinginn, af hverju er hann það?
„Sjálfstæðisflokkurinn, þetta laus-
tengda hagsmunabandalag, er í reynd
einungis að gæta hagsmuna hinna fáu.
Það eru forstjórar stórfyrirtækjanna og
hagsmunasamtaka sem ráða nú orðið öllu
í Sjálfstæðisflokknum. Þangað sækir Dav-
íð Oddsson vald sitt.
Stefna Sjálfstæðisflokksins felst í fram-
sóknarhyggju, afturhaldssemi og hug-
sjónalausri valdagæslu sérhagsmuna. Það
er nokkuð langt síðan Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur gætt hagsmuna launafólks og
smærri atvinnurekenda. Þetta mun smátt
og smátt renna upp fyrir fólki á næstu
árum.“
ViJI ekki Halldór sem forsætisráð-
herra
Finnst þér þá líklegra að jafnaðarmenn
fari með Framsóknarflokki fremur en
Sjálfstæðisflokki í ríkisstjóm?
„Ef sameiginlegt framboð nær góðum
árangri í næstu þingkosningum er lykilat-
riði að jafnaðarmenn leiði ríkisstjórnina
og fái forsætisráðherrann. Ég hef frekar
trú á því að samstarf muni takast með
Framsóknarflokki fremur en Sjálfstæðis-
flokki, en það myndi að sjálfsögðu ráðast
af úrslitum kosninganna.“
En það kemur ekki til greina að Halldór
Asgrímsson verði forsætisráðherra?
„Ekki í mínum huga.“
En hver verður leiðtogi jafnaðarmanna
og forsætisráðherraefni?
„Það veit enginn."
Er það Ingibjörg Sólrún?
„Við verðum að fara yfir brýrnar í réttri
röð. Það er ekki tímabært að ákveða hver
á að leiða hópinn."
Nií er einn aðalhugmyndafræðingur
jafnaðarmanna að hverfa af landi brott til
annarra starfa. Eg á að sjálfsögðu við Jón
Baldvin, er ekki vont að missa hann á
þessum tíma?
„Ég er ekki sáttur við að hann fari
núna. Ég hefði kosið að hafa hann lengur
með okkur í því mikilvæga ferli sem nú
er.“
Hvað með Jóhönnu Sigurðardóttur,
framtíð hennar virðist ekki sérlega glæsi-
leg?
„Það á ekki að vanmeta Jóhönnu. Hún
hefur sannað pólitíska hæfileika sína og
mun áfram njóta stuðnings."
Langar þig til að verða ráðherra?
„Það væri Iélegur stjórnmálamaður sem
„Það væri lélegur stjórnmálamaður sem vildi ekki verða ráðherra. Ég geri ekkert sérstaklega ráð fyrir að ná því
marki, en ég er sannfærður um að ég yrði ágætur ráðherra."
vildi ekki verða ráðherra. Ég geri ekkert
sérstaklega ráð fyrir að ná því marki, en
ég er sannfærður um að ég yrði ágætur
ráðherra."
Hyert yrði þittfyrsta verk sem ráðherra?
„Ég myndi gera hundrað daga áætlun
um það sem ég ætlaði að framkvæma og
leitast við að koma þorra þeirra verka í
framkvæmd á þeim tírna."
Vemd æðri forsjónar
Þti hefur gert ýmislegt annað en að vera
í pólitík.
„Já, ég starfaði í tæp fimmtán ár við út-
gerð og fiskvinnslu og tók mikinn þátt í
starfi atvinnulífsins. Eg fór svo í Háskól-
ann sem prófessor í rekstrarhagfræði og
hef skrifað nokkrar kennslubækur. Ég hef
mjög gaman af að kenna. Það er mesta
viðurkenning sem ég fæ ef nemendur
mínir eru ánægðir."
Vikjum aðeins að einkalífinu. Starfi
stjómmálamanns fylgir álag og mikil fjar-
vera. Reynir ekki mikið á fjölskylduna?
„Ég hef ekki hitt neinn sem kemst
þokkalega áleiðis og er raunverulega
hamingjusamur nema eiga góðan lífs-
förunaut. Maður verður að eiga einhvern
að, eiga einhvern sem maður getur rætt
við og átt skjól hjá. Konan mín er besti
félagi minn og vinur."
Ertu vinamargur maður?
„Ég á ekki og ætla mér ekki að eignast
marga vini en ég á marga kunningja. Ég
held ég geti þó hrósað mér af því að
standa með því fólki sem mér þykir vænt.
um.“
Ertu einrænn að eðlisfari?
„Ég er ekki frá því. Ég hef ekki sérlega
mikla þörf fyrir samskipti þótt ég hafí
gaman af að tala við fólk.“
Elsti sonur þinn, Einar, lenti í hremm-
ingum t frumskógum Suður-Ameríku og
það var mesta mildi að hann komst lífs af.
Hvemig tilfinning er eiga jafnvel von á því
að fá tilkynningu um að bamið manns sé
dáið?
„Það er ólýsanleg tilfinning. Þetta er
tími sem ég vildi aldrei nokkurn tímann
þurfa að lifa aftur. Ég held að það geti
jafnvel verið betra að fá slæmar fréttir
snögglega heldur en að þurfa að bíða
milli vonar og ótta.“
Trúirðu þvt að æðri forsjón hafi vakað
yfir syni þtnum?
„Já ég er viss um það. Sjálfur sæki ég
styrk annað en í næsta umhverfi. Ég held
að okkur sé gott að horfast í augu við að
það er meira í kringum okkur en einungis
hin efnislega veröld. Mér finnst ósköp
notalegt að hugsa til þess að fylgst sé
með manni og maður njóti verndar æðri
forsjónar."
Mig langar til að vita hvað þú gerir t
frístundum.
„Ég hef gaman af að ferðast. Svo hef ég
áhuga á sögu og heimsæki oftast forn-
minjasöfn í ferðum mínum erlendis. Svo
les ég nokkuð mikið, meðal annars ljóð
og á mínar uppáhaldspersónur.“
Eins og?
„Uppáhaldspersónan mín í Islendinga-
sögunum er Hallgerður Höskuldsdóttir.
Hún var mikil kona og sterkur persónu-
leiki.“
En hún varflagð, hún drap Gunnar.
„Nei, nei, hans tími var liðinn. Hall-
gerður er miklu skemmtilegri og magn-
aðri persóna en Gunnar. Taktu svo Guð-
rúnu Ósvífursdóttur, það er heldur betur
alvörukona. Þetta eru konur sem setja
svip á umhverfi sitt og láta til sín taka.“
En þær hefðu aldrei rekist t stjómmála-
flokki.
„Þær hefðu verið eins og ég, gengið í og
úr flokknum."
Sérðu eftir að hafa gengið úr Alþýðu-
flokknum?
„Nei, ég fylgdi ætíð sannfæringu minni.
Mér fannst ég alltaf vera að gera rétt. Ég
hef aldrei verið annað en jafnaðarmaður
og verð aldrei annað. Ég hef í rauninni
aldrei slitið persónuleg tengsl við gamla
flokkinn minn eða fólkið sem þar er. Ég
bíð eftir því að sjá gamla drauminn minn
um stóra jafnaðarmannaflokkinn rætast.
Þá get ég rólegur hætt afskiptum af póli-
tíkinni, því þá er tilganginum náð.“
„/málflutningi geng ég stundum harkalega gegn eigin persónulegu hagsmunum, og það er llklega mest áber-
andi þegar ég tala fyrir veiðileyfagjaldi."