Dagur - 22.11.1997, Page 11
T
Moðstelktlambalærimeð soðsósu, ofnsteiktu
grænmeti og gratin kartöflum
Moðsteikt
lambalæri
með soð-
sósu, ofn-
steiktugrænmeti og
gratin kartöflum er
mjög góð hugmynd að
laugardagsmat og til-
valiðfyrir heimilisfeð-
uma að láta til sín
taka í eldhúsinu.
Slík dýrindis lambasteik er til-
valin á laugardegi og ekki er
hætta á að missa af íþróttunum
í sjónvarpinu. Rétturinn er
nefnilega nokkuð einfaldur en
tekur þó langan tíma í eldun, og
ekki er mikið uppvask á meðan á
undirbúningi stendur en því
meira þegar búið er að borða.
Ekki er ráðlegt að elda þennan
rétt með tóman maga, vegna
þess að ilminn mun leggja um
allt hús strax um kaffileytið og
hrella þá sem svangir eru. Jafn-
vel rjúfa einbeitinguna og
skemma stemmninguna fyrir
framan sjónvarpið. Þar af leið-
andi mæli ég með þægilegum
skammti af mjólkurgraut í há-
deginu.
Moðsteikt
lambalæri
(Það tekur u.þ.b. 5 klukku-
stundir að elda þennan rétt,
uppskriftin er fyrir fimm)
1 lambalæri, 2-2,5 kg
'A dl olífuolía
3-4 hvítlauksrif
2 gulrætur
2 stórir tómatar
1 lárviðarlauf
2 timjankvistir
1 laukur
salt og pipar
10 nálar rósmarin
2 kvistir estragon
1,5 I kalt vatn
100 g lint smjör
2 msk. sítrónusafi
'á tsk. hunang
Hreinsið nárafituna af Iamba-
lærinu, skerið Iykilbeinið úr og
hækilinn af. Komið lærinu fyrir
á grind með ofnskúffu fyrir neð-
an og setjið neðarlega í 80°C
heitan ofninn, bakið í eina og
hálfa ldukkustund. Skerið lauk,
gulrætur og hvítlauk gróft niður
og brúnið létt í olíunni um leið
og hækilinn og lykilbeinið, færið
yfir í eldfast mót ásamt tómöt-
unum, Iárviðarlaufi og timjan.
Setjið í ofninn með lærinu í 30
mínútur takið þá út og setjið í
pott, hellið vatninu yfir og látið
suðuna koma hægt upp. Þegar
soðið fer að sjóða er gott að
fleyta af alla fitu og sora sem
flýtur upp á yfirborðið, lækkið
hitann undir soðinu og látið
sjóða í klukkustund við vægan
hita. Sigtið soðið í gegnum fínt
sigti, þvoið pottinn, setjið soðið
aftur í hann og sjóðið við vægan
hita í 30 mínútur. Blandið helm-
ingi af smátt söxuðu rósmarin,
timjan og estragoni út í og látið
standa í smá stund. Þegar lær-
ið hefur verið í ofninum í eina
og hálfa ldukkustund er það tek-
ið út og látið standa í ca. 5 mín-
útur áður en það er kryddað
með salti og pipar. Gott er að
nudda kryddinu vel inn í vöðv-
ann. Setjið lærið aftur í ofnin í
45 mínútur, eftir þetta skal hella
soðinu yfir kjötið á 10 mínútna
millibili í 50 mín, þá ætti allt
soðið að vera komið í ofnskúff-
una. Hækkið hitann á ofninum í
175°C og bakið lærið í 15 mín-
útur áður en það er tekið út,
sett í eldfastmót með loki eða
álfilma breidd ofaná, látið lærið
standa í 20 mín áður en það er
borið fram. Ath. að þessir tímar
og hitastig miðast við að lærið
hafi verið þýtt í kæliskáp í fimm
sólahringa, eftir úrbeiningu og
þegar lærið fór fyrst í ofninn var
hitinn inn við bein u.þ.b 8°C).
Takið ofnskúffuna með soðinu
úr ofninum, skafið vel með
skeið allar skófir úr botni skúff-
unnar. Sigtið soðið í gegnum
dúk og fleytið fitu ofan af áður
en það er hitað upp að suðu.
Þeytið smjörið, sítrónusafann,
hunangið og afganginn af krydd-
jurtunum saman í hrærivél eða
matvinnsluvél. Smjörblöndunni
er síðan hrært út í soðið við
væga suðu og smakkað til með
salti og pipar áður en rétturinn
er borin fram.
Gratin kartöflur
500 g afhýddar kartöflur
100 g bráðið smjör
1 stór, smátt saxaður laukur
salt og pipar
50-60 g rifinn parmesanostur
Kartöflurnar eru skornar í
þunnar skífur og raðað í eldfast
mót, hvert lag af kartöflum er
penslað með smjöri, kryddað
með salti og pipar og lauk stráð
yfir, þetta er gert koll af kolli þar
til að formið er fullt þá er form-
ið sett í ofninn með kjötinu
(80°C) í eina klukkustund. Strá-
ið ostinum yfir og setjið aftur í
ofnin í 15 mín. við 175°C. Þeg-
ar kjötið er tekið úr ofninum er
gott að stinga í kartöflurnar og
ef þær eru ekki meyrar skal hafa
þær áfram í ofninum á meðan
íambalærið stendur. Kartöflu-
rétturinn á að vera fallega brún-
aður að ofan.
Ofnbakaö
grænmeti
1 kúrbítur
1 eggaldin
1 rauð paprika
1 gul paprika
10-15 ferskir perlulaukar
5-10 stk. smámais
3 msk. smjör
svartur pipar
5 msk. sætt hvítvín (má sleppa)
salt
Kúrbítur, eggaldin, paprika og
smámais er skolað og skorið í
grófa teninga, perlulaukurinn er
flysjaður og blandað vel saman
við hitt grænmetið sem síðan er
sett í eldfast mót með loki sem
passar vel. Hellið hvítvíninu yfir
ásamt smjörinu og kryddið með
nýmuldum svörtum pipar áður
en forminu er lokað vel og sett í
ofninn ásamt kjötinu og kartöfl-
unum (80°C) í 30 mínútur, gott
er að hræra reglulega í græn-
metinu. Hafíð grænmetið í ofn-
inum síðustu fimmtán mínút-
urnar á 175°C, en það er tekið
út um leið og kjötið, saltið vel
yfír, hrærið í og látið standa þar
til maturinn er borinn fram.
It'1 • iii'.) i mj-!
r i:i > /
írtninnsmhr
iubii.1
-•*.* *•* 4 -4
H3ÍW1