Dagur - 22.11.1997, Page 17
-----------1
ii
LÍFIÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997- 33
Örlagavaldar síð-
ustu þúsund ára
í aukaútgáfu bandaríska tímaritsins Life er aðfinna lista yfir eitt hundr-
að merkustu einstaklinga síðustu þúsund ára; menn sem með verkum sín-
um breyttugangi sögunnar. Tímarítið birti listann í tvennu lagi. Annars
vegarlista með hundrað nöfnum,þar sem mönnum varraðað eftirmikil-
vægi, og hins vegarlista þarsem afreksmenn voru settiríflokka eftir
staifsstéttum. Dagurbirtirhérhluta afniðurstöðunum.
1. Thomas Edison, 2. Kristófer Kólumbus, 3. Marteinn Lúther, 4
Galileo Galilei, 5. Leonardo da Vinci, 6. Isaac Newton, 7.
Ferdinand Magellan, 8, Louis Pasteur, 9. Charles Darwin, 10.
Thomas Jefferson.
Vísmdamennimrr
Kömrnðimir
TTppfiniiiiigaineiiiiimir
Louis
Pasteur. Franskur efna- og ör-
verufræðingur. Einn þarfasti
vísindamaður allra tíma. LJpp-
götvaði fjölmarga sjúkdóms-
valdandi gerla og framleiddi
bóluefni, meðal annars gegn
hundaæði. Gerilsneyðing er ár-
angur af rannsóknum hans.
Galileo Galilei. ítalskur
eðlisfræðingur, stjörnufræð-
ingur og heimspekingur. Vé-
fengdi 1500 ára hugmyndir
manna um skipan alheims-
ins og sagði sólina vera mið-
depil alheimsins. Kannaði
fyrstur manna stjörnuhim-
ininn í sjónauka, uppgötv-
aði lögmál sem gilda um fall
hluta og var upphafsmaður
tilraunaeðlisfræði. Lenti í andstöðu við páfastól og
varð að afneita hugmyndum sínum árið 1633.
Isaac Newton. Hann setti
fram þrjú undirstöðulög-
mál aflfræðinnar, þar á
meðal þyngdarlögmálið.
Rannsakaði hreyfingu
reikistjarnanna og smíðaði
fyrsta spegilsjónaukann.
Kristófer Kólumbus. Hann fór
fjórar ferðir til Ameríku en lést
án þess að hafa gert sér grein
fyrir að hann hafði fundið nýja
heimsálfu.
Ferdinand Magellan. Portú-
galskur landkönnuður sem á
heiðurinn af því að hafa farið
í fyrstu siglingu umhverfis
jörðina og lauk þar með upp
heimsbyggðinni.
Zheng He. Kínverskur herfor-
ingi. I upphafi 15. aldar fór
hann hveija sjóferðina á fætur
annarri með tugi skipa og þús-
undum manna til Afríku og
Indlands í þeim tilgangi að
styrkja samskipti Kína við
Iöndin og auka áhrif þeirra þar.
Glæsilegri sjóferðir hafa aldrei
síðar verið farnar.
Thomas Edison. Á langri ævi
fékk hann einkaleyfi á um
1300 uppfinningum. Meðal
ótal uppfinninga hans eru
Ijósaperan, hljóðneminn og
hljóðritinn. Hann kom upp
fyrstu rafveitu í heimi, átti
mikinn þátt í þróun hreyfi-
mynda og bætti síma. Upp-
finningar hans lögðu grunninn að velferðarríki 20.
aldar. Life telur Edison þarfasta einstakling síðustu
þúsund ára.
Henry Ford. Hann stofnaði
fyrirtæki sitt árið 1903 og
sérhæfði sig í að framleiða
ódýra bíla. Fyrir hans til-
stuðlan urðu bílar almenn-
ingseign. Hann hækkaði laun
starfsmanna sinna og kom á
átta stunda vinnudegi.
Richard Arkwright. Höf-
undur nútíma verksmiðju-
framleiðslu. Árið 1769 fann
hann upp vatnsknúið spuna-
hjól. I framleiðsluferlinu kom
fjöldi manna við sögu sem all-
ir unnu í sömu byggingu. í
framl.aldinu risu verksmiðjur.
Leiðtogamir
Listameiuiimir
Napoleon Bonaparte. Einn
af snjöllustu herstjórnendum
sögunnar. Hann rændi völd-
um í Frakklandi 1799 og
krýndi sig keisara 1804.
Hann virtist vel á veg með að
leggja undir sig heiminn en
innrás hans í Rússland var
byijunin á falli hans.
Adolf Hitler. Hataðasd
maður mannkynssögunnar.
Þessi blóðþyrsti einræðis-
herra og hatursmaður gyð-
inga og kommúnista ætlaði
sér heimsyfirráð. Hann ber
ábyrgð í seinni heimsstyrj-
öldinni sem kostaði tug-
milljónir manna lífið.
Mahatma Gandhi. Leiðtogi
Indverja í sjálfstæðisbaráttu
þeirra. Barátta hans fólst í of-
beldislausum andófsaðgerðum
og sköpuðu honum virðingu
allra siðaðra manna. Mannrétt-
indasamtök víða um heim beita
nú sömu aðferðum.
Leonardo da Vinci. Fjöl-
hæfasti snillingur allra tíma.
Listmálari, myndhöggvari,
arkitekt, verkfræðingur, vís-
indamaður, tónlistarmaður
og fræðimaður. Höfundur
Síðustu kvöldmáltíðarinnar
og Monu Lisu.
Ludwig van Beethoven. Mesta
tónskáld allra tíma. Þunglyndur
og drykkfelldur snillingur sem
samdi mörg áhrifaríkustu tónverk
sem samin hafa verið. Bestu verk
sín samdi hann heyrnarlaus.
Hugmyndafrædingamir
Marteinn Lúther. Siðbót
hans gjörbreytti hugmynda-
fræði og trúarhugmyndum
hins vestræna heims.
Thomas Jefferson. Höfund-
ur Sjálfstæðisyfirlýsingar
Bandaríkjanna og þriðji for-
seti þeirra. Lýðræðissinni
sem markaði djúp spor í
samtíð sína.
Karl Marx. Upphafsmaöur
sögulegrar efnishyggju og
annar höfundur Kommún-
istaávarpsins. Kenningar hans
höfðu gífurleg áhrif og urðu
aflvaki byltinga sem færðu
mannkyninu ekki þá gæfu
’ sem þeim var ætlað.
-ð?*a ..mtui)it)wliih y.it -ogpd uruuigG .lortl gfnrtttí ttgÁ'1'' .JhtUfc'tHwiœibflíúlifoiaijÞti táiluiT Œuar jtðúr umr