Dagur - 22.11.1997, Side 19

Dagur - 22.11.1997, Side 19
LAUGARDAGUR 22. NÚVEMBER 1997 - 35 LÍFIÐ í LANDINU k. Sigurður Bogi Sævarsson skrifar Landogþjóð Hellukofínn. Hvar á landinu er þessi sérstaki hellukofi, sem stendur þar sem þjóöbraut lá fyrr- um þvert milli landshluta? Fjall jötunsins. Að því er segir I Áföngum eftir Jón Helgason stendur jötunninn jafnan í hendi við það hömrum girta fjall, sem sést hér á myndinni. Hverterþað? mynd: v.br. Við fjallavötnin fagurblá. Á þessari mynd sést til jökuls sem tilheyrir Borgarfjarðarsýslu. 77/ hans er víðsýnt - og i einu ijóða sinna segir Jónas Hall- grímsson að þessi ískaldi jökull viti allt sem taiað sé efst á Arnarvatnshæðum. Hver er jökultinn. Við skilvinduna. Hér sést Helga Árnadóttir hús- móðir í Flatatungu í Skagafirði skiija i sundur mjólk I skiivindu sinni, sem er með gamla laginu. En spurt er, hvaða tvær afurðir verða til úr mjólk- inni þegar hún hefur farið i gegnum skiivinduna. Höfuðstaður í fjórðungi. Hér sjáum við einn kaupstaða landsins í flugsýn, þ.e. hiuta hans. Þetta er höfuðstaður i fjórðungi og neðst á mynd- inni sjást fiskvinnsluhús sem hafa verið umdeild í bæjarmálapólítík staðarins að undanförnu. mynd: sbs. 1. /Þeir Lýður Friðjónsson, forstjóri Coka- Cola í Noregi, Svavar Gestsson, alþing- ismaður, Friðrik Sturluson, tónlistar- maður, og Þorgeir Astvaldsson, útvarps- maður, eiga allir ættir sínar að rekja í sömu sýsluna, sem er á vestanverðu landinu. Hver er hún? 2. Stefán Jónsson fréttamaður varð þekkt- ur fyrir eftirminnileg útvarpsviðtöl sem hann átti við bónda, sem var bróðir eins þekktasta ritöfundar þjóðarinnar. Viðtöl- in þóttu bera vott um einstaka frásagn- argáfu. Þau komu út í bókinni „Hana nú - bókin sem aldrei var skrifuð." Hver var maðurinn? 3. Hvað heitir Ijallið sem skilur að Norð- fjörð og Mjóafjörð? 4. í landi eyðibýlis, efst í Landsveit í Rangárþingi, er skógarsvæði í umsjá Skógræktar ríkisins. Svæðið var friðað 1941 og innan skógræktargirðingar eru um 1.100 ha. Hvað heitir þetta svæði? 5. Emil Thorarensen var framarlega í flokki þeirra Eskfirðinga sem börðust gegn sameiningu Reyðarfjarðar, Eski- fjarðar og Norðfjarðar um sl. helgi. Hver er móðir Emils. 6. Kaldbakskleif er hár og þverhníptur fjallsmúli á Ströndum. Undir henni er Kalbakskleif, sem löngum þótti illfær, allt þar til hún var vígð og blessuð af einum Skálholtsbiskupa. Hver var hann? . « 7. Hvað heitir skólinn sem stendur norðar- Iega í Aðaldal og þjónar sveitum þar í kring og hvað heitir félagsheimilið sem er þar skammt frá? 8. Hvaða sérstaka nafn ber hús í Varma- hlíð í Skagafirði, sem er í eigu Ragnars Arnalds alþingsimanns? 9. Heysnes, Kjaranstaðir, Miðhús, Rráð- ræði, Skálatangi, Gerði og Vellir. Hvar á Vesturlandi eru þessir bæir? 10. Ilvað heitir verkamennta- og fram- haldsskólinn, sem nýlega tók til starfa í Grafarvogshverfi í Reykjavík - meðal annars með tilstyrk frá samtökum iðnfé- laganna. Svör: •i[9^ss4[oijjBSiog ot •i[jEljGj>[y Jipun ueuuns ‘iddDjg -souBj5jy-uuui t njD Jiæq JissDíj Ji[[y ‘6 •BjncjBUBW -8 •JI[Bp^ JD gigUIIDq -sSbjdj 8o i[9>[sjBf>]æ[BJ[B[ j jd uui|9>[8 ■ / •1998 Jnpunuigng -9 !ejypis3 B IJBJUenOi} ‘UDSUDJBJOqj BUlSog •£ •SDUBJJBjq y •BdlUJBJJJBfflJJOfyJ '£ •s8jDqj9<j bjbjsidiu J[99Jq ‘j^DASjn^ng t B[Bjj e uosjegjqcj jqijupjg •£ ■B[sXsB[B(J['t •jngjofjBst jd njmpuÁui b jsds ujds uuunpejsdneg - •BUUDJUBpUn 80 [uipfj ubuio -qjn jngjDA jnpuns ujjpjs jd >j[9fui jb8d<j — •[[nqofsqjj -jg jd [uujpuXui b jp jsds iuds uu![n>jof — •jndnuSeui -9q jd juujpuXui b jsds joq uids jjb(j ijb<j - 'SpUBJ -UBUuns !9!Dqs![[Du 9 jd uugoqnjjDU — Fluguveiðai að vetri (45) KK, flugnagúrú, bjargaði Selártúrnum. Veiðitúrar hafa sérstaka, blæbrigðaríka helgi yfir sér: fyrir, þegar tilhlökkun nær að grafa um sig langan tíma í sálarlífinu; á meðan, þegar allt er á fullu og maður nýtur þess í botn að vera til; svo á eftir, þegar sögurnar fara af stað og breytast síðan í ævarandi minningar. Það er mikil blessun að vera veiði- maður. Maður skilur eiginlega ekki hvernig aðrir fara að. Eg var minntur á góðan veiðitúr í vikunni þar sem ég sat í heita pottinum og lét nudda á mér axl- imar, náunginn sem sat á móti mér var í Selárholli sem ég lenti í fyrir tveimur árum, og hann reyndist einn af þessum mönnum sem muna allt: „Þú fékkst þijá á einum seinni parti, var það ekki á Sundlauginni?" Mikið rétt. Þetta var í eina skiptið sem ég hef komist nálægt því að brillera í hópi frækinna veiðimanna. Þrír laxar á einum eftirmiðdegi er það mesta sem ég hafði fengið á einni vakt fyrr og síðar, þætti lítið í slagtogi stórher- toga, en það var satt að segja afskaplega lítið að gerast í ánni. Þess vegna var þetta svo minnisstætt. Ekki fyrir laxana þijá, endilega, heldur vegna þess hvernig ég náði í þá. Sú saga byijaði á bensínstöð í Borgarnesi, en teygir sig mun lengra aft- ur, allt til kynna af KK. Gjöfular stimdir KK er einn af þessum endemis frábæru veiðifélögum sem hinn mikli eilífi andi hefur sent á bakka ánna. Við höfum reyndar aldrei veitt saman á stöng. En verið saman að veiðum. Byrjum oft ver- tíðina við Laxá í Mývatnssveit, höfum lent saman hér og þar og jafnvel í sviða- messum að vetri og alltaf þetta þægilega Ijúfa viðmót og gjöfula á allt sem kallast veiði. Heilræði, frásagnir, flugur. KK rak Litlu fluguna Iengi vel og þótti þá magn- aðasta fluguhnýtingabúð um víða vegu. Frábært að setjast í kjallarakytrunni og spyrja og leita ráða. Maður fór aldrei minna en 3000 krónum fátækari af þeim fundum, en milljón heilræðum ríkari í andanum. Og aldrei kom maður að tóm- um kofanum. Nú er Árni Bald. búinn að kaupa þá Litlu en KK kominn í öldunga- ráð fluguveiðimanna og gúrúa. Selá veiddi ég fyrst í hópi með KK og naut hans frábæru viðveru. Nú var ég staddur á bensínstöð í Borgarnesi tveim- ur árum síðar, öðru sinni á leið í Selá. Klukkan var 23.30, ég rétt náði inn frá Akranesi til að Iáta fylla. Hópurinn hafði byrjað síðdegis sama dag, ég ætlaði að vera kominn við hlið veiðifélagans Arnars Svavarssonar kl. 7 austur i Vopnafirði næsta morgun. Þetta yrði langur næturakstur. Meðan bensínkallinn lét dæluna ganga skoðaði ég f flugnaboxin. Þau voru nýkomin úr veiðiferð konu minnar og systur í Stóru Laxá, og til að gera engan sáran ætla ég að láta nægja að segja að mér leist hvorki á Ijölda Frances flugna né ástand þeirra í boxinu eftir þá för. I Borgarnesi kl. 23.30 og rúmlega það. yitrast spjald Ég var nett óánægður með stöðu mála þar sem ég krotaði á kortanótuna og þakkaði viðskiptin, rétti hægt úr mér og horfði út í húmið, framundan eitthvað sem mér Ieist vera 7-8 tíma akstur og flugnaboxið ekki eins og ég vildi hafa það. Og þá birtist KK. Beint fyrir aftan haus- inn á bensínkallinum. Spjald merkt Litlu flugunni. Röð af svörtum Frances í ótal afbrigðum undir plasti á pappaspjaldi. Eg var léttur í lund þar sem ég renndi undir dúndrandi slætti REM á spólunni út úr Borgarnesi, inn í nóttina og rakleiðis til Vopnafjarðar. Var kominn á bakkann með Erni kl. 7. Engin veiði Þann dag sáum við hvorki haus né sporð. Snillingar miklir í hópnum og voru fisklausir að mestu líka. Næsta morgun var frábært veður, mikil gleði, engin veiði. Aðeins far- ið að draga af oss og Orn, sem er þjóðkunnur sælkeri og heilsu- frömuður, sagði að nú væri risa- stór gin og tónik í hádegismat. Og blundur í sólinni undir fiski- flugnasveim. Og allt gekk heilsuplanið eftir og við endur- nærðir komnir klukkan Qögur út að Sundlaugarbreiðu. Þar sem ég reif upp spjaldið. Þetta var sem sagt dagurinn sem ég veiddi lang mest allra í Selá. Þijá fiska í röð á svarta Frances frá KK, ferska af spjaldinu; silfurlitur þríkrókur og létt- klæddur búkur var það sem fiskarnir vildu. Þið hefðuð átt að sjá kvöldsólina glampa á þá nýrunna þar sem þeir lágu í brekkunni. Orn vildi ekki þiggja hjá mér flugu og aðrir veiddu álíka lítið sem ekk- ert þann daginn. Þetta hefði orðið alónýtur veiðitúr fyrir mér því næsta morgun átti ég skyldum að gegna með flugi frá Húsavík ldukkan ell- efu að morgni, ég sá að með góðum vilja næði ég klukkstund á Fossbreiðunni. Om var með sína flugu. Eg veiddi strax einn. Þá var dauft yfir allri ánni og minn tími búinn. En með þessar flugur færi ég ekki frá Erni. Og mótstaðan var sárah'til sem engin þegar ég tók þá svörtu silfurskott- una og hengdi í hann, þakkaði fyrir hans frábæru nærveru, bað að heilsa hinum, hverf upp í bíl og Iiðaðist upp í rykmekki með Ijóra laxa í skottinu á leið til Húsa- víkur. Eftir stóð Orn. Sagan kom þegar ég hringdi af flugvellinum til að vita hvernig morgunninn hafði gengið eftir brottför mína. Hann stóð þarna einn við fossbrot- ið og var að spá í mál þegar þungur dynk- ur heyrðist fyrir aftan hann. Örn leit nógu snöggt upp til að sjá hvar spegillinn undir fosshamrinum hafði brotnað undan stökkvandi laxi. Og nú dugði ekkert nema eitt. Sú svarta fór undir. Og lenti ná- kvæmlega þar sem vatnsflöturinn hafði sundrast. Þaðan lá leið hennar aðeins undir yfirborðið. En þá komst hún ekki dýpra ofaní Selá því hún lenti í kjaftinum á Iaxi. Þá átti flugan fyrir höndum langt ferðalag. Laxinn þaut með eldingarhraða niður hylinn, dembdi sér niður brotið og þaut fram alla hávaðana alla leið niður á breiðu. Nú vildi svo heppilega til að frómur bóndi í sveitinni átti leið hjá og sá Örn „hlaupa hraðar en nokkur maður hefur hlaupið þessa leið“, samkvæmt veiðifélaganum sem ég sat með í heita pottinum um daginn, en hann var einmitt í hollinu og heyrði nákvæma frá- sögn af gangi mála meðan hún var fersk. Og hvað varð um fluguna? Hún kom upp á bakkann eftir mikla baráttu við laxinn, í kjaftinum á honum. Laxinn var íjórtán pund. Nýgenginn. Þökk sé KK.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.