Dagur - 25.11.1997, Qupperneq 1
Ágúst ætlar að ganga
aftur í AlþýðiifLokkSm
Þjóðvaka hefur verið
breytt iír stjómmála-
flokki í stjómmálafé-
lag, samkvæmt sam-
þykktum sem gerðar
vom á aðalfimdi hans
í gærkvöld. Einn
þingmaður flokksins
tilkynnti á fundinum
að hann ætlaði að
ganga aftur í Alþýðu-
flokkinn, en óvist er
hvað formaður Þjóð-
váka gerir.
Ágúst Einarsson, þingmaður
Þjóðvaka, tilkynnti á aðal-
fundi flokksins í gærkvöld að
hann hygðist ganga í Alþýðu-
flolddnn.
Á fundinum í gærkvöld var
samþykkt að Þjóðvaki myndi
ekki bjóða fram í næstu al-
þingiskosningum. Með þeirri
ákvörðun hefur Þjóðvaki
breyst úr stjórnmálaflokki í
stjórnmálafélag. Ágúst þarf
því ekki að segja sig úr Þjóð-
vaka til að geta gengið í Al-
þýðuflokkinn.
„Markmið mitt í stjórnmál-
um er að stuðla að sameigin-
legu framboði stjórnarand-
stöðunnar í næstu alþingis-
kosningum. Eg tel að ég geti
unnið því máli mest gagn
með starfi innan Alþýðu-
„Innganga mín í Alþýduflokkinn er eðlilegt og
rökrétt framhald, “ segir Ágúst Einarsson þingmaður.
flokksins, sem hefur tekið af-
dráttarlausa afstöðu í sam-
einingarmálunum," sagði
Ágúst í samtali við Dag.
I síðustu alþingiskosning-
um fékk Þjóðvaki fjóra menn
kjörna: Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, Svanfríði jónasdóttur,
Ástu Ragnheiði Jóhannes-
dóttur og Ágúst. Þau hafa
undanfarið starfað með þing-
mönnum Alþýðuflokksins í
þingflokki jafnaðarmanna.
Ekki liggur enn fyrir hvort Jó-
hanna, Svanfríður og Ásta
Ragnheiður muni ganga í
aðra stjórnmálaflokka eftir
niðurstöðu aðalfundarins í
gærkvöld.
„Samband mitt og Alþýðu-
flokksins hefur staðið lengi,
25 ár, og gengið á ýmsu. Ég
fór með Vilmundi Gylfasyni í
Bandalag jafnaðarmanna sem
var uppreisn gegn flokkakerfinu
og ég tók aflur þátt í atlögu að
því með Þjóðvaka. Nú hillir und-
ir breytingar og ég tel rétt að
fylgja sannfæringu minni og
styðja það afl sem lengst vill
ganga í því að sameina félags-
hyggjumenn í einn flokk. Inn-
ganga mín í Alþýðuflokkinn er
eðlilegt og rökrétt framhald á því
ferli sem verið hefur í gangi und-
anfarnar vikur. Skilin eru að
skerpast eins og sést á niðurstöð-
um landsfunda Alþýðubandalags
og Kvennalista. Það er brýnt að
menn geri upp hug sinn og ég
tek afstöðu með þeim sem ein-
dregið styðja sameiginlegt fram-
boð,“ sagði Ágúst í gærkvöld.
Hvíilurinii
Kjálharýr
á Húsavík
Búrhvalurinn sem strandaði í
Steingrímsfirði á dögunum var
dregin af strandstað af hvala-
skoðunarskipinu Moby Dick
(Moby heitinn var reyndar einn-
ig búrhvalur) sem síðan sigldi
með hvalinn á síðunni til Húsa-
víkur og kom þangað í gærmorg-
un. Hvalasafnið á Húsavík
keypti skepnuna fyrir 100 þús-
und krónur og er meiningin að
hreinsa allt kjöt og spik af dýr-
inu og setja síðan beinagrindina
upp á Hvalasafninu.
Um kl. 17 í gær var hvalurinn
dreginn á land í suðurfjöru og
þurfti veghefil og gröfu til að
bifa þessu ferlíld, sem er um 12-
15 metrar á lengd og vegur að
sögn kunnugra um 30 tonn. Von
var á sérfræðingum frá Haf-
rannsóknastofnun til Húsavíkur
í gærkvöld og munu þeir taka
sýni úr hvalnum og rannsaka
sérstaklega hvernig þessi skepna
hefur getað lifað f mörg ár án
þess að hafa fullvaxinn neðri
kjálka, eða hugsanlega misst
hann í átökum. — JS
Alltum
Kidda
Bubha
Blað 2
Biðskýli
;ajgfTUK».oL '|Bi •• t líklaima
.y- fiS8||BL > BIs. 8 9
Hringrásardælur
SINDRI
-sterkur í verki